Morgunblaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011
Sudoku
Frumstig
3
6 8 7
7 6 5 9
7 3 9
5 8
6 8 3 2
5 7
4 8 3 2
9 6
3 2 1 5
7 5 3 2 4
4 8 7 5 1
6 1 8 7
2
5 6
4
8
2 7 3 1
9 5 6
1 4
7 2 1
6 9
4
1 8 7 3
4 6
5 7
9 6 8
7 6 3 2 1 5 9 4 8
2 8 5 6 4 9 7 3 1
9 4 1 3 8 7 2 5 6
3 9 8 5 2 4 6 1 7
1 7 6 9 3 8 5 2 4
4 5 2 7 6 1 3 8 9
6 2 4 1 9 3 8 7 5
5 1 9 8 7 2 4 6 3
8 3 7 4 5 6 1 9 2
5 7 1 6 4 8 9 3 2
8 2 4 7 3 9 6 1 5
3 9 6 2 1 5 4 7 8
9 1 8 5 6 2 3 4 7
4 6 2 1 7 3 8 5 9
7 5 3 9 8 4 2 6 1
2 3 9 4 5 7 1 8 6
6 4 5 8 9 1 7 2 3
1 8 7 3 2 6 5 9 4
4 1 6 9 7 2 8 3 5
9 3 7 8 5 4 2 6 1
8 2 5 1 6 3 7 4 9
7 5 1 6 3 8 9 2 4
3 8 9 2 4 5 1 7 6
6 4 2 7 1 9 3 5 8
5 9 4 3 2 1 6 8 7
1 6 3 4 8 7 5 9 2
2 7 8 5 9 6 4 1 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 26. janúar,
26. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Og hann sagði við þá:
Hvíldardagurinn varð til mannsins
vegna og eigi maðurinn vegna hvíld-
ardagsins. (Markús 2, 27.)
Orðtakið sýnd veiði en ekki gefinmun fá nýja merkingu þegar ný
sýndarveiðistöng kemur á markað í
sumar hjá japanska leiktækjafram-
leiðandanum Tomy. Um er að ræða
litla stöng með hjóli. Þegar henni er
sveiflað heyrir „veiðimaðurinn“ sýnd-
arlínuna þeytast út af hjólinu og sér
glæsilegt kastið á skjá. Þegar bítur á
agnið kippist stöngin við og „veiði-
maðurinn“ þarf að hafa sig allan við
að hala bráðina inn. Ef fiskurinn
sleppur minnkar átakið.
x x x
Víkverji er ein mesta fiskifæla semsögur fara af. Hann má ekki
koma nálægt á eða vatni, þá hverfur
allur fiskur. Munu íbúar hafs og vatns
aldrei hafa átt annan eins banda-
mann. Víkverji man eftir að hafa
staðið úti í straumharðri á með flugu-
stöng á lofti. Fiskarnir komu og nört-
uðu í stígvélin hjá honum, en litu ekki
við önglinum. Veiðidagana á undan
höfðu fiskarnir keppst við að bíta á og
héldu því áfram veiðidagana á eftir,
en á meðan Víkverji var á staðnum
veiddi enginn neitt.
x x x
Komið hafa fram tillögur um aðkaup Víkverja á veiðileyfum
ættu að vera tilkynningaskyldar til
þess að aðrir veiðimenn ættu þess
kost að forðast þá veiðidaga. Sömu-
leiðis ætti að vera mynd af honum í
hverri höfn þar sem varað væri við
því að ráða hann í róður. Í raun ætti
Víkverji að vera á launum við að
halda sig fjarri öllum fiskimiðum,
veiðivötnum og veiðiám.
Og það þarf vitaskuld ekki að taka
fram að Víkverji hefur ekki verið beð-
inn um að prófa nýja sýndarveiðibún-
aðinn. Hann gerir sér heldur engar
vonir um að verða fengsælli í sýnd-
arveiðiheimum, en í raunveruleik-
anum.
x x x
Það er hægt að njóta þess að verameð öngulinn í rassinum úti í
guðsgrænni náttúrunni, en ekki með
gerviveiðistöng fyrir fram sjónvarps-
skjá á sokkaleistunum í stofunni.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 þjófnað, 4 heil-
næmt, 7 krók, 8 fnykur, 9
dolla, 11 þarmur, 13 spil, 14
heiðurinn, 15 bjartur, 17
skott, 20 brodd, 22 brydd-
ingar, 23 ótti, 24 braks, 25
afkomendur.
