Morgunblaðið - 20.01.2011, Qupperneq 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2011
✝ Guðmundur IngiBaldursson fædd-
ist á sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki 10. júlí
1963. Hann lést 11. jan-
úar 2011.
Foreldrar hans voru
Baldur Björnsson frá
Stóru-Þverá í Austur-
Fljótum í Skagafjarð-
arsýslu, f. 24. febrúar
1933, d. 9. febrúar
2005, og Guðrún Fann-
ey Guðmundsdóttir frá
Lýtingsstöðum í
Lýtingsstaðahreppi í
Skagafirði, f. 1. febrúar 1941, d. 29.
ágúst 2010. Systkini Guðmundar eru:
Karl Líndal, f. 17. október 1952, maki
Mirian Turno, f. 22. október 1966.
Borgþór, f. 23. október 1954, maki
Sigrún Þórhallsdóttir, f. 4. nóvember
1954, börn þeirra eru: Stefán Björn og
Andri Fannar. Hermann Valgarður, f.
30. september 1962, maki Anna Þóra,
f. 22. ágúst 1971, dóttir hans er Elín
Björk. Guðrún Halldóra, f. 21. ágúst
1969, maki Hjálmar Ólafsson, f. 7. jan-
úar 1961, barn þeirra Sigursteinn
Víkingur. Elínborg, f.
10. júlí 1971, maki Elv-
ar Þór Sigurjónsson, f.
8. október 1965, börn
þeirra Rakel Ösp og
Birkir Freyr. Ingi-
björg, f. 7. desember
1973, maki Ingi Sig-
urbjörn Hilmarsson, f.
29. janúar 1977, börn
þeirra; Anna Karolína,
Baldur Fannar, Hilm-
ar Már og fyrir átti
Ingibjörg Sigurjón
Ágúst. Björn Stefán, f.
29. september 1975.
Maki Eydís Hrönn Gunnlaugsdóttir,
f. 18. febrúar 1982, börn þeirra: Aron
Máni, Bjartur Már, fyrir átti Eydís
Emblu Sól og Hugrúnu Birtu. Jónas
Helgi, f. 9. maí 1980.
Árið 1973 flytja Guðrún og Baldur
til Akureyrar en Guðmundur varð
eftir á Lýtingsstöðum hjá ömmu sinni
og afa og mynduðust sterk tengsl á
milli þeirra.
Útför Guðmundar Inga fer fram
frá Mælifellskirkju í dag, 20. janúar
2010, og hefst athöfnin kl. 14.
Lífið, alltaf jafn undarlegt sem
dauðinn. Viðbrögð við andláti bróður
míns eru ólýsanleg. Sorgin, tómleik-
inn og reiðin, þá minningarnar,
söknuðurinn og tárin. Þannig var því
farið er ég frétti af andláti Guð-
mundar bróður.
Guðmundur hafði barist í mörg ár
við sjúkdóm sem varð til þess að
hann fór frá okkur. Guðmundur var
tilfinninganæmur og listrænt nátt-
úrubarn, hugleiddi lífið, tilveruna,
náttúruna og dauðann.
Vegir Guðs eru órannsakanlegir
og við trúum því að einhver sé til-
gangurinn. Máltækið „Þeir sem guð-
irnir elska deyja ungir“ hlýtur að
þýða eitthvað. Þeim er ætlað eitt-
hvert hlutverk, útvaldir hafa áhrif
langt út yfir gröf og dauða. Vera
Guðmundar hér á meðal okkar og
dauði hans kennir okkur ef til vill að
endurmeta lífið og tilveruna, hugsa
og hlusta betur á hjartslátt hvert
annars.
Elsku bróðir, ég trúi því að þú sért
á Guðs vegum og hann varðveitir
sálu þína. Ég bið hann að fyrirgefa
okkur það sem við höfum gert rangt.
Ég trúi því að þínu verkefni sé ekki
lokið.
Dæmdu eigi breyskan bróður,
brjóttu ei hið veika strá;
lyftu heldur hönd til varnar
hverjum þeim, sem aðrir smá.
Allt er líf af einum stofni,
örlög tvinnuð mín og þín.
Undir sora og synda hjúpi
sólhrein perla tíðum skín.
Hver fær lesið letur hjartans,
leynirúnir innra manns?
Hver er sá, er kannað geti,
kafað sálardýpi hans?
Margt í hafsins hyljum djúpum
hulið er, sem enginn leit.
Margt í sálum manna leynist
meira og betra en nokkur veit.
Skammt vér sjáum, blindir blínum
báðum augum, látum hægt.
Hví skal myrða menn með orðum?
Margt er hulið, dæmum vægt.
Auðlegð hjartans enginn reiknar
eða sálarfátækt manns.
Hvar er vog, er vegið geti
vonir eða sorgir hans.
(Richard Beck)
Hvíl í Guðs friði.
