Morgunblaðið - 26.01.2011, Page 23

Morgunblaðið - 26.01.2011, Page 23
hélt þér í fanginu og þú hjúfraðir þig að vanga mínum. Nú ertu farin í annan heim og við sem trúum því að tilgangur sé með þessu jarðlífi trúum því einnig að tilgangur sé með dauðanum og að við eigum eftir að sameinast öllum þeim sem eru á undan okkur eru gengnir þegar sú stund kemur. Þín er og verður sárt saknað og sorgin og söknuðurinn er sem sár á sálu okkar en við munum reyna að láta það gróa sem best og halda áfram lífi okkar. Við hefðum viljað hafa þig lengur – miklu, miklu leng- ur á meðal okkar. Við trúum því einnig að æðri máttur hafi stjórn á því hve lengi okkur er ætlað að vera saman í þessu lífi og nú sé komið að þátta- skilum sem við sættum okkur ekki við en fáum engu um ráðið. Elsku Karen Mist, við munum öll geyma þær yndislegu stundir sem við áttum saman í hjarta okkar og trúum því að þú verðir ávallt með okkur í andanum. Við biðjum góðan Guð að hjálpa okkur að sefa sorgina og varðveita minninguna um þig. Ingólfur langafi og Elín langamma. Frá ömmu Ragnheiði, Hún var lítil en birtan sem lagði frá henni var skær. Í stuttan tíma ég fékk að njóta hennar, og upplyfa þvílíka dýrð þessi litli ljósberi bar með sér. Ljósberinn mikli hún Karen Mist, minnti mig á hve sakleysið og hreinleikinn er dýrmætur nú ertu komin til hans. Sem er æðstur allra á jarðríki í guðs dýrð. Til þjónustu hins æðsta og hæsta þú nú hvílir hjá með brosið blíða þú horfir á oss á, og veifar í von, um að þú hafir komið skilaboðunum til skila. Um hve tilgangur okkar á jörðinni er að kærleikurinn er okkar æðsta dyggð. Nú veifar hún Karen Mist og brosir sínu blíðasta, kveður okkur í bili því ferðarlag bíður hennar Karenar Mist ljósberans mikla. (Ragnheiður S. Spence.) Þín Ragnheiður amma. Elsku litla Karen Mist. Mér finnst svo stutt síðan ég sá þig fyrst á fæðingardeildinni. Enda er alltof stutt síðan. Ég man þenn- an dag svo vel og ég var svo heppin að fá að keyra mömmu þína og pabba á fæðingardeildina. Fljótlega eftir að þú komst í heiminn fór ég að undirbúa mig fyrir prófin og hafði svo allt of mikið að gera. Ég reyndi samt að kíkja í heimsókn eins oft og ég hafði tök á og fékk meira að segja einu sinni að passa þig í hátt í tvo tíma. Ég hlakkaði svo til að fá loksins að eyða tíma með þér og fjölskyld- unni um jólin, en það verður bara að bíða betri tíma. Ég efast ekki um að þú hafir það gott núna, enda varstu svo heppin að fá að hvíla hjá langalang-ömmu þinni og afa. Þú fékkst þá að kynnast þeim á undan mér. Það var lögð mikil áhersla á að þú yrðir skírð fyrir jól. Mikið er ég ánægð með að það tókst, enda var þetta fallegasta athöfn sem ég hef upplifað. Þú svafst vært meðan ætt- ingjarnir fengu að halda á þér og sjálf komst ég varla að fyrr en gest- irnir voru farnir, svo vinsæl varstu. Litli engillinn minn. Þú færðir okkur bara hamingju og ég reyni að hugsa um þessar góðu minningar í stað þess að velta mér upp úr ósanngirni lífsins. Við sjáumst síðar meir, en ekki strax. Þín móðursystir, Elín Edda Sigurðardóttir. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011 Lokið er kafla í lífsins miklu bók. Við lútum höfði í bæn á kveðjustund. Biðjum þann Guð, sem gaf þitt líf og tók græðandi hendi á milda sorgarstund. Ó, hve við eigum þér að þakka margt þegar við reikum liðins tíma slóð. Í samfylgd þinni allt var blítt og bjart blessuð hver minning, fögur, ljúf og góð. Okkur í hug er efst á hverri stund ást þín til hvers, sem lífsins anda dró hjálpsemi þín og falslaus fórnarlund. Friðarins Guð þig sveipi helgri ró. (Vigdís Runólfsdóttir.) Guð veri með þér, elsku pabbi, og tengdapabbi, Auður og Níels. „Ætlarðu að koma í saltfiskinn í kvöld?