Morgunblaðið - 10.02.2011, Síða 14

Morgunblaðið - 10.02.2011, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Mótmælin íaraba-löndunum hafa komið vest- rænum ríkjum í vandræði. Einræð- isherrar, sem notið hafa stuðnings þeirra, hrökklast ýmist frá eða eru valtir í sessi. Zine El Abidine Ben Ali var í miklum metum hjá frönskum stjórnvöldum þau 23 ár, sem hann var við völd í Túnis. Þegar Ben Ali flúði sneru Frakkar hins vegar við honum baki. Nicolas Sarkozy, sem sagði 2008 að Frakkar væru helsti bandamaður Túnisa, neitaði Ben Ali um lendingarleyfi í Frakklandi. Í gær birtust fréttir um að frönskum ráðherrum hefði ver- ið bannað að fara í sumarfrí til útlanda til að forðast vand- ræðalegar uppákomur. Fransk- ur almenningur er ekki sérlega uppveðraður af því að Francois Fillon forsætisráðherra skuli hafa farið í áramótaferð til Níl- arbakka í boði Hosnis Mub- araks og Michele Aliot-Marie, utanríkisráðherra landsins, skuli hafa þegið boð um að nota einkaflugvél túnísks kaupsýslu- manns með tengsl við Ben Ali í desember þegar uppreisnin var hafin. „Það er lykilatriði að við ýt- um undir útbreiðslu sannrar siðferðismenningar í opinberu lífi í Frakklandi,“ sagði í yf- irlýsingu frá Sarkozy. „Það sem tíðkaðist fyrir nokkrum ár- um getur nú hneykslað.“ Mubarak hefur verið náinn bandamaður bandarískra stjórn- valda, sem hafa lit- ið á hann sem grundvöll þess að tryggja stöðugleika í Mið-Aust- urlöndum, sér- staklega í sam- bandi við Ísrael. Mubarak er ekki versti einræð- isherra sögunnar, en hann er heldur enginn lýðræðissinni og hefur óhikað beitt ofbeldi til að skjóta andstæðingum sínum skelk í bringu. Stjórnarhættir Mubaraks hafa ekki verið í samræmi við málflutning Bandaríkjamanna um lýðræði, en hann hefur ver- ið þeim nytsamlegur. Þegar þrengdi að Mubarak leið ekki á löngu áður en Bandaríkjamenn sneru við honum baki. Mubarak er ekki fyrsti ein- ræðisherrann, sem Bandaríkja- menn snúa baki við. Manuel Noriega, einræðisherra í Pa- nama, endaði í bandarísku fangelsi. Saddam Hussein Íraksleiðtogi var látinn óáreitt- ur á meðan hann réðst á þegna sína með efnavopnum, en þegar hann ógnaði valdajafnvæginu snerist dæmið við og hann end- aði í gálganum. Hermt er að Franklin D. Roosevelt Bandaríkjaforseti hafi sagt um Anastasio Somoza, sem var einræðisherra í Ník- aragva á fyrri hluta liðinnar aldar og fram yfir miðbik henn- ar, að hann „kynni að vera tík- arsonur, en hann er okkar tík- arsonur“. Raunsæir leiðtogar fara raunsæjar leiðir. Stjórnarhættir Mub- araks hafa ekki ver- ið í samræmi við málflutning Banda- ríkjamanna um lýð- ræði, en hann hefur verið þeim nytsam- legur. } Hvern á að styðja? Íslendingar hafalanga reynslu í því að stofna til elt- ingaleiks á milli launa og verðbólgu. Ekki verður sagt að sú reynsla sé góð. Áttundi og níundi áratugurinn fóru að mestu í þennan þjóð- arsamkvæmisleik. Helstu leik- ararnir náðu miklum árangri, hækkuðu laun um nokkur þús- und prósent á keppnistímanum, en þjóðfélagið tapaði miklu á öllu saman. Forsendur leiksins voru ekkert flóknar. Væru laun hækkuð meira en atvinnulífið réð við fór verðbólgan af stað. Hún sá til þess með aukaverk- unum sínum að sá kaupmáttur sem atvinnulífið hefði sann- anlega getað staðið undir komst aldrei til launþeganna. Hann fór í að bregðast við afleiðingum verðbólgunnar. Eftir tvo áratugi voru hin ein- földu sannindi orðin nægj- anlega mörgum nægjanlega ljós. Þá hófst jöfn og góð kaup- máttarsókn almennings og verðbólgan varð viðráðanleg. Nú virðist leiðbein- ingabæklingurinn með leikreglunum hafa týnst einhvers staðar í þeim efna- hagslegu ólátum sem urðu. Það verð- ur endilega að finna hann aftur. Hin efnahagslegu ólæti voru síst af öllu launþegum að kenna. Þeir sem valdamestir voru í samtökum atvinnulífsins á ólátatímanum voru á hinn bóg- inn fjarri því að vera eins sak- lausir. Ábyrgð þeirra var þvert á móti mjög mikil. Svo slæmt sem það var, þá geta menn ekki annað gert en að horfast í augu við að engum