Þín systir,
Elínborg.
Elsku frændi.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hvíl
þú í friði.
Sjáumst.
Elínborg frá Djúpadal.
Kæri frændi. Ég trúi því varla að
þú sért farinn frá okkur. Manstu hvað
við brölluðum margt saman þegar við
vorum hjá ömmu og afa? Og amma
tók öllu með jafnaðargeði, hversu
uppátækjasöm sem við vorum. Þú
varst stóri frændinn sem ég leit upp
til og fannst svo mikil upphefð að fá
að leika við þig. Þegar við heyrðumst
eða sáumst rifjuðum við oft upp eitt-
hvað skemmtilegt frá þessum tíma.
Það er margs að minnast.
Góða ferð, Guðmundur minn, og
ég bið að heilsa ömmu.
Valgerður.
Guðmundur Ingi
Baldursson
✝ Helga Þorsteins-dóttir fæddist á
Ekru í Reyðarfirði
22. júlí 1923. Hún
andaðist á Hrafnistu
í Hafnarfirði 12. jan-
úar 2011.
Foreldrar Helgu
voru Áslaug Katrín
Pétursdóttir Maack,
f. 27. janúar 1891, d.
8. desember 1951,
og Þorsteinn Páls-
son, f. 28. ágúst
1892, d. 9. febrúar
1964. Systkini Helgu
eru Pétur, f. 19. desember 1919,
d. 23. ágúst 2006, Páll, f. 22. nóv-
ember 1921, Elínborg, f. 1925, d.
ung, Elínborg, f. 5. október 1928.
Helga ólst upp á Reyðarfirði til
19 ára aldurs, þaðan flutti fjö-
skyldan til Reykjavíkur.
Helga giftist Arthuri Þór Stef-
ánssyni, f. 20. júní 1922, hinn 1.
júní 1945. Foreldrar Arthurs
voru Stefán Carlsson og Nanna
Guðmundsdóttir. Helga og Arth-
ur eignuðust þrjú börn: 1) Ás-
laug Sigurbjörg, sambýlismaður
hennar er Oddgeir Þór Árnason,
eiginmaður hennar var Leifur
Ingi Guðlaugsson (látinn). Börn
Áslaugar og Leifs
eru: Helga Katrín,
Aðalheiður og Leif-
ur Már. 2) Nanna,
gift Guðbergi Þor-
valdssyni, fyrri eig-
inmaður er Gunnar
Páll Jensson. Börn
Nönnu og Gunnars
eru Arnþór Hregg-
viður, Kristján
Ófeigur, Magni
Guðjón, Magnea
Stefanía og Sigríður
Nanna. 3) Þor-
steinn, kvæntur
Guðrúnu Petru Guðnadóttur.
Dóttir þeirra er Helga. Barna-
börnin eru níu og barna-
barnabörnin eru 17.
Helga og Arthur hófu búskap
á Langholtsvegi í Reykjavík árið
1945 en fluttu þaðan í Kópavog
þar sem þau bjuggu lengst af.
Helga tók virkan þátt í fé-
lagsmálum, t.d. var hún ein af
stofnendum Kvenfélags Kópa-
vogs. Hún var lengi formaður
Líknarsjóðs Áslaugar Maack, fé-
lagi í Sinawik og í Foreldra- og
vinafélagi Sólheima í Grímsnesi.
Útför Helgu fór fram frá
Kópavogskirkju 19. janúar 2011.
Langri vegferð er lokið og komið
að leiðarlokum. Þá er til siðs að
nema staðar og líta um öxl. Ég
kynntist fyrst Helgu árið 1991 þeg-
ar hún og maður hennar Arthúr
Stefánsson voru í heimsókn hjá
dóttur sinni Nönnu, sem þá var bú-
sett í Gautaborg í Svíþjóð. Þessi
glæsilegu eldri hjón skáru sig úr
hinum gráa fjölda og ekki var ann-
að hægt en að veita þeim athygli.
Ég tók strax eftir því að þarna var
á ferð stórbrotin kona með
ákveðnar skoðanir. Víðlesin var
hún og það leyndi sér ekki að hún
var ekki í fyrsta sinn á erlendri
grundu.
Seinna áttu leiðir okkar eftir að
liggja saman á ný er ég hóf sam-
búð með Nönnu dóttur hennar og
enn seinna varð ég tengdasonur er
ég giftist minni yndislegu konu.
Helga var mikill unnandi íslensks
máls og lagði ríka áherslu á, að
ekki síst fjölskylda hennar vandaði
málfar sitt. Hún var óþreytandi í
að leiðrétta málfar afkomenda
sinna sem hún unni svo mjög.
Helga var fróðleiksfús og sótti
námskeið í ýmsum greinum. Helga
sagði mér að sig hefði alltaf langað
til að læra hjúkrunarfræði, en ör-
lögin höguðu því á þann hátt að
það varð hlutskipti dóttur hennar
að uppfylla þann draum hennar.
