Morgunblaðið - 18.01.2011, Qupperneq 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011
Menningarafurðastöðin Havarí í Austur-
stræti 6 mun hætta 29. janúar nk. Kveðjuhá-
tíð verður haldin í Havaríi frá 17. janúar
fram að lokunardegi. Á hátíðinni ætla góð-
vinir og aðstandendur Havarís að skemmta
sér og öðrum með tónlistaratriðum, mynd-
listaruppákomum, upplestrum, innsetn-
ingum o.fl. Að auki verði efnt til „absalút-
sölu“ og á henni verða hljómplötur og aðrar
menningarafurðir á „meiriháttar afslætti“.
Havarí mun þó snúa aftur á nýjum stað í
miðborginni með vorinu og eru eigendur að
leita að nýju húsnæði.
Hátíð í Havaríi og leitað að
nýju húsnæði í miðborginni
Hljómsveitin The Heavy Experience gaf
út forláta hljómplötu samnefnda sveitinni í
desember síðastliðnum, 45 snúninga tíu
tommu vínylplötu. Platan hefur fengið afar
góðar viðtökur bæði vegna óvanalegs út-
gáfuforms sem og tónlistarlegra gæða en
platan kom út á vegum jaðarútgáfunnar
Kimi Records. Þess ber að geta að plötuspil-
aralausir rokkunnendur þurfa eigi að ör-
vænta því niðurhalskóði á rafræna útgáfu
plötunnar fylgir hverju eintaki. The Heavy
Experience ætlar að fagna útgáfu með tón-
leikum á Bakkus þriðjudagskvöldið 18. jan-
úar kl. 21.30. Arnljótur hitar upp.
Útgáfutónleikar The Heavy
Experience á Bakkus
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Leikskáldið og handrita-
höfundurinn Jón Atli Jón-
asson mun halda námskeið
á Grand hóteli í Reykjavík
22. og 23. janúar nk. sem
ber yfirskriftina „Hug-
mynd og handrit“. Á nám-
skeiðinu fer Jón Atli yfir
undirstöðuatriði í handrits-
skrifum með áherslu á leik
og kvikmyndahandrit. Jón
Atli hefur komið að skrifum fjölda kvik-
myndahandrita, m.a. að kvikmyndunum
Djúpið, Brim, Mýrin, Strákarnir okkar og
Blóðbönd. Á námskeiðinu verða fyrst kennd
undirstöðuatriðin í handritsskrifum. Í kjöl-
farið eiga nemendur að skrifa handrit og
verður Jón Atli þeim til leiðsagnar í því ferli.
Fyrsta uppkasti að handriti á að skila á
námskeiðinu.
Jón Atli segist með námskeiðinu vilja
hvetja fólk til að gera eitthvað nýtt. „Kvik-
myndahandrit og leiktexti er allt öðru vísi
texti en annar bókmenntalegur texti. Hann
gerir ekki sömu kröfur og það er kannski til
fólk sem finnur sig frekar í þessu en að
skrifa skáldsögur eða eitthvað svoleiðis,“
segir hann. Námskeiðið stendur frá kl. 12 til
17 hvorn daginn en við bætist svo fyrrnefnd
eftirfylgni, yfirlestur á handritum þeirra sem
námskeiðið sóttu og leiðsögn.
Að virkja fólk
Jón Atli segir heilmikið mál að skrifa
handrit að kvikmynd þannig að hægt sé að
gera hana og þannig að hún verði eins og
handritshöfundur sá fyrir sér. „Í grunninn
er handritsgerð í leikritum og kvikmyndum
svo svipuð upp á það að gera að þú ert að
skrifa það sem við köllum leikbæran texta.
Þar sem er undirtexti og allt, allt aðrir hlutir
í gangi en í skáldsögunni eða smásögunni.
Þetta er líka gert, eins og ég segi, til að
virkja fólk til að vera meira skapandi. Þetta
hefur alltaf verið okkar veikleiki í kvikmynd-
um, handritið. Fólk horfir dálítið til dogma-
myndanna sem Danirnir byrjuðu að gera
fyrir svona tíu árum og uppganginum sem
var þar og er núna, virðist mér, í sænskri
kvikmyndagerð. En þetta er mjög basic,
þetta bara byrjar og endar í handriti, hefur
ekkert með nýjustu stafrænu kvikmynda-
tækni að gera. Ef þú ert með gott handrit
ertu í helmingi betri málum en næsti mað-
ur,“ segir Jón Atli. „Það eru vissir grunn-
þættir sem verða að vera alveg skýrir og ef
þeir eru skýrir þá er restin í raun og veru
dálítið undir ímyndunaraflinu komin,“ segir
hann. Málið snúist um að ná ákveðinni und-
irstöðu og þegar hún sé klár séu menn færir
í flestan sjó.
Námskeiðið verður ekki bara fræðilegt
heldur fær Jón Atli líka til sín fólk úr kvik-
myndabransanum sem mun m.a. fara í saum-
ana á því hvernig skila skal inn handriti,
hvernig handrit er nýtt við tökur og hvernig
það þarf að vera til að það gangi upp.