verður greiði gerður með því að þjóðin hrökkvi í hjólfarið frá verðbólguárunum. Þá var mikið spólað en lítt mjakast úr stað. Það er örugglega hollara fyrir alla ef menn ná saman um sann- gjarna samninga sem fá haldið og geta staðist lengur en skem- ur. Það stuðlar að uppbyggingu og framförum. Það er nógu mik- ið sem vinnur þar á móti um þessar mundir. Menn geta spólað og spólað án þess að mjakast áfram sem neinu nemur} Reynslan er til Þ essa dagana birtast pistlar frá sér- lega rökvísum og hnyttnum karl- mönnum, sem tjá sig um jafnrétti kynjanna. Pistlahöfundarnir kall- ast Öðlingar og er það réttnefni. Öðlingarnir koma víða að, þeir eru á mismun- andi aldri, gegna ýmsum störfum og hafa mis- marga fjöruna sopið. En eitt virðast þeir eiga sameiginlegt; að hafna fyrirframgefnum hug- myndum og klisjum um hlutverk kynjanna. Sannarlega er tímabært að karlar stígi fram á ritvöllinn og tjái sig um þennan málaflokk, sem gjarnan er litið á sem einkamál kvenna. Það er með ólíkindum að einhverjir skuli telja að það komi ekki öllum við hvort allir þegnar þjóðfélagsins njóti sömu réttinda í orði og á borði. Impri einhver á því að hægt miði í jafnrétt- ismálum, er viðkvæðið gjarnan að það sé engum nema konunum sjálfum að kenna. Þær eru ekki nógu klárar / duglegar / ýtnar / sniðugar / gráðugar / menntaðar... þær eru bara ekki nógu eitthvað. Stundum er ástæðan líka sú að konur eru of mikið af einhverju; þær eru of klárar / duglegar / ýtnar / sniðugar / gráðugar eða of menntaðar. Þær þurfa bara að breyta sér og laga þetta og þá verður allt gott. En sem betur fer er til fólk sem lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjaness í gær, þegar konu voru dæmdar miskabætur vegna kynferð- islegrar áreitni yfirmanns hennar í starfi. Að mati lög- fræðings BSRB er um tímamótadóm að ræða. Átakanlegt er að lesa málsskjölin, þar sem konan lýsir hegðun þessa yfirmanns síns og því einelti sem hún varð fyrir á vinnustað sín- um í kjölfarið. Áreitnin, sem dæmt er fyrir, átti sér stað í vinnuferð í sumarbústað, þar sem yfirmað- urinn tók upp á því að fara allsnakinn í heitan pott og hvatti síðan konuna til að koma ofan í til sín. Ekki lét hann þar við sitja, heldur rudd- ist inn í svefnherbergi hennar um nóttina. Fyr- irtækið vildi ekki viðurkenna að um kynferð- islega áreitni væri að ræða. Konan var færð til í starfi og ábyrgð hennar minnkuð. Þessar breytingar voru gerðar af yfirmanni hennar, hinum sama og svamlaði nakinn um í heitum potti fyrir framan konuna og hvatti hana til að koma ofan í til sín. Margir hafa gefist upp af minna tilefni, en konan sótti málið ótrauð áfram, þrátt fyr- ir ýmsa erfiðleika sem hún þurfti að glíma við og voru bein afleiðing atviksins, samkvæmt staðfestingu lækna. Samfélagið stendur í þakkarskuld við fólk, sem leitar réttar síns, þrátt fyrir að á móti blási kröftugir vindar. Sambærileg atvik hafa líklega átt sér stað áður og eiga sennilega eftir að koma upp aftur. Það er gott af því að vita fyrir okkur öll, bæði karla og konur, að nú er búið að senda skýr skilaboð um að við líðum ekki hegðun af þessum toga. Kynferðisleg áreitni er ljótur blettur á samfélaginu sem ber að afmá með öllum ráðum. Þessi dómur verður von- andi til þess að svo verði. annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Tímamótadómur fyrir okkur öll STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon mun þar á.“ Díoxín er flokkað sem varasamt eiturefni og sýnt hefur ver- ið fram á að það getur valdið krabba- meini í tilraunadýrum og haft áhrif á þroska taugakerfis. Haraldur leggur þó áherslu á að erfiðara hafi verið að sýna fram á eituráhrif í mönnum en dýrum. Talið er að um 90% af díoxíni sem maðurinn fær í sig berist með fæðunni og er díoxín að finna í öllum matvælum um allan heim, í mismiklu magni. Nær ómögulegt er að fjar- lægja efnin úr matnum þegar þau eru komin inn í fæðukeðjuna og er al- mennt viðurkennt að besta leiðin til að minnka díoxín í fæðu sé að koma í veg fyrir losun út í umhverfið. Mælingar Matvælastofnunar benda m.a. til þess að lítill hluti af rúmlega sex tonnum af kjöti frá Skut- ulsfirði sem fór á markað hafi verið yfir mörkum í díoxíni. Haraldur segir að hinn almenni neytandi þurfi þó litl- ar áhyggjur að hafa enda séu skaðleg áhrif helst hugsanleg með því að borða síendurtekið mat með miklu díoxíni yfir langt tímabil. „Þó að þetta dreifist hér á markaðnum og einhver borði það þá er það stakur atburður, sem gerist bara einu sinni og ekki meir, og það mun ekki hafa nein áhrif. Fólk þyrfti að borða þetta alla daga.