“ varstu vanur að spyrja þegar hringdir til að bjóða mér í mat til ykkar ömmu. Þetta ásamt mörgu öðru mun lifa með mér alla ævi, eins og t.d. veiðiferðirnar í Hofsá og Vesturdalsá, tipptúrarnir á laugardögum og þegar ég fékk að hjálpa þér við að mæla fyrir dýnunum í bátunum þínum áður en þeir voru sjósettir. Þín mildhlý minning lifir, svo margt að þakka ber. Þá bjart og blítt var yfir, er brosið kom frá þér. Þú sólargeisla sendir og samúð, vinarþel. Með hlýrri vinar hendi mér hjálpaðir svo vel. (Guðríður S. Þóroddsdóttir.) Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Höf. ók.) Daníel Jakob. Daginn eftir að þú kvaddir okk- ur varð Þórólfi að orði hvort ég ætlaði ekki í klippingu áður en við færum austur í jarðarförina þína. Ég gat nú ekki annað en brosað. Ég veit vel hvað þú hefðir sagt ef þú hefðir verið hérna hjá okkur, afi minn. Þú hefðir lyft upp auga- brúnum og sagt eins sakleysislega og þér var mögulegt þegar þú varst í þessum ham: „Get ég ekki bara klippt þig?“ Og svo hefðirðu klappað mér á kinnarnar og hleg- ið. Þú varst alltaf svo mikill prakk- ari, afi. Náðum við t.d. einhvern tímann, barnabörnin þín, að kenna þér almennilega að þekkja litina? Nógu mikið reyndum við þó. Og nú þegar við höfum flest náð fullorð- insaldri fannst þér ekki leiðinlegt að segja sögur af tilburðunum. „Jú, víst kann afi minn litina! Hann þekkir allavega svart og hvítt.“ Eða aumingja Auður, sem var búin að gefast upp á kennsl- unni og fór að kalla græn hús blá, svo að afi myndi pottþétt ekki mis- Stefán Jóhannsson ✝ Stefán Jóhanns-son fæddist á Seyðisfirði 12. ágúst 1924. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Seyð- isfirði 10. janúar 2011. Útför Stefáns fer fram frá Seyðisfjarð- arkirkju 15. janúar 2011. skilja neitt. Einnig eru mér ógleymanleg- ir sprengidagar í Bröttuhlíðinni. Amma eldaði dýrindis salt- kjöt og baunir en við krakkarnir biðum í of- væni eftir því að afi færi inn í herbergi og „spryngi“, við mikla kátínu viðstaddra. Ég var satt að segja hissa á því að þú hefð- ir kvatt þennan heim á mánudegi, afi minn. Allir í ættinni vita þetta með mánudaga. Maður byrj- ar ekki á neinu nýju á mánudög- um, hvort sem er að sofa fyrstu nóttina í nýrri íbúð eða sjósetja bát. Þetta lifir áfram í okkur öll- um. En ég veit ekki, kannski er eins gott að enda eitthvað á mánu- degi, eins og stórkostlega ævi. Eft- ir sitjum við og söknum þín sárt. Það er fátt sem ég er jafn stolt af í lífinu og það að kalla þig afa minn. Ég mun standa við loforðið mitt um að lita ekki á mér hárið, í það minnsta þangað til að það verður grátt. Ég mun hugsa til þín þegar sól hækkar á lofti og býr til landa- kort á andlitinu á mér. Guðrún Lísbet. Með Stefáni Jóhannssyni er genginn einn farsælasti brautryðj- andi í íslenskum skipaiðnaði á síð- ustu öld. Hann rak Vélsmiðju Seyðisfjarðar af miklum þrótti um árabil og þar sýndu verkin merkin sem ávallt voru til fyrirmyndar og íslenskum skipaiðnaði til sóma. Stefán var því mjög virtur innan sinnar stéttar og lagði ávallt gott til mála þegar menn báru saman bækur sínar hjá samtökum skipa- iðnaðarins; höfðinginn að austan setti ávallt virðulegan svip á þær samkomur og var hrókur alls fagn- aðar þegar svo bar undir. Samtökin minnast góðs félaga og þakka honum ómetanlegt fram- lag til íslensk skipaiðnaðar. Fyrir hönd Málms, samtaka fyr- irtækja í málm- og skipaiðnaði, Ingólfur Sverrisson. Stefáni