Morgunblaðið - 10.02.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.02.2011, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011 ✝ Jón Valgeir Gunn-arsson fæddist á Landspítalanum í Reykjavík 27. ágúst 1965. Hann lést á gjörgæsludeild Land- spítalans í Fossvogi 26. janúar 2011. Foreldrar hans eru dr. Ella Kolbrún Kristinsdóttir, dósent, f. 29.1. 1940, og Gunn- ar Friðbjörnsson, arkitekt, f. 7.9. 1940. Systir hans er Freyja Björk Gunnarsdóttir, f. 16.9. 1970, maður hennar er Björn Gunnar Birgisson, f. 2.7. 1969. Synir Jóns eru Jón Kristófer Stef- arnesskóla, Laugalækjarskóla og lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík vorið 1986. Jón lauk prófi frá IHHTI, School of Hotel Management í Sviss vorið 1990. Jón starfaði við veit- ingarekstur aðallega hjá Hard Rock Café í Reykjavík, London, París og Suður-Afríku á árunum 1990-1999. Jón flutti til Íslands árið 1999 og hóf störf sem framkvæmdastjóri á Sól- on Íslandus og síðar Hard Rock Café í Reykjavík. Í febrúar 2003 greindist Jón með bráðahvítblæði, fór í mergskiptaaðgerð til Svíþjóð- ar sumarið 2003. Hann þurfti að kljást við ýmsar erfiðar aukaverk- anir eftir það og náði aldrei fullri starfsorku. Þrátt fyrir það lét hann langþráðan draum sinn rætast og opnaði kaffi- og veitingahúsið The Muffin Bakery haustið 2008, sem hann rak allt til dauðadags. Jón Valgeir Gunnarsson verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag, 10. febrúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. án Jónsson, f. 15.11. 1990, og Kristinn Karl Jónsson, f. 25.3. 2002. Móðir Kristófers er Johanna Grufman, f. 29.7. 1969, sambýlis- kona árin 1990-1998, móðir Kristins Karls er Guðrún Antons- dóttir, f. 9.2. 1975, eiginkona árin 2002- 2004. Jón var búsettur með foreldrum sínum í Nottingham, Eng- landi frá sex vikna aldri en þau fluttu heim til Íslands haustið 1974 þegar Jón var níu ára gamall. Fyrstu 5 ár skólagöngunnar voru því í Englandi. Jón var í Laug- Elsku Jón. Ég mun aldrei gleyma þér, elsku frændi. Þú ert ótrúleg hetja og ert búinn að ganga í gegnum ótrúleg- ustu hluti á ævinni. Þú ert alveg yndislegur og ég get ekki einu sinni lýst því hvað ég sakna þín óendanlega mikið. Eins og flestir vita þá hafa síðustu ár ekki verið þér auðveld en á þessum síðustu árum hefurðu fengið að sjá okkur krakk- ana vaxa úr grasi, opna kaffihús þó að það hafi verið þér frekar mikil togstreita en þú fékkst allavega að prófa það áður en þú kvaddir þennan heim. Þú hefur átt fullt af góðum minningum með okkur fjölskyldunni sem eru alveg ómetanlegar. Þetta gerðist allt svo fljótt og við vorum öll svo óviðbúin. Pabbi kom að sækja mig í skólann og fór með mig heim til mömmu og Bjarka. Síðan fékk ég þær fréttir að þú værir dá- inn, bara farinn frá okkur á augna- bliki. Ég finn svo til í hjartanu, er máttlaus í öllum líkamanum og lang- ar virkilega að vakna af þessum hræðilega draumi. Það breytist ekk- ert sama hversu oft og fast ég klíp í höndina á mér. Þú hefur alltaf verið algjör grallari og svolítill stríðnispúki, kallaðir mig alltaf Rakel rugludall og ég þig Jón rugludall. Manstu Jón þegar þú varst alltaf að spyrja mig hvort ég væri ekki komin með nýjan kærasta og hvaða strákar væru sætastir o.s.frv.? Ég sagði þér yfirleitt ekki mikið og þá komst þú alltaf með hug- myndir sem mér leist reyndar misvel á. Þú varst líka alltaf að segja okkur sögur frá gömlu kærustunum þínum. Amma sagði mér svo sæta sögu af þér í gær. Þetta var úti í Englandi þegar mamma var nýfædd. Þú sagð- ir að allir mættu koma að sjá nýju litlu systur þína fyrir 1 pens. Það myndaðist fljótt röð fyrir utan húsið ykkar og svo fylgdirðu hverjum