“ Díoxín hefur aldrei áður verið mælt í fólki á Íslandi, en m.a. verður byggt á blýmælingum á hári og á blóðsýnum. Vænta má að minnst tvo mánuði taki að fá fram niðurstöður. Mat á heildarlosun díoxíns árið 2008 Heimild: Umhverfisstofnun I-TEQ grömm Áramótabrennur 1,8 Samgöngur 0,1 Stóriðja 0,7 Sjávarútvegur 0,7 Sorpbrennsla og orkuiðnaður 0,6 Uppsöfnun díoxíns um allt land skoðuð FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is T il stendur að ráðast í heildarskoðun á upp- söfnun díoxíns á landinu öllu frá öllum mögu- legum uppsprettum. Að sögn Kristínar Lindu Árnadóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar, verða áramótabrennur og iðnaður sér- staklega skoðuð í því samhengi. „Þetta er mengun sem safnast saman yfir langan tíma, svo það er ekki talin bráðahætta, en við verðum að horfast í augu við það hvar díoxín myndast,“ segir Kristín. Hætt er við að díoxín safnist upp í jarðveginum þar sem brennur eru haldnar árlega og verða því tekin sýni þar en einnig í nágrenni við álverin í Hvalfirði og Reyðarfirði svo dæmi séu tekin. Umhverfisstofnun lagði til í jan- úar að reglur yrðu hertar um eldri sorpbrennslur, sem starfað hafa á undanþágu frá reglum um losun díox- íns. Þeirri tillögu verður nú hraðað að ákvörðun umhverfisráðherra. Sorbrennslunni í Skutulsfirði var lokað í janúar en í Vest- mannaeyjum, á Kirkubæjarklaustri og Svínafelli er enn starfsemi. Um- hverfisstofnun er heimilt samkvæmt lögum um hollustuhætti og meng- unarvarnir að stöðva til bráðabirgða starfsemi sem alvarleg hætta stafi af. Kristín ítrekar hins vegar að af díoxíni stafi margra ára uppsöfnuð hætta og því sé ekki um daga- spursmál að ræða. Umhverf- isráðherra óskar þó eftir því að sveit- arfélögin hætti eða dragi verulega úr sorpbrennslu þar til niðurstöður rannsókna liggja fyrir. Ólíklegt að heilsu sé ógnað Ekkert bendir við fyrstu sýn til þess að heilsufari íbúa í nágrenni gömlu sorpbrennslanna sé ógnað vegna díoxínmengunar. Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segir að engu að síður verði heilsufar íbúa rannsakað til að taka af allan vafa. „Fyrst og fremst viljum við taka stikkprufur til að sjá hvort þetta sé raunverulega í mannfólkinu, en við eigum ekki von á því. Við höfum verið að skoða þær sjúkdómsgreiningar sem berast til Landlæknisembætt- isins, og tökum þá alla hugsanlega sjúkdóma sem díoxín gæti haft áhrif á og berum niðurstöðurnar saman við aðra landshluta og sjáum ekki neinn Hvað er díoxín? Þrávirkt lífrænt mengunarefni sem hefur áhrif á umhverfið og heilsu almennings. Díoxín mynd- ast sem aukaafurð við t.d. málm- iðnað og sorpbrennslu en geta einnig myndast í náttúrunni, s.s. við eldgos og gróðurelda. Hvernig berst það í fólk? Díoxín-efni dreifast með lofti, vatni og jarðvegi og finnast um allan heim í öllum matvælum, en í mismiklu magni. Til mannfólks berast þau fyrst og fremst með neyslu dýraafurða. Dýr taka díoxín upp með fæðu, jarðvegi og seti og það sest í líkamsfitu þeirra. Þannig safnast efnið fyrir í fæðukeðjunni. Hver eru áhrifin á heilsuna? Díoxín-efni hafa ekki áhrif á heilsu okkar samstundis. Mesta áhættan stafar af því að borða mat með miklu innihaldi díoxína á löngu tímabili. Staðfest er að efnin geta m.a. valdið krabba- meini í tilraunadýrum, en menn virðast þó ekki jafnviðkvæmir fyrir áhrifum þeirra og til- raunadýr. Spurt&Svarað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.