Morgunblaðið - 18.01.2011, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.01.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011 Sudoku Frumstig 9 6 2 5 9 4 8 3 6 5 4 9 8 1 1 9 4 4 8 1 9 2 6 2 3 5 3 6 2 1 7 3 2 8 5 2 2 4 5 3 7 4 8 3 1 1 4 7 8 5 7 6 7 3 1 1 2 8 5 4 6 1 3 4 8 8 3 6 1 5 7 9 3 2 7 2 6 3 5 9 1 4 8 9 4 1 8 7 6 2 3 5 5 8 3 2 4 1 9 7 6 1 6 9 4 3 7 5 8 2 8 3 4 5 1 2 6 9 7 2 5 7 9 6 8 4 1 3 4 1 2 7 8 5 3 6 9 3 7 5 6 9 4 8 2 1 6 9 8 1 2 3 7 5 4 1 2 7 4 8 6 3 9 5 4 3 8 9 5 2 6 7 1 9 6 5 3 1 7 4 2 8 2 7 6 8 9 1 5 4 3 5 4 9 6 7 3 1 8 2 8 1 3 5 2 4 9 6 7 6 8 1 2 3 9 7 5 4 3 9 2 7 4 5 8 1 6 7 5 4 1 6 8 2 3 9 6 7 9 4 8 2 5 3 1 2 1 8 5 3 7 4 9 6 5 3 4 9 6 1 2 8 7 3 2 1 8 7 4 9 6 5 8 5 7 6 1 9 3 2 4 9 4 6 3 2 5 1 7 8 4 6 3 1 9 8 7 5 2 1 8 2 7 5 3 6 4 9 7 9 5 2 4 6 8 1 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 18. janúar, 18. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14,20.) Lögreglan í Devon og Cornwall íEnglandi hefur að sögn komið sér upp nýrri aðferð við rannsókn snúinna sakamála. Héðan í frá verð- ur einblínt á fólk sem „aldrei myndi gera flugu mein og ekki nokkur maður grunar um græsku“. Dæmin sanna nefnilega að í 80% tilvika heyrir hinn seki nefnilega til þessum flokki. Hermt er að lögreglumenn í téðu héraði sitji nú sveittir við tölvuskjá- inn og komi sér upp grunni yfir fólk af þessu tagi. Það er bara eitt vanda- mál. Um leið og fólk er komið á lista yfir „hina meinlausu“ verður það sjálfkrafa afar grunsamlegt. Hvað verður til að mynda um efsta mann á þeim lista? Eðli málsins samkvæmt hlýtur hann þegar í stað að verða grunsamlegastur af öllum í héraðinu og á fyrir vikið ekki lengur heima á listanum yfir „hina meinlausu“. Þegar þetta var borið undir lög- regluna í Devon og Cornwall neitaði talsmaður hennar að tjá sig um mál- ið en staðfesti að lögregla eigi alltaf von á hinu óvænta. Hvað sem það nú þýðir! Víkverji óskar lögreglunni í Devon og Cornwall velgengni með þetta metnaðarfulla verkefni. x x x Talandi um meinlausa menn þábrá Víkverji sér í bíó á dög- unum (sem hann er alltof latur við) og sá bandarísku kvikmyndina Túr- istann (e. The Tourist) með Johnny Depp og Angelinu Jolie í burð- arrullum. Þar sogast einmitt mein- laus stærðfræðikennari frá Banda- ríkjunum inn í svæsið glæpaspil í Feneyjum. Það er spurning hvaða tökum lögreglan í Devon og Corn- wall hefði tekið hann. Sú pæling er þó akademísk enda hefur lögreglan í Devon og Cornwall ekki lögsögu í Feneyjum. Ekki er Túristinn besta kvikmynd sem Víkverji hefur séð um dagana en hún er eigi að síður prýðileg af- þreying. Hún er svolítið klisjukennd en andrúmslofið er notalegt – svona eins og í gömlu Hollywoodmynd- unum. Kannski er það bara vegna þess að Angelina Jolie ber sig sem endranær betur en aðrar núlifandi leikkonur. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 óvinir, 8 sjaldgæf, 9 um garð gengið, 10 vond, 11 fars, 13 vesæll, 15 hékk, 18 einskær, 21 hrós, 22 dynk, 23 las, 24 skipshlið. Lóðrétt | 2 trölli, 3 kyrrðar, 4 hitasvækja, 5 komumst, 6 óns, 7 kolla, 12 litlir menn, 14 reyfi, 15 hnjóð, 16 frosin jörð, 17 reiðan, 18 að baki, 19 örkuðu, 20 skrifaði. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 gaufa, 4 hefta, 7 logar, 8 líðum, 9 sól, 11 aðra, 13 bann, 14 njóli, 15 forn, 17 kugg, 20 hik, 22 lesta, 23 lagni, 24 neita, 25 ranga. Lóðrétt: 1 gilda, 2 uggur, 3 aurs, 4 höll, 5 fiðla, 6 amman, 10 ósómi, 12 ann, 13 bik, 15 fýlan, 16 rusti, 18 ungan, 19 geita, 20 hasa, 21 klór. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Rd7 5. Rf3 Rgf6 6. Bd3 Rxe4 7. Bxe4 Rf6 8. Bd3 c5 9. O-O Be7 10. dxc5 Bxc5 11. c3 O-O 12. Bg5 h6 13. Bh4 b6 14. De2 Bb7 15. Had1 Dc7 16. Re5 Had8 Staðan kom upp í annarri deild Ís- landsmóts skákfélaga en fyrri hluti mótsins fór fram í Rimaskóla sl. októ- ber. Hrafn Loftsson (2221) hafði hvítt gegn Páli Leó Jónssyni (2094). 17. Bxf6! gxf6 18. Dg4+ Kh8 19. Dh4 hvít- ur hótar nú máti og vegna þessa þarf svartur að láta af hendi peð. 19…f5 20. Dxh6+ Kg8 21. Rg4! Be7 22. Rf6+ Bxf6 23. Dxf6 Df4 24. Be2 Hd2?! 25. g3! De4 26. Dg5+ Kh7 27. f3 Dxe2 28. Hxd2 Dc4 29. Hd4 Dc5 30. b4 Dxd4+ 31. cxd4 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Góð spil. Norður ♠G32 ♥G87 ♦92 ♣DG743 Vestur Austur ♠109 ♠87654 ♥2 ♥1096543 ♦107653 ♦8 ♣109865 ♣2 Suður ♠ÁKD ♥ÁKD ♦ÁKDG4 ♣ÁK Suður spilar 7G. Sterkasta bridshöndin sam- anstendur af 37 hápunktum – þremur efstu í öllum litum og einum gosa með. Suður er „aðeins“ með 35 punkta og gæti því á sig blómi bætt (laufdrottn- ingu). En á móti kemur að makker hans er með þá fimm sem á vantar. Ætla mætti að 7G væri borðleggjandi samningur á 40 punkta, en það er alls ekki sjálfgefið. Eins og spilin raðast í þessu dæmi mun vestur á endanum fá slag á tígultíuna. Fyrirframlíkur eru mestar á því að taka upp 10 punkta hönd (9,4%), en síð- an dregur hratt úr líkum eftir því sem punktunum fjölgar. Líkur á 19 punkta hendi eru til dæmis aðeins um 1%. Eitt er áhugavert: Líkur á 12-14 punktum eru tvöfalt meiri en á 15-17. Sem er veigamikil ástæða til að spila veikt grand. 18. janúar 1930 Hótel Borg tók til starfa þegar veitingasalirnir voru opnaðir, en gistihúsið var tekið í notk- un í maí. Hótelið var sagt „meiri háttar gisti- og veit- ingahús“ en það var reist „vegna væntanlegrar gesta- komu, mikillar og virðu- legrar“ til Alþingishátíð- arinnar, sagði í Árbókum Reykjavíkur. 18. janúar 1969 Eldur kom upp á Korpúlfs- stöðum. Miklar skemmdir urðu á húsinu og hluti af skjalasafni borgarinnar brann. 18. janúar 1986 Flugfreyjur gleymdust þegar vél Flugleiða fór frá Reykja- vík til Egilsstaða. Vélin var yf- ir Þingvöllum þegar þetta kom í ljós og var henni snúið við til Reykjavíkur og flug- freyjurnar sóttar. 18. janúar 2003 Vefútgáfa Íslendingabókar var opnuð almenningi. Á fyrstu klukkustundinni sóttu þrjú þúsund manns um að- gang og tugir þúsunda næstu daga. Í Íslendingabók eru upp- lýsingar um 95% Íslendinga síðustu þrjár aldir og helming allra frá landnámi. 18. janúar 2009 Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, 33 ára, var kosinn for- maður Framsóknarflokksins með 449 atkvæðum. Hös- kuldur Þórhallsson hlaut 340 atkvæði. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Sesselja Árnadóttir, grunnskólakennari í Búð- ardal, fagnar í dag 50 ára afmæli sínu. Hún starfar sem umsjónarkennari 7. og 8. bekkjar í Auð- arskóla en stundar að auki fjarnám við Háskóla Ís- lands. „Ég er í mastersnámi í kennslufræðum og er núna að vinna rannsóknina mína,“ segir Sess- elja en hún hyggur á útskrift í vor og ætlar að halda eina allsherjar útskriftar- og afmælisveislu þegar þar að kemur, enda segist hún jafnan reyna að slá tvær flugur í einu höggi. Afmælisdeginum sjálfum segist hún ætla að verja í að kenna „þess- um yndislegu börnum“, eins og hún kemst að orði. Þetta er annað árið sem Sesselja stundar