og einum að mömmu og leyfðir þeim að sjá hana. Þú hefur greinilega verið mjög stoltur af henni og alltaf hef- urðu verið jafn sniðugur og elskuleg- ur. Viltu gera það fyrir mig að muna eftir okkur, muna eftir öllu þessu góða en ekki endilega þessu slæma? Viltu lofa mér því að vera hamingju- samur þar sem þú ert núna og passa upp á okkur hin? Viltu vaka yfir mér og öllum sem þér þykir vænt um? Þú ert algjör æðibiti, Jón minn, og ég vona að þér líði vel þar sem þú ert núna. Kannski einhvern tímann mun ég hitta þig aftur en þá máttu ekki fara neitt því ég gæti ekki hugsað mér að missa þig tvisvar. Rakel Björk Björnsdóttir. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Nú kveðjum við kæran vin sem dó skyndilega þann 26.janúar síðastlið- inn. Við kynntumst Jóni Valgeiri þeg- ar systir hans Freyja varð tengda- dóttir okkar og viljum þakka fyrir góðar stundir með honum og sonum hans á liðnum árum. Við minnumst allra jólaboða og áramótaveislna og sumarbústaða- ferðanna með allri fjölskyldunni með sorg og söknuði í hjörtum okkar. Kristófer og Kristinn, Ella og Gunnar, Freyja, Björn, Rakel og Bjarki. Missir ykkar er mikill. Við sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur með kvæðinu Mannssálin eftir Guttorm J. Guttormsson skáld í Kanada, skráð á minningarstein hans. Mannleg sál á ei morgun né kvöld upphaf né endi. Hún er eilíf, ótakmörkuð sem algeimsrúmið hvorki saklaus né sek, hún er sjálfur guð. Afi og amma á Valló, Hildigunnur og Birgir. Elsku Jón, yndislegi bróðir og vin- ur. Ég kveð þig með óbærilegri sorg og trega. Við vorum alla tíð svo náin og góðir vinir. Þú varst stóri bróðir minn sem verndaðir mig og passaðir þegar við vorum börn en urðum betri og betri vinir þegar við uxum úr grasi. Minningarnar eru svo margar og góðar, ég hef alla tíð fengið að fylgja þér á gleði- og sorgarstundum og þær minningar eru svo dýrmætar í dag. Ég er svo þakklát fyrir að hafa getað verið merggjafi þinn og lífgjafi og Guð einn veit að ég vildi að ég hefði getað gert meira. En hugsunin um að blóðið mitt sem rann í þér gaf þér þó rúm sjö ár með okkur og elsku strákunum þínum veitir mér nokkra huggun. Þó að þessi ár hafi verið þér oft erfið eru þau svo dýr- mæt. Þú náðir að fylgja elsku Krist- ófer þínum og horfa á hann útskrif- ast sem stúdent, breytast í ungan mann og vinna þér við hlið á kaffi- húsinu þínu. Þú fékkst tækifæri til þess að vera með elsku Kristni þín- um og sjá hann þroskast og dafna í þann flotta og skarpa strák sem hann er í dag. Þú lést líka langþráð- an draum þinn um eigin rekstur ræt- ast þegar þú opnaðir kaffihúsið þitt í Hamraborginni. Við Bjössi, Rakel og Bjarki eigum svo margar dýrmætar minningar um þig og ykkur og nú er- um við svo þakklát fyrir þessa tvo mánuði þar sem þú opnaðir heimili þitt og við bjuggum öll sjö saman í íbúðinni þinni í Lyngmóum. Elsku hjartans Jón minn, mín eina huggun er að nú líður þér vel á sál og líkama og minning þín lifir í yndis- legu drengjunum þínum sem við Bjössi elskum eins og okkar eigin börn. Það máttu vita að heimili okkar verður þeim alltaf opið. Elsku Kristófer og Kristinn, mamma, pabbi, elsku Bjössi minn, Rakel og Bjarki, Guð gefi okkur styrk til þess að halda áfram. Elsku Jón minn, minning þín mun ávallt lifa í hjörtum okkar. Þín systir, Freyja Björk Gunnarsdóttir. Hetjur birtast okkur í mismun- andi myndum en alltaf er um sjald- gæft fólk að ræða. Það eru hetjurnar sem við kynnumst gegnum fjölmiðla sakir afreka þeirra er hafa verið fréttnæm. En svo eru hinar, sem við heyrum minna og stundum ekkert um, sem hafa með viðbrögðum sín- um við skelfilegum aðstæðum ekki síður sýnt hvað sannur