Helga var afar hjálpsöm kona og
mátti ekkert aumt sjá, þá vildi hún
bæta úr því eftir bestu getu. Hún
var með afbrigðum tónelsk, raulaði
gjarnan dægurflugurnar fyrir
munni sér.
Nú að leiðarlokum vil ég þakka
Helgu minni fyrir þau mörgu sam-
töl sem við áttum, það var ávallt
gaman að ræða við hana og þá
skipti málefni samtalsins engu
máli.
Elskuleg tengdamóðir góð: „Far
þú í friði, friður Guðs þig blessi“
um aldir alda.
Guðbergur Þorvaldsson.
Helga amma dó 12. janúar sl.
Hún var þó byrjuð að yfirgefa okk-
ur hægt og rólega, minnið var
byrjað að svíkja hana og hún
þekkti okkur stundum, stundum
ekki. Það er töluvert síðan ég byrj-
aði að sakna hennar. Engu að síður
var það áfall þegar hún endanlega
fór. Helga amma var frábær kona.
Hreinskiptin og heiðarleg, lá ekki
á skoðunum sínum en kom þeim
alltaf kurteislega frá sér. Hún not-
aði hvert tækifæri til að leiðrétta
þá sem afbökuðu tungumálið okkar
og hvað þá ef við notuðum ensku-
slettur, það var ekki vel séð. Orðið
„bæ“ var ekki til í íslensku, við átt-
um að segja bless. Hún kenndi mér
að fara með bænirnar og versin,
var óþreytandi að segja mér sögur
frá uppvexti sínum og af foreldrum
sínum þegar hún var að alast upp á
Reyðarfirði. Ég var alltaf velkomin
til ömmu og afa, sama hvað klukk-
an var eða hvaða dagur. Við dól-
uðum okkur frameftir enda báðar
nátthrafnar, afi löngu sofnaður en
við gátum dundað við að baka og
spjalla og hlæja langt fram eftir
nóttu. Hún lagði mikla áherslu á að
við barnabörnin værum kurteis og
bærum virðingu fyrir öðrum og
ekki síst okkur sjálfum.
Amma var ekki fyrir væmni eða
rósamál og væri ekki sátt við mig
ef ég færi að skrifa uppskrúfaða
minningargrein um hana. En samt
er ekki hægt að minnast ömmu án
þess að nefna hjartahlýju hennar
og góðmennsku, hvað hún reyndist
okkur öllum svo vel alltaf þegar á
reyndi. Amma stóð vörð um sitt
fólk og fylgdist vel með okkur öll-
um. Ég kveð ömmu mína í dag með
þakklæti og söknuði en hugga mig
við að nú hefur hún fengið hvíldina
sem hún sennilega var farin að
þrá.
Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson)
Helga Þorsteinsdóttir.
Elsku Helga amma okkar, við
kveðjum þig í dag með þessu ljóði:
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín langömmubörn,
Þorsteinn Arnar,
Petra Sigurbjörg
og Stefán Björn.
Helga
Þorsteinsdóttir
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
INGIMAR ÞORLÁKSSON,
Skálarhlíð,
Siglufirði,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar
fimmtudaginn 13. janúar.
Útför fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
22. janúar kl. 11.00.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans er bent
á Kvenfélagið Von.
Erla Ingimarsdóttir, Konráð Baldvinsson,
Guðfinna Ingimarsdóttir,
Þórdís Ingimarsdóttir, Ragnar Ragnarsson,
Jóhanna Ingimarsdóttir, Sveinn Einarsson,
Sólrún Ingimarsdóttir, Oddur Óskarsson,
Björn Ingimarsson, Lukrecija Bokan Daníelsdóttir,
Birgir Ingimarsson, Pálína Kristinsdóttir,
Bylgja Ingimarsdóttir, Guðbrandur Skúlason,
Rakel Björnsdóttir, Thomas Fleckenstein,
Baldvin Kristjánsson, Jóna Heiðdal.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KRISTÍN HENRIKSDÓTTIR,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ sunnu-
daginn 9. janúar.
Útför hennar fer fram frá Áskirkju föstudaginn
21. janúar kl. 13.00.
Helga Sigurðardóttir, Guttormur Einarsson,
Súsanna Sigurðardóttir, Matthías Pálmason,
Ingunn Sigurðardóttir,
Egill Vilhjálmur Sigurðsson, Hafdís Sveinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
VIGDÍS VALGERÐUR EIRÍKSDÓTTIR,
Árskógum 8,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
21. janúar kl. 15.00.
Ásta Guðrún Sigurðardóttir, Árni Ísaksson,
Matthías Sigurðsson, Selma Skúladóttir,
Eiríkur Sigurðsson, Helga Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á
reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist.
Minningargreinar