kennslu við Auðarskóla en hún flutti í Búðardal fyrir þremur árum. „Ég var að elta manninn; hann var að elta ostagerðina og ég elti hann,“ segir hún en umræddur maður heitir Eggert Aðalsteinn Antonsson og er mjólkurfræðingur. Samtals eiga þau Sesselja fimm börn, hún þrjú og hann tvö, auk jafn- margra tengdabarna og nokkurra barnabarna. Þau kynntust árið 2002 og eru gift í dag en Sesselja segir þau aðeins hafa þekkst í eitt og hálft ár. „Við látum eins og við séum nýbúin að kynnast. Bara svona til að halda þessu spennandi.“ Sesselja Árnadóttir er 50 ára í dag Afmæli í kennslustofunni Nýirborgarar Reykjavík Þuríður Inga fæddist 3. júlí kl. 1.48. Hún vó 3.705 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Ragn- hildur Guðmunds- dóttir og Olgeir Örlygsson. Flóðogfjara 18. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.18 3,8 11.39 0,8 17.41 3,5 23.47 0,7 10.49 16.29 Ísafjörður 1.11 0,3 7.20 2,0 13.48 0,3 19.45 1,8 11.18 16.09 Siglufjörður 3.21 0,3 9.34 1,2 15.59 0,1 22.22 1,1 11.02 15.51 Djúpivogur 2.35 1,8 8.49 0,4 14.45 1,6 20.50 0,2 10.24 15.52 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Notaðu daginn til þess að gera áætl- anir fyrir framtíðina með maka og vinum. Gefðu gleðinni lausan tauminn. (20. apríl - 20. maí)  Naut Vinir þínir og maki eru þér mikilvægari í dag en alla jafna. Reyndu að ganga frá laus- um endum áður en þú byrjar á einhverju nýju. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Vertu fyrst og fremst heiðarleg/ur í samskiptum þínum við aðra og gættu þess að lofa ekki upp í ermina á þér. Ekki reikna með að fá klapp á bakið. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Heiðarleikinn er það sem dugar best bæði gagnvart sjálfum þér og öðrum. Láttu í þér heyra og þá færðu næg tækifæri til að sýna hvað í þér býr. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Láttu það ekki fara í taugarnar á þér þótt samstarfsmennirnir reyni á þolinmæði þína í dag. Reyndu frekar að fá útrás með lík- amlegu erfiði. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Ákveðni þín í að leiða hlutina til lykta vekur athygli. Mundu samt að aðrir hafa líka skoðanir, sem þeir vilja koma á framfæri. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Vandlega verður farið yfir áætlanir tengdar útgáfu, ferðalögum, fjölmiðlum eða samskiptum við útlönd. Fjölgun verður í fjöl- skyldunni á þessu ári. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Gamaldags og hefðbundnar að- ferðir sanna gildi sitt. Þér finnst sem þú farir í hringi – og líklega er það rétt – því miður. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Eitthvað sem þú deilir með sporðdrekum eða steingeitum hefur merk- ingu og víðtækar afleiðingar. Hvers vegna ekki að skella sér í jóga? (22. des. - 19. janúar) Steingeit Með því að draga úr útgjöldum kemst líf þitt aftur í jafnvægi án þess að þú finnir svo mikið fyrir því. Hvað þarftu að gera til að auðga líf þitt enn frekar? (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Beindu athyglinni að heimili, fjöl- skyldu, fasteignum og samskiptum við for- eldra í dag. Einhverjum vefst tunga um tönn. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það er alltaf best að búa að sínu og ef þannig stendur á að lána nágrönnum sínum. Með tímanum lærir þú að það á ekki að gera kröfur til fólks um efndir innantómra loforða. Stjörnuspá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.