hetjuskapur er. Jón Valgeir var þannig maður og hann skilur eftir djúp spor í huga mér þótt kynni okkar væru afar lítil og þá að langmestu gegnum fá sím- töl. Hann barðist við krabbameins- bölið og alvarlega sjónskerðingu sem því fylgdi í mörg ár af einstöku æðruleysi og fádæma hörku. Sat ekki heima og horfði í gaupnir sér heldur lagði allt það þrek sem hann hafði í að koma upp sjálfstæðum at- vinnurekstri, sem dafnaði. Var það ekki aðeins vegna hugmyndaflugs hans heldur öllu meir vegna dugn- aðar hans og þeirrar miklu vinnu, sem hann lagði á sjálfan sig. Má lík- um að því leiða að slík ósérhlífni hafi orðið of mikið álag á veikan líkama en andinn þar að baki var ofursterk- ur og sjálfsumhyggja hvað þá upp- gjöf voru Jóni Valgeiri framandi hugtök. Það, sem og algjör skortur á sjálfsmeðaumkvun, kom greinilega í ljós þegar maður ræddi við hann. Hins vegar var líka augljós um- hyggja hans fyrir sínum nánustu og áhyggjur af því að veikindi sín væru byrði á þeim. Slíkt lífsviðhorf, slíkar gjörðir eru tákn hetjunnar sem Jón Valgeir sýndi okkur öllum að hann var og mun lifa áfram þannig í minn- ingu okkar um hann. Við hjónin vottum sonum hans, foreldrum og fjölskyldunni allri ein- læga samúð í þeirra mikla missi. Blessuð sé minning Jóns Valgeirs Gunnarssonar. Gunnar Finnsson. Ég hef verið gæfusamur í lífinu. Ein gæfan var að kynnast Jónka. Við vorum bekkjarbræður í fjórða, fimmta og sjötta bekk Menntaskól- ans í Reykjavík. Strax um haustið í fjórða bekk myndaðist vinátta sem hélst náin eftir það. Eins og vinir Jónka vita fólst vinátta við hann ekki í því einu að eiga Jón sjálfan að vini, heldur beið manns öll hans fjöl- skylda með opinn faðminn, Gunni, Ella og Freyja litla systir. Við fé- lagarnir lögðum undir okkur Þrasta- nes 5 í Garðabæ og gerðum að fé- lagsheimili okkar. Þar héldum við svokallaða stjórnarfundi við hvert tækifæri, fyrir viðburði í skólanum eða hvenær sem okkur hugnaðist að gleðjast saman sem var oft. Mjög oft. Á neðri hæðinni var stiginn trylltur dans við ljúfa tóna ZZ Top, Iron Mai- den, AC/DC og Van Halen. Á efri hæðinni sátu foreldrar Jónka og biðu af sér hamfarirnar brosandi og hlý eins og þeim einum er lagið. Það sem Jón tók sér fyrir hendur gerði hann af alefli. Í íþróttum var hann þindarlaus og þar höfðum við félagarnir ekki roð við honum. Þegar kom að vinnu sameinaðist Jón þeim vinnustöðum sem hann lagði til starfskrafta sína. Ég man ekki til þess að hann hafi ráðið sig í vinnu án þess að vera innan fárra vikna farinn að reka viðkomandi fyrirtæki. Mætti fyrstur og hætti síðastur. Lengst vann Jón hjá Hard Rock-keðjunni. Fyrst sem veitingastjóri hér heima, í London, svo í Höfðaborg í S-Afríku og síðast sem framkvæmdastjóri hér á Íslandi. Frá Höfðaborg stóð til að hann færi til Amsterdam og tæki við rekstri Hard Rock þar í borg en ör- lögin réðu því að við endurheimtum Jónka okkar til Íslands. Hann fór í hótelskóla í Sviss eftir stúdentspróf. Næstu 10 árin dvaldi hann meira og minna erlendis. Þegar hann flutti heim árið 1999 varð mað- ur þess áskynja að hann hafði þrosk- ast hraðar en maður sjálfur. Það kom e.t.v. ekki til af góðu. Haustið 1998 sprengdu hryðjuverkamenn sprengju á Planet Hollywood í Höfðaborg en þar vann sambýlis- kona Jóns, mamma Kristófers. Jón vann í nálægu húsi og kom fyrstur manna að, á undan lögreglu og sjúkraliði. Aðkoman var að sögn ólýsanleg, a.m.k. einn látinn og um 30 slasaðir, margir stórslasaðir. Jón fann ekki konu sína en hún fannst síðar og hafði sloppið að mestu ómeidd. Jón flutti heim í öryggið á Íslandi skömmu síðar með auga- steininn Kristófer. Eftir heimkom- una minnti Jónki mann reglulega á að