Lóðrétt | 1 rengla, 2 ekki
gamall, 3 geðflækja, 4 lof, 5
losuð, 6 sjúga, 10 fýla, 12
þegar, 13 forfeður, 15 legu-
bekkjum, 16 heldur, 18 öldu-
gangurinn, 19 nytjalönd, 20
afurðar, 21 atgervis.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 faðirvors, 8 labbi, 9 teigs, 10 net, 11 sárin, 13 afana, 15
svöng, 18 álaga, 21 Róm, 22 klaga, 23 ættin, 24 hindraðir.
Lóðrétt: 2 afber, 3 iðinn, 4 votta, 5 reika, 6 Olís, 7 assa, 12 inn,
14 fól, 15 sekk, 16 örari, 17 grand, 18 ámæla, 19 aftri, 20 agns.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. 0-0 b5 6. Bb3 Bc5 7. a4 Bb7 8. c3 d6 9.
d4 Bb6 10. He1 0-0 11. Bg5 h6 12. Bh4
exd4 13. cxd4 g5 14. Bg3 Re7 15. Dc2
Rh5 16. Hd1 Rg6 17. Rc3 Rxg3 18.
hxg3 c6 19. d5 Df6 20. dxc6 Bxc6 21.
Bd5 Hac8 22. Bxc6 Hxc6 23. axb5 axb5
24. De2 Hfc8 25. Rd5 Dd8 26. Dxb5 g4
27. Re1 Re5 28. Rd3 Bd4 29. Ha4 Hb8
Staðan kom upp á sterku 10 manna
lokuðu alþjóðlegu móti í Reggio Emilia
á Ítalíu. Sigurvegari mótsins, Azerinn
Vugar Gashimov (2.733), hafði hvítt
gegn heimamanninum Michele Godena
(2.549). 30. Re7+! og svartur gafst upp
enda liðstap óumflýjanlegt. Gashimov
fékk sex vinninga af níu mögulegum
líkt og spænski stórmeistarinn Franc-
isco Vallejo Pons (2.698). Sergei Mov-
sesjan (2.721), David Navara (2.708) og
Vassily Ivansjúk (2.764) deildu þriðja
sætinu með fimm vinninga.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Gamall gúmmískvís.
Norður
♠ÁG962
♥ÁG6
♦103
♣Á103
Vestur Austur
♠74 ♠5
♥5 ♥KD10872
♦D986 ♦G54
♣876542 ♣DG9
Suður
♠KD1083
♥943
♦ÁK72
♣K
Suður spilar 7♠.
Ein frægasta bridsbók allra tíma er
„Right Through The Pack“ eftir Ung-
verjann Robert Darvas og Bretann
Norman de Villiers Hart. Höfundar
gefa íbúum stokksins mál og láta hvert
spil skýra frá eftirminnilegu atviki.
Bókin kom fyrst út árið 1947 og hefur
margoft verið endurútgefin.
Hjartanían er hér sögumaður, en
henni var fórnað í blekkingarskyni á
mikilvægu andartaki. Vestur kom út
með ♣8 og suður átti fyrsta slaginn.
Sagnhafi gerði sér grein fyrir því að
úrslitaslagurinn fengist aðeins með
göldrum. Til að byrja með aftrompaði
hann vörnina og stakk tígul tvisvar í
borði. Tók því næst ♥Á og lét níuna
undir heima. Kláraði svo trompin og
skildi ♣Á-10 eftir í borði! Austur hélt
eftir ♣D-G, þannig að suður fékk tvo
síðustu slagina á ♥4-3.
26. janúar 1875
Hegningarhúsið við Skóla-
vörðustíg í Reykjavík var
tekið í notkun. Fyrsti fanginn
var 22 ára. Hann hafði fengið
sextán mánaða dóm fyrir
þjófnað og tilraun til inn-
brots.
26. janúar 1894
Hið íslenska kvenfélag var
stofnað í Reykjavík. Stofn-
fundinn sóttu um tvö hundr-
uð konur. Þetta hefur verið
talin fyrsta íslenska kvenrétt-
indahreyfingin.
26. janúar 1904
Kvenfélagið Hringurinn var
stofnað í Reykjavík. Stofn-
endur voru 46. Hringurinn er
líknarfélag sem hefur á
seinni árum einbeitt sér að
málefnum sjúkra barna, með-
al annars á Landspítalanum.
26. janúar 1955
Tuttugu og níu mönnum var
bjargað við erfiðar aðstæður
af togaranum Agli rauða sem
strandaði við Grænuhlíð við
Ísafjarðardjúp í aftaka fár-
viðri. Fimm menn fórust. Í
sama veðri fórust tveir bresk-
ir togarar út af Vestfjörðum
með fjörutíu mönnum.