Jóhannssyni kynntist ég fyrst er ég kom til vinnu í Vél- smiðju Seyðisfjarðar vorið 1961. Stefán var hæglátur og dagfars- prúður maður með höfðinglegt yf- irbragð. Stefán reykti ákaflega mikið fyrsta árið sem ég var þarna, en hætti því svo alveg. Man ég eitt sinn er Norðmaður var að leita eftir „formanden“ , þurfti að láta „reparere noget“ um borð hjá sér. Eitthvað var ég slappur til skilnings og lék hann þá tilburði reykingamanns svo vel að ég var ekki í vafa við hvern var átt og sótti Stefán án þess að segja hon- um frá leikritinu. Tilsögn Stefáns var ákaflega hnitmiðuð og lagði hann ríka áherslu á að menn skildu hlutina vel áður en hafist væri handa. Að því búnu væri líka óþarfi að vera neitt að drolla. Skemmtilegan sið hafði Stefán þegar hann var að segja fyrir um verkefni, hversu stórt eða lítið sem það var, að biðja menn „að gera þetta nú snöggvast“. Sem dæmi má nefna að smíða splitti í hjól á barnakerru Óla Óla og að lengja Björgu NK. Aldrei man ég eftir að Stefán snupraði mig eða fyndi að þeim verkefnum sem mér voru fal- in, þótt sjálfsagt hefði verið full þörf á stundum. Lét hann aldrei í ljós annað en að hann treysti því að verkefni yrðu leyst fljótt og vel. Á mótunarárum unglings er þessi eiginleiki mikilsverður. Hefur mér seinna á lífsleiðinni því oft komið í hug hvernig þetta eða hitt var leyst í Smiðjunni forðum. Fyrir leiðsögn Stefáns verð ég ævinlega þakklátur. Sendi ég aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hákon Örn Halldórsson. Hér er kvaddur veiðifélagi okkar til margra ára, Villi Þorgeirs eins og hann var kallaður í okkar hópi. Við byrjuðum að fara austur að Klaustri, nánar til tekið að Orr- ustuhól og þar niður í Vatnamótin, þetta var árið 1986. Þangað fórum við margar ferðir á ári í þó nokkur ár. Byrjuðum veiðiárið fyrstu daga í apríl og enduðum í október. Við vorum sex veiðifélagar sem byrj- uðum í þessum veiðihópi. Á leið- inni austur var alltaf komið við hjá Baldri og Helgu á Múlakoti og kölluðu þau okkur vorboðana, því við komum alltaf fyrstu daga í apr- íl ár hvert. Þessar ferðir veittu Villa mikla gleði og ánægju þann tíma sem hann veiddi þarna. Stundum fór Villi með hana Guð- rúnu sína í Vatnamótin og dvöldu þau tvö í veiðihúsinu okkar sem var í eigu Stangaveiðifélags Kefla- víkur. Árið 1989 ákváðum við veiðifélagarnir að það væri gaman að fara í veiðiferð og hafa kon- urnar með okkur. Farið var á sil- ungasvæðið í Vatnsdalsá árið 1990 og hvert ár eftir það og nú síðast 2010. Þessar ferðir veittu Villa og okkur öllum hinum mikla eftir- væntingu ár hvert. Á hverju ári gróðursetti Villi og allur hópurinn tré og nú er kominn dágóður lund- ur við veiðihúsið Steinkot sem við dveljum í, hæstu trén eru um fimm metra há. Eitt árið stakk Villi upp á því að hafa svolítið sprell á kvöldvökum hjá okkur og ákveðið var að hafa tískusýningu. Við strákarnir þurftum þá að út- vega okkur kvenfatnað því við klæddum okkur upp í drag, flík- urnar þurftum við að fela í far- angrinum. Þetta gekk allt vel nema á einu stoppinu á leiðinni norður þurfti eiginkona eins okkar að róta í sínum bíl, fann hún þá hárkollu af gínu og spurði sinn mann hvað þetta væri. Var hann fljótur til svars; þetta hefði orðið eftir af því hann var að lána út- stillingagínu úr búðinni og hefði þetta gleymst! Á þessum tæpu 25 árum hafa orðið nokkur manna- skipti í veiðihópnum en þrenn hjón hafa fylgst að allan tímann. Vilberg Kjartan Þorgeirsson ✝ Vilberg KjartanÞorgeirsson fæddist í Keflavík á lýðveldisdaginn, 17. júní 1944. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut í Reykjavík 8. janúar 2011. Jarðarför Vil- bergs fór fram frá Keflavíkurkirkju 18. janúar 2011. Vottum við Guðrúnu og dætrum og afkom- endum þeirra innileg- ustu samúð. Guðjón Þórhallsson og Guðveig Sigurð- ardóttir, Guðni Birgisson og Elsa Skúladóttir. Nú hefur Villi, fé- lagi okkar, gefið upp sinn síðasta bolta og tapað, eftir hetjulega baráttu, þeirri úrslita- hrinu sem allir heyja í fyllingu tímans. Við félagarnir í Steinunni gömlu munum sakna þessa ágæta drengs sem í nær þrjá áratugi hefur stundað með okkur hina göfugu íþrótt, blak. Á æfingum og í keppni höfum við að sönnu lagt meiri áherslu á að vera með í leiknum en að sigra. En vissulega örlar á sigurvilja og keppnisskapi og þar var Villi alls engin und- antekning. Hann átti það líka til að vera hrekkjóttur, sérstaklega í sturtunni eftir æfingar. Þegar við samherjarnir vorum að þvo sápu úr hárinu vildi stundum til að vatnið hvarf allt í einu eða það varð ískalt. Einnig gekk stundum bölvanlega að losna við sápuna því þá stóð Villi með sápubrúsa og hellti nettri bunu í hárið á okkur meðan við hömuðumst við að skola. Að sjálfsögðu fékk hann þetta allt borgað. Í okkar hópi var haft á orði að sumir ættu aðeins að mæta í sturtuna en sleppa æfing- unni. Í „keppnisferðum“ var hann ljúfur í umgengni og góður félagi og hressti upp á andann með smá glettni og hrekkjum. Í tilsvörum og frásögnum átti hann það til að vera meinfyndinn. Fyrir allmörgum árum fór hann sem lánsmaður á öldungamót aust- ur á firði. Á næstu æfingu á eftir fórum við að forvitnast um gengi Villa og félaga. Hann vildi nú lítið tjá sig um það en sagði þó um sína nýju félaga: „Þeir voru eins og ljósastaurar“ og eftir smáþögn „og það var ekki einu sinni kveikt á þeim“. Villi, við í Steinunni gömlu þökkum þér fyrir samveruna og þykjumst þess fullvissir að þú hitt- ir fyrir þá blakfélaga okkar sem farnir eru yfir í betri veröld. Hjá ykkur verður eflaust glens og gaman, ekki síst í sturtunni. Okkar innilegustu samúðarkveðjur send- um við Guðrúnu, börnum og barnabörnum. Fyrir hönd blakfélaganna í Steinunni gömlu, Ægir Sigurðsson. Með nokkrum orðum viljum við bræðurnir minnast látins félaga okkar, Ottós Einars Jónssonar, sem við kynntumst í Ólafsvík, en Ottó starfaði þar sem múrari og vann annar okkar talsvert með honum. Ottó kom oft á heimili foreldra okk- ar í Ólafsvík og þá var jafnan mikið hlegið og gantast. Gjarnan kom Ottó í kaffi eða mat- artíma og var þá iðulega tekið í spil og mál líðandi stundar rædd af miklum þrótti. Ottó var góður félagi og hafði þann einstæða eiginleika að vera alltaf glaður og hress og sjá jákvæðu hlið- Ottó Einar Jónsson ✝ Ottó Einar Jóns-son var fæddur í Reykjavík 31. desem- ber 1936. Hann lést á Sjúkarhúsi Akraness 30. desember 2010. Ottó var jarðsung- inn frá Borgarnes- kirkju 15. janúar 2011. arnar á öllum málum en einnig var hann mjög ósérhlífinn og bóngóður og þannig minnumst við hans. Það lýsir persónu- leika Ottós vel að þegar hann kom í heimsókn til okkar í sumar, nýstig- inn upp úr erfiðum veikindum og við stóð- um í byggingarfram- kvæmdum að þegar hann var búinn að bjóða öllum góðan dag og hrósa framkvæmdum og dugnaði heimilismanna tók hann sig til og sigtaði nokkrar laganir af sandi, jú svona til að leggja eitthvað til fram- kvæmdanna. Ekki var laust við að þar sýndi hann gamla takta úr múrverk- inu. Við sendum eiginkonu hans og fjöl- skyldu innilegar samúðarkveðjur á þessari stundu. Adolf Steinsson, Hilmar Gunnarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.