Eyjablaðið - 17.10.1985, Page 2
2
EYJABLAÐIÐ
EYJABLADID
Ritneínd:
Ragnar Óskarsson (áhm.)
Sveinn Tómasson
Oddur Júlíusson
Edda Tegeder
Siguröur Sigurðsson
Utgefandi: Alþýöubandalagiö í Vestmannaevjum
Prentvinna: EYRÚN h.f. Vestmannaeyjum
Alþýðubandalag
gegn ihaldi
Því hefur stundum verið haldið fram að íslenskir
stjórnmálaflokkar séu allir eins og í raun skipti því litlu
máli hverjir þeirra stjórni landinu. Hér er á ferðinni
fullyrðing sem er langan veg frá því að vera rétt. Að vísu
má segja að ekki sé t.d. mikill munur á íhaldi og
framsóknaríhaldi eins reyndar núverandi ríkisstjórn
hefur best sannað. Hins vegar er grundvallarmunur á
stefnu íhaldsflokkanna og stefnu Alþýðubandalagsins
og það er einmitt sá munur sem sannar að flokkarnir
eru ekki eins og því skiptir miklu máli hver þeirra hefur
afgerandi áhrif á stjórn landsins.
I þessu sambandi skulum við bera saman nokkur
stefnumál Alþýðubandalagsins og Sjálfstæðisflokksins
sem eru höfuðandstæðingar í íslenskum stjórnmáium.
# Alþýðubandalagið hefur ætíð lagt áherslu á að
tryggja launafólki mannsæmandi laun og kaupmáttur
launa hefur reyndar ætíð verið hæstur þegar Alþýðu-
bandalagið hefur setið í ríkisstjórn.
Hver skyldi stefna Sjálfstæðisflokksins hins vegar
vera gagnvart launafólki? Líklega birtist hún einna best í
reynslu þeirri sem íslendingar hafa haft af núverandi
ríkisstjórn. Kaupmáttur launa hefur nefnilega hrapað
jafnt og þétt allt frá því að hún komst til valda, og nú
eftir tveggja ára valdaferil Sjálfstæðisflokksins í ríkis-
stjórn er svo komið að venjuleg íslensk heimili búa við
afar þröngan kost.
# Alþýðubandalagið hefur lagt áherslu á að halda
uppi góðri heilbrigðisþjónustu án þess þó að hún íþyngi
fjárhagslega þeim sem hennar njóta. I þau skipti sem
Alþýðubandalagið hefur farið með heilbrigðismál
hefur náðst allverulegur árangur á þessu sviði.
Hver skyldi stefna Sjálfstæðisflokksins í þessu sam-
bandi vera? Jú, hún miðar að því að láta þá sem helst
þurfa að njóta heilbrigðisþjónustunnar greiða hana
fullu verði, en þarna er einkum um þá að ræða sem öðru
jöfnu bera minnst úr býtum fjárhagslega.
# Alþýðubandalagið hefur lagt áherslu á að allir nem-
endur njóti jafnréttis til náms án tillits til búsetu og
efnahags. Einnig á þessu sviði hefur Alþýðubandalagið
náð verulegum árangri þegar það hefur átt þess kost.
Hver skyldi stefna Sjálfstæðisflokksins í þessu sam-
bandi vera? Forsmekknum höfum við nú þegar kynnst
er stofnaður var einkaskóli í Reykjavík nú í haust.
Sjálfstæðisflokkurinn vill nefnilega færa rekstur skóla
til einkaaðila í sem mestum mæli. Með því leggur
flokkurinn grunn að misrétti nemenda til náms. Fjár-
hagur fólks á sem sé að ráða því hvernig menntun þeir
fá, dýra eða ódýra og í fullu samræmi við markaðs-
lögmálin.
Áfram mætti halda og tína til ýmis stefnumál þessara
tveggja höfuðandstæðinga íslenskra stjórnmála. Niður-
staðan verður ætíð sú sama. Hún sýnir annars vegar að
Alþýðubandalagið hefur sem sitt höfuðmarkmið að
styrkja stöðu þeirra sem vinna hörðum höndum fyrir
daglegu brauði, að tryggja rétt þeirra sem minna mega
sín fyrir yfirgangi peningaaflanna í landinu.
Það eru einmitt peningaöflin sem ráða ferðinni í
Sjálfstæðisflokknum og þau geta aldrei, eðlis síns
vegna, gætt hagsmuna alþýðu manna.
Þess vegna má það ekki gerast að þúsundir launa-
fólks fylki sér um Sjálfstæðisflokkinn því hann er það
afl sem vinnur gegn hagsmunum þess.
Og það er einungis með því aö efla Alþýðubanda-
lagið til áhrifa að launafólk getur vænst öflugs málsvara
gegn fjandsamlegri íhaldsstefnu Sjálfstæðisflokksins.
—R.Ó.
Aðalfundur
kjördæmisráðs
Alþýðubandalagsins
á Suðurlandi
Um s.l. helgi var aðalfundur
Alþýöubandalagsins á Suður-
landi haldinn að Reykholti í
Biskupstungum. Héðan úr
Eyjum sóttu 6 fulltrúar fund-
inn.
Auk venjulegra aöalfundar-
starfa setti kosningaundir-
búningur vegna komandi
sveitarstjórnakosninga sterkan
svip á fundinn.
Garðar Sigurðsson alþingis-
maður flutti ræðu þar sem hann
gerði að umtalsefni stjórnmála-
ástandið í landinu og stöðu
Alþýðubandalagsins í því sam-
bandi.
Kristinn Jóhannsson forseti
bæjarstjórnar á Neskaupstað
flutti fróðlega tölu um undir-
búning vegna sveitarstjórna-
kosninganna og ræddi sérstak-
lega þá reynslu sem Norð-
firðingar hafa af áratuga
meirihlutastjórn sósíalista.
A fundinum voru síðan rædd
fjölmörg önnur mál er varða
Suðurlandskjördæmi og skip-
uðu atvinnumál stóran þátt í
þeirri umræðu.
Fundurinn ákvað að viðhafa
forval vegna næstu Alþingis-
kosninga í samræmi við þær
reglur sem samþykktar hafa
verið um forval Alþýðubanda-
lagsins á Suðurlandi.
Ný stjórn var kosin á fund-
inum og hana skipa nú: Elín
Jónsdóttir, horlákshöfn, for-
maður. Kolbrún Skarphéðins-
dóttir, Stokkseyri, varafor-
maður og gjaldkeri. Margrét
Guðmundsdóttir, V-Skafta-
fellssýslu, meðstjórnandi.
I stjórnmálanefnd kjör-
dæmisráðs voru kosnir tveir
fulltrúar úr Vestmannaeyjum,
þeir Garðar Sigurðsson og
Guðmundur Jensson.
Þá hlutu þessir tilnefningu í
miðstjórn Alþýðubandalags-
ins: Ragnar Óskarsson, Vest-
mannaeyjum, Sigurður R.
Sigurðsson, Selfossi, Elín
Oddgeirsdóttir úr uppsveitum
Árnessýslu.
I uppstillingarnefnd vegna
Alþingiskosninga var Sveinn
Tómasson kosinn fulltrúi Eyja-
manna.
Aðalfundurinn tókst í alla
staði vel og mikill og góður
baráttuhugur ríkti.
Hver man ekki eftir fögru kosningaloforðunum: HREINN BÆR OKKUR KÆR. Hvað varð um þau
loforð?