Morgunblaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Æskan og maturinn Mörgum unglingnum á tuttugustu og fyrstu öldinni finnst harðfiskur hið mesta gómsæti.
fólk nú minna á milli handa og því
finnst kannski að grænmeti og ávext-
ir sé ekki nauðsynjavara. Það er líka
mjög slæmt þegar hollusta er sett
fram sem einhver lúxus. Mikið af til-
tölulega ódýrum mat er orkuríkt en
næringarsnautt, en það er líka búið
að telja fólki trú um að það sé ævin-
lega dýrt að borða hollan mat, sem er
ekki endilega rétt. Hollustufæða er
oft seld í sérstökum hollustubúðum
undir sérstökum hollustumerkjum,
sem er ekkert endilega hollara.
Það er til dæmis ódýrara að
borða hafragraut en tilbúið
morgunkorn og hollara að
borða hreinar mjólkurvörur
eins og súrmjólk heldur en
vörur með alls konar íblönd-
uðum bragð- og sætuefnum.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011
„Mér finnst allur þorra-
matur góður en af þessu
súra finnst mér hrúts-
pungarnir langbestir. Ég
borða þá bara yfir þorra-
tímann með góðri róf-
ustöppu og hef gert það
síðan ég man eftir mér.
Hrútspungarnir hafa
alltaf verið vinsælastir af
súrmatnum, ég sé það í
veislunum sem við sjáum
um, það er langmest borð-
að af þeim. Enda er þetta
toppvara, mínir hrúts-
pungar sem ég geri sjálf-
ur.“
Jóhannes Stefánsson,
veitingamaður í Múlakaffi.
Uppáhaldsþorramatur Jóhannesar Stefánssonar
Morgunblaðið/Heiddi
Hrútspungarnir langbestir
Þorramatur Jóhann-
es Stefánsson með
þorramatinn sinn.
peningarnir frá okkur skiptu máli, við
höfum verið að byggja skóla í sam-
vinnu við heimamenn sem stjórnvöld
taka svo yfir því við erum ekki að
reka skólana. Við leggjum sérstaka
áherslu á að ná til barna sem eru ekki
í skóla, þá sérstaklega stúlkna, bæta
kennslu og kennsluumhverfi, við höf-
um verið með þjálfunarnámskeið fyr-
ir kennara og skólayfirvöld og margt
fleira. Það er langtíma starf að að-
stoða fólkið að snúa til baka úr flótta-
mannabúðum og fara til síns heima.
Fólk er mikið að byrja upp á nýtt og
við sjáum að það sem við erum að
gera skiptir gífurlegu máli en það er
mikið sem á eftir að gera og þarf að
gera.“
Barnaheill á Íslandi hafa skuld-
bundið sig til að styðja við mennt-
unarverkefnið í Norður-Úganda til
loka ársins 2012.
Petrína segir Úganda vera fjar-
lægt fólki hér og með Afríkudögum
vilji þau vekja athygli á álfunni og
benda á það sem hún hefur upp á að
bjóða sem er mjög margbreytilegt.
Reuters
Eyðilegging Drengur gengur yfir land sem hefur orðið fyrir aurskriðu í
Bududa, sem er um 400 km fyrir austan Kampala höfuðborg Úganda.
Dagskrá Afríkudaga má sjá á
vefsíðunum www.barnaheill.is og
www.africa.is.
Kannanir hafa verið gerðar á mat-
aræði fólks hér á landi, síðast árið
2002 og þar á undan 1990. Nið-
urstöður frá 2002
voru þær að
landsmenn
borðuðu
minna af
harðri
fitu,
minna af
fiski og
mjólkurvöru
en samkvæmt fyrri könnun. Mest
áberandi var mikill munur á milli
aldurshópa, eldra fólks og ung-
linga. Unglingarnir borðuðu örlítið
brot af þeim fiski sem eldra fólk
borðaði en unglingar borðuðu
margfalt meira en gamla fólkið af
pizzum, pasta og gosdrykkjum.
Sykurneysla var miklu meiri hjá
ungu fólki en því eldra. Árið 1990
hafði munurinn verið mestur í
mataræði höfuðborgarbúa og
landsbyggðarfólks.
Ólíkt fæði unglinga og eldra fólks
KANNANIR SÝNA MUN Á ALDURSHÓPUM
Í mjög fáum
tilvikum hefur
of stór
skammtur af
koffíni leitt til
dauða, segir á
vefsíðu The
New York
Times í svari
við spurningu
um hvort of
mikil kaffi-
drykkja geti
dregið fólk til dauða. Það yrði mjög
erfitt, jafnvel ómögulegt, að innbyrða
nægilega mikið koffín til að drepa
sjálfan sig með því eingöngu að
drekka venjulegt kaffi. Venjulegur
kaffibolli inniheldur 60 til 120 millg-
römm af kaffíni. Ef gert er ráð fyrir að
koffíninnihald sé mjög mikið og ban-
vænn skammtur sem til þarf mjög lít-
ill þarf samt að drekka að minnsta
kosti 42 kaffibolla í senn til að eiga
von á því að detta niður dauður af
kaffidrykkju. En finna má koffín í
stærri skömmtum í orkudrykkjum,
lyfjum og jurtavörum.
Styrkur koffíns í blóðplasma sem er
meiri en 15 milligrömm í hverjum lítra
af blóði getur valdið eituráhrifum. Of-
skömmtun af koffíni er algengur vald-
ur eitrunar, en um 4183 slík tilvik voru
tilkynnt til eiturefnamiðstöðvar Am-
eríku árið 2007. Aðeins eitt dauðsfall
var skráð. Þegar koffín drepur eru
ástæðurnar oftast óeðlilegur hjart-
sláttur, flog og að kafna í eigin ælu.
Getur kaffidrykkja
dregið til dauða?
Kaffi Óhollt?
Heilsa Safnaðu litlum listaverkum
ódýrt alla daga
Grillaður kjúklingur og
Pepsi eða Pepsi Max, 2 l
1198kr.tvennan