Morgunblaðið - 10.02.2011, Blaðsíða 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MIG LANGAR AÐ HITA
UPP MEÐ ÞVÍ AÐ URRA
ÖRLÍTIÐ FYRST
HEFÐIRÐU
EKKI ÁTT AÐ VERA
BÚINN AÐ ÞESSU
ÁÐUR EN ÉG
MÆTTI?
FÓR
PABBI ÞINN
MEÐ ÞIG Á
MARGA LEIKI
Í ÁR?
JÁ, ÞÓ NOKKUÐ
MARGA
ÉG HELD AÐ HANN
HAFI MJÖG GAMAN AÐ ÞVÍ
AÐ TAKA MIG MEÐ...
ÉG ER
EINSKONAR INN-
BYGGÐUR VINUR
ÞAÐ
EINA SEM ÞÚ
GERIR ER AÐ
LESA BÆKUR!
HVAÐ
FINNST ÞÉR
AÐ ÉG ÆTTI
AÐ VERA AÐ
GERA?
UH... LEIKA ÞÉR Í
STRÍÐSLEIKJUM, KLIFRA Í
TRJÁM, ELTA FROSKA,
GANGA Á FJÖLL EÐA SYNDA...
GOTT
OG VEL ÉG ÆTLABARA AÐ FÁ AÐ
KLÁRA BÓKINA
FYRST
ÞEIR
ERU FARNIR
AÐ SETJA
LITA-
SPRENGJUR Í
MATAR-
KÖRFUR
HÉRNA ÁÐUR FYRR GAT ÉG
BORÐAÐ HVAÐ SEM ER - PIZZUR,
SNAKK, NAMMI OG GOS - ÁN ÞESS
AÐ FITNA NOKKUÐ
EN NÚ ER ÉG
FARINN AÐ FITNA ÞRÁTT
FYRIR AÐ HAFA EKKI BREYTT
MATARÆÐINU
ÞÚ
VIRÐIST EKKI
SÍNA MÉR NEINA
SAMÚÐ
ÞAÐ ER
EKKI SATT,
MÁ BJÓÐA ÞÉR
BITA AF
SELLERÍINU
MÍNU?
ÞAÐ
VAR EINS
GOTT AÐ ÉG
SETTI SENDI Á
WOLVERINE
ÞVÍ MIG
GRUNAR AÐ
HANN SÉ Í
VANDRÆÐUM
ÞAÐ ER EKKI
FALLEGT AF ÞÉR AÐ SKERA
Í SUNDUR EINN AF
ÖRMUNUM MÍNUM!
ENGAR
ÁHYGGJUR!
NÆST SKAL ÉG EKKI
SKILJA HINA ÚTUNDAN!
Sviðsett blekking
á náttúrunni
Slík vitleysa, sem
dýralífsmyndir í dag
sýna, er alltaf meira
eða minna sviðsett og
er mönnum talin trú
um að verið sé að
skýra frá eðli og gangi
mála á fræðilegan
hátt. Villtum dýrum
er hleypt lausum á
varnarlausa bráð und-
ir rangfærslum um
eðlilegar kring-
umstæður. Ætlast er
til þess af áhorfand-
anum að hann gæli við
þá tilhugsun að rétt sé á haldið, jafn-
vel þótt hann eigi í mesta basli við að
hafa úthald í þetta endalausa villta
sjónarspil. Framsetningin gefur til
kynna að þarna fari fram raunveru-
leg skoðun á rakaleysunni.
Sá lærdómur sem
draga má af framsetn-
ingunni um miskunn-
arleysi vegna eðlis- og
náttúrugrimmdar,
sem sýnd er á þennan
hátt, er ekki raunhæf
uppsetning á líffræði-
legum aðstæðum og
síður en svo barnvæn-
leg. Ég skora á okkur
sem menningarlega
siðað samfélag að láta
af eigin grimmd þessa
lífsviðhorfs til frásagn-
ar, þ.e. hins villta hús-
dýragarðs og halds
villtra dýra, eðlis síns
vegna.
Edda Geirs.
Ást er…
… að geta ekki
sleppt takinu.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9,
gönguhópur kl. 10.30, vatnsleikfimi kl.
10.45, myndlist og prjónakaffi kl. 13,
bókmenntaklúbbur kl. 13.30, jóga kl. 18.
Árskógar 4 | Handavinna/smíði/
útskurður kl. 9. Botsía kl. 9.30. Helgi-
stund kl. 10.30. Myndlist kl. 13.30.
Bókasafn Kópavogs | Í dag kl. 17.15
verður annað erindið af fjórum um Guð í
Bókasafni Kópavogs. Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir flytur erindið, umræður,
enginn aðgangseyrir.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndlist, bókband,
handavinna.