Á sjó Úr kvikmyndinni Brim sem Jón Atli skrifaði handritið að ásamt Árna Ólafi Ásgeirssyni og Ottó Geir Borg.
Hvatning til sköpunar
Jón Atli heldur námskeið í skrifum kvikmyndahandrita Mikilvægast
að ná undirstöðunni Handritin veikleiki íslenskrar kvikmyndagerðar
Jón Atli Jónasson
Skráning á námskeiðið fer fram í síma
6181002 en einnig er hægt að senda tölvu-
póst á hugmyndoghandrit@gmail.com.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sjónlistahátíðin Sequences verður
ekki haldin að hausti í ár, líkt og verið
hefur, heldur 1.-10. apríl. Hátíðin var
fyrst haldin árið 2006. Þorgerður
Ólafsdóttir myndlistarmaður, sem
hefur umsjón með hátíðinni að þessu
sinni með kollega sínum Páli Hauki
Björnssyni, segir þann tíma hafa verið
hentugan þar sem lítið sé þá í gangi í
listalífinu og ekki skemmi batnandi
veður. Nýir umsjónarmenn eru fengn-
ir til að stýra hátíðinni hverju sinni og
ákváðu Þorgerður og Páll að hafa
þungamiðjuna gjörningalist í ár. Þau
hafa bæði verið iðin við myndlist, í
verkefnasköpun og sýningahaldi.
„Hátíðin er í raun tvískipt; annars
vegar verkefnin og listaverkin og hins
vegar fyrirlestraröð sem haldin verð-
ur í samstarfi við Listaháskóla Ís-
lands. Að henni kemur samnorræni
gjörningavettvangurinn Nordic
Tantrum sem heldur utan um umræð-
ur og umfjöllun um gjörningamyndlist
á öllum Norðurlöndunum. Þau hafa
mjög góða yfirsýn yfir það sem er að
gerast í Norður-Evrópu og er því afar
áhugavert að fá þau hingað þar sem
gjörningasenan á íslandi verður í
brennidepli,“ segir Þorgerður.
Erlendir og íslenskir
Fjölda erlendra listamanna hefur
verið boðið að taka þátt í hátíðinni en
íslenskir listamenn verða einnig
áberandi. Opið hefur verið fyrir um-
sóknir um að sýna á hátíðinni í
nokkra mánuði. Þorgerður segir að
alls verði 20 gjörningar og listaverk-
efni á hátíðinni og Hannes Lárusson
sé heiðurslistamaður hátíðarinnar í
ár. „Önnur breyting á hátíðinni er sú
að við erum í samstarfi við Skaftfell,
miðstöð myndlistar á Austurlandi, og
þau ætla að hafa einn gjörningahóp
hjá sér. Þannig að hátíðin er komin út
fyrir Reykjavík og miðborgina,“ seg-
ir Þorgerður.
Sýningarstaðir hátíðarinnar í ár
verða Nýlistasafnið, Kling & Bang
gallerí, Norræna húsið og Listahá-
skóli Íslands. Það verður því ekki
langt að fara milli sýningarstaða fyrir
áhugasama. „Þetta verður allt mið-
svæðis, nema það sem fram fer aust-
ur á landi,“ segir Þorgerður.
Sequences verður að sjálfsögðu
með vefsíðu með öllum helstu upplýs-
ingum um hátíðina, dagskrá hennar
og listamenn sem koma fram á henni.
Í næstu viku hefst kynning á heima-
síðu Sequences á þeim myndlist-
armönnum sem taka þátt í hátíðinni í
ár. Vefslóðin er sequences.is.
Gjörningar í hávegum hafðir
Sequences-sjónlistahátíðin verður haldin í fimmta sinn í ár
og hefst 1. apríl Hátíðin helguð gjörningalist að þessu sinni
Umsjónarmennirnir Þorgerður og Páll taka sér ljósmyndunarhlé á skrif-
stofu sinni í Hugmyndahúsi Háskólanna. Nóg að skipuleggja á Sequences.
Listamennirnir á Sequences 2011:
Hannes Lárusson,
heiðurslistamaður
hátíðarinnar í ár
Curver Thoroddsen
Gernot Faber (Þýskaland)
Ásdís Sif Gunnarsdóttir
Christian Falsnaes (Danmörk)
SIGNA (Danmörk, Austurríki)
Anthony Marcellini (Bandaríkin)
Nils Bech / Benedik Giske
(Noregur)
Friðgeir Einarsson
Freya Bjorg Olafson (Kanada)
Örn Alexander Ámundason
Rakel McMahon
Helga Björg Gylfadóttir /
Irene Ósk Bermudez / Rakel
Jónsdóttir / Vilborg
Bjarkardóttir
Sigríður Soffía Níelsdóttir /
Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Una Björk Sigurðardóttir /
Sunneva Ása Weisshappel
Fjölþjóðlegur hópur
LISTAMENNIRNIR Á SEQUENCES 2011
Gjörningur Danski myndlistarmaðurinn Christian Falsnæs fremur gjörning.