26. janúar 2009
Tilkynnt var að slitnað hefði
upp úr ríkisstjórnarsamstarfi
Samfylkingarinnar og Sjálf-
stæðisflokksins. Ríkisstjórn
Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna tók við í febrúar og
alþingiskosningar voru í
apríl.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Kreppan hefur haft áhrif á alla með einhverjum
hætti. Birgir Reynisson, húsasmíðameistari í
Reykjavík, hefur rækilega fundið fyrir ástandinu
en hann lætur ekki bugast og heldur upp á sex-
tugsafmæli sitt með eiginkonunni og dætrum í
sveitasælunni í dag. „Ég lét mig hverfa, það er
ekkert öðruvísi,“ segir hann. Hann hélt upp á þrí-
tugs- og fertugsafmælið og síðan fóru þau hjónin
til Flórída og Bahamaeyja á fimmtugsafmælinu.
„Við stefndum að því að vera erlendis þegar við
yrðum sextug en kreppan er eins og hún er.“
Birgir segir að nær ekkert sé að gera í bygg-
ingabransanum hjá sér eftir hrun. „Það er allt frosið, ég var með tals-
vert mikið undir og hef tapað óhemju fé.“ Hann bætir við að tíminn
fari í að berjast við bankana og reyna að greiða úr öllum flækjunum.
„Þetta eru ekki flækjur sem eru mér að kenna heldur flækjur sem eru
öðrum að kenna. Við stóðum ágætlega félagarnir en bankarnir eru að
djöflast í okkur.“ Birgir segir að hart sé sótt að þeim en ekki standi til
að gefast upp. „Við höfum þrjóskast við og haldið sjó og við ætlum
ekki að gefa okkur fyrr en í fulla hnefana,“ segir Birgir sem hefur
unnið í byggingabransanum í 45 ár. steinthor@mbl.is
Birgir Reynisson húsasmíðameistari 60 ára
Heldur sjó og gefst ekki upp
Flóðogfjara
26. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.01 0,8 11.13 3,5 17.27 0,8 23.51 3,4 10.27 16.55
Ísafjörður 0.48 1,9 7.07 0,4 13.08 1,9 19.32 0,4 10.52 16.40
Siglufjörður 3.33 1,1 9.25 0,2 15.58 1,1 21.58 0,2 10.35 16.22
Djúpivogur 2.08 0,2 8.10 1,7 14.23 0,3 20.42 1,8 10.01 16.19
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur unnið mikið undanfarið og
langar nú að hvíla þig. Taktu gleði þína því
þú munt sjá að ótti þinn var ástæðulaus.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það þýðir ekkert að djöflast þetta
áfram – enginn, og sérstaklega ekki þú,
mun græða á því. Sá sem hjálpar öðrum
verður að sýna mikinn trúnað.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Leggðu þig fram við að fegra
heimili þitt. Bíddu þess bara sallaróleg/ur
að erfiðleikarnir gangi yfir, þetta er ekkert
sem þú þarft að hafa áhyggjur af.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þetta er góður dagur til hvers konar
rannsóknarvinnu. Mundu að öllu gamni fylgir
nokkur alvara og því skaltu gæta orða þinna.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú færð oft góðar hugmyndir en týnir
þeim jafnóðum niður. Réttur sem þú hefur
aldrei smakkað eða kringumstæður sem þú
hefur aldrei lent í, gefa þér nýjan kraft.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Lestu vandlega öll skjöl sem þú þarft
að skrifa undir. Hver er sinnar gæfu smiður
sannast þessa dagana.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vertu ekki of alvarleg/ur og láttu það
bara eftir þér að njóta augnabliksins. Verk-
efni sem þú tekur að þér á eftir að reynast
drýgra en þú áttir von á.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert að hugsa um of mörg
mál í einu og missir við það alla starfsorku.
Veltu þér ekki upp úr fortíðinni heldur not-
aðu nútíðina til að byggja upp bjarta fram-
tíð.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Líttu á jákvæðar hliðar málanna
og láttu ekkert draga þig niður í neikvæð
viðhorf. Stilltu þig um að eyða um efni fram.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Ef þú hagar þér eins og dóni,
verður komið þannig fram við þig. Til allrar
hamingju er pláss fyrir fleiri en eitt síma-
númer í hraðvalinu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert með ýmsar vangaveltur í
sambandi við ákveðna samstarfsmenn þína.
Fólk tekur eftir þessu og fylgist með verklagi
þínu sem segir allt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Smávegis bjartsýni væri ekki úr vegi,
en reyndu að spenna bogann ekki of hátt.
Svörin munu ekki láta á sér standa.
Stjörnuspá
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is