Dalbraut 18-20 | Stóladans kl. 10.30,
bókabíll kl. 11.15, samverustund með sr.
Bjarna Karlssyni kl. 15.15.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8.
Digraneskirkja | Leikfimi kl. 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
kl. 13.
Félag kennara á eftirlaunum | Bók-
menntaklúbburinn kl. 13.30 í Kenn-
arahúsinu við Laufásveg.
Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9, há-
degismatur kl. 12, handavinna kl. 13,
hugleiðsla kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Ramma-
vefnaður kl. 9.05, leikfimi kl. 9.15,
málm- og silfursmíði kl. 9.30, bókband
kl. 13, bingó kl. 13.30, myndlistarhópur
kl. 16.10.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa-
vinna kl. 9, ganga kl. 10. Brids og
handavinna kl. 13, jóga kl. 18.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Qi-gong kl. 8.15, vatnsleikfimi í Mýrinni
kl. 11.15, handav./karlaleikfimi kl. 13,
botsía kl. 14, kóræfing kl. 16.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, qi-gong
kl. 10, leikfimi kl. 11.20, glerskurður kl.
13, félagsvist og pílukast kl. 13.30.
Næsti dansleikur 11. febr. Þorvaldur
Halldórsson leikur. Sungið með hjartanu
17. febr. kl. 13.30, við undirleik Þórðar
Marteins, ásamt gamanmálum.
Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10.
Hannyrðir kl. 13 hjá Sigrúnu. Félagsvist
kl. 13.30, kaffisala.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir. Á mánu-
dögum og þriðjudögum er m.a. kennt
að prjóna lopapeysur. Ókeypis tölvu-
kennsla alla mánudag kl. 13.15. Hlát-
urjóga alla þriðjudag kl. 13.30. Ný dag-
skrá liggur frammi.
Íþróttafélagið Glóð | Sundlaug Kóp.:
Ganga kl.16.30. Hringdansar í Kópa-
vogsskóla kl. 17.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er
sundleikfimi kl. 9.30 og listasmiðja er
opin kl. 13.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hand-
verks- og bókastofa opin kl. 13, botsía
kl. 13.30, Á léttum nótum, þjóðlaga-
stund kl. 15.
Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10, Handa-
vinna kl. 9/13. Leirlistarnámskeið kl. 9-
12 og 13-16. Útskurður kl. 9.
Vesturgata 7 | Handavinna, gler-
skurður kl. 9.15, ganga kl. 11.30, kerta-
skreytingar kl. 13, kóræfing kl. 13, leik-
fimi kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Bókband og
postulínsmálun kl. 9, morgunstund kl.
9.30, botsía kl. 10, upplestur kl. 12.30,
handavinnustofan opin eftir hádegi, spil-
að, stóladans kl. 13, kvikmyndasýningar
annan hvern fimmtudag kl. 13.30.
Það er alltaf fagnaðarefni að fábréf frá ljóðelskum lesendum
Vísnahorns. Grétar Snær Hjart-
arson skrifaði þættinum:
„Mikið hef ég gaman af að lesa
vísnahorn Morgunblaðsins. Ég var
skrifstofustjóri hjá klæðaverslun
þar sem saumuð voru föt á flesta þá
sem klæddust einkennisfötum, lög-
regluþjóna, tollverði, skipstjórn-
armenn og presta, svo eitthvað sé
nefnt.
Lárus Salómonsson lög-
regluþjónn átti oft leið á skrifstof-
una og ræddum við tíðum um skáld-
skap. Eitt sinn sagði hann mér frá
vísu sem hann hafði gert, skrifaði
hana á blað og fékk mér. Blaðið
virðist mér glatað, en hygg að ég
muni vísuna nokkuð rétta svona:
Lítið galt mér lífið allt
liggur halt við brautin,
hef þó alltaf hundrað falt
herjað salt í grautinn.
Faðir minn var sáttasemjari í
vinnudeilum á Vestfjörðum. Baldur
nokkur var í samninganefnd verka-
lýðsfélagsins, skapbráður. Ein-
hverju sinni rauk Baldur á dyr af
því að honum hafði verið borið á
brýn að hann stæði ekki við orð sín.
Kvaðst hann ekki mæta á fund, sem
fyrirhugaður var morguninn eftir.
Baldur mætti hins vegar með fyrstu
mönnum daginn eftir. Þá stakk
sáttasemjarinn að honum þessari
vísu:
Á Baldurs loforð líta ber
sem léleg upp til hópa,
svo að jafnvel sannað er
hann svíkist um að skrópa.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af lífi og salti í grautinn
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100