líta ekki á gæfuna sem sjálfsagð- an hlut heldur nálgast lífið af auð- mýkt og þakklæti. Það var þörf og góð ábending. Jón fór að vinna eins og hestur eft- ir heimkomuna. Fyrst rak hann Sól- on Islandus, síðan Hard Rock, stofn- aði að lokum og rak JVG Muffin Bakery í Kópavogi og vann og vann. Við hittumst oft til að gleðjast sam- an. Stundum lentum við á trúnó og grétum saman. Það var gott að gera slíkt með elsku Jónka. Við fórum saman í ferðalög. Sáum Rollingana í New York og AC/DC í Barcelona. Við félagarnir og Helga mín munum sakna hans óskaplega. En við eigum enn góða vini í foreldrum hans og systur og sonunum tveimur sem bera föður sínum betra vitni en nokkuð annað. Hvíldu í friði, minn kæri. Sturla Pálsson. Okkur skólafélögum brá í brún við andlátsfrétt Jóns Valgeirs og það er þyngra en tárum taki að ungur mað- ur sé tekinn frá sonum sínum, for- eldrum, systur og vinum. Kynni okkar af Jóni Valgeiri, eða Jónka eins og hann var jafnan kallaður í okkar hópi, hófust eftir að við ákváðum á sínum tíma að nema hót- elstjórnunarfræði í Luzern í Sviss. Þar vorum við ellefu Íslendingar eins og ein fjölskylda undir sama þaki meðal fjölda nemenda af ýmsu þjóðerni. Það er skoðun okkar allra að hann lifði eftir mottóinu „Lífið er dásamlegt láti maður ekkert aftra sér frá að njóta þess“ og hann náði svo sannarlega að smita því út frá sér. Það var ljóst frá fyrsta degi að Jónki var miðpunktur hópsins, ótrú- lega hress og skemmtilegur náungi sem vildi ekkert annað frekar en að hafa gaman af lífinu og fólkinu í kringum sig. Gleðin og kímnin geisl- aði af honum en hann var einnig traustur vinur og fékk meðal annars það hlutverk að gæta hagsmuna skólafélaganna gagnvart skóla- stjórn. Hvort sem var í námi, leik eða starfi þá sló Jónki aldrei af og það voru hrein forréttindi fyrir okkur hin að fá að vera samferðafólk hans enda auðvelt að hrífast með honum. Minningabrotin hrannast upp: Þeg- ar hann trúlofaði sig var því fagnað með gríðarlegri flugeldasýningu yf- ir Vierwaldstättersee. Hann lagði á sig áhættusamt klifuratriði til að koma nemendum inn á Hotel Royal í skjóli nætur og þurfti fyrir vikið að taka verkleg próf á hækjum en rúll- aði því upp með toppeinkunn að sjálfsögðu. Hvenær sem rauður Alfa Romeo ekur hjá kvikna óhjákvæmilega minningar um Jónka enda var sá bíll óspart notaður í ferðum okkar um Sviss og vakti oft á tíðum athygli á götum Luzern. Jónki var töffari og það birtist líka í músíkinni sem hann hafði gott lag á að velja enda fékk hann oft það hlutverk að stýra uppá- komum á nemendabarnum og stút- fylltu þær barinn í hvert skipti enda hafði hann einstakt lag á að fá fólk og búa til stemningu. Jón Valgeir var baráttujaxl og tók hetjulega á þeim áföllum og verk- efnum sem lífið færði honum. Bar- átta hans við hvítblæðið var lýsandi dæmi um elju hans og seiglu. Jónki lifði fyrir strákana sína og fagið og það var frábært að fá að fylgjast með honum í starfi fyrir Hard Rock víðsvegar um heiminn. Uppbygging hans á Muffin Bakery allt frá hug- mynd til veruleika þar sem atorku- semi Jónka naut sín til hins ýtrasta var aðdáunarverð og náðum við skólafélagarnir að njóta gestrisni og góðs matar í ófá skipti og fyrir það viljum við þakka. Það er erfitt að horfa á bak þess- um góða vini en við eigum dýrmæt- ar minningar og lífsmottóið – að njóta stundarinnar. Við biðjum æðri máttarvöld að veita fjölskyldu Jónka styrk á þess- um sorgartímum. Blessuð sé minn- ing Jóns Valgeirs Gunnarssonar F.h. skólafélaga við IHTTI í Sviss, Gunnar Valur Sveinsson. Fallinn er frá vinur okkar Jón Valgeir Gunnarsson langt fyrir ald- ur fram eftir áralanga baráttu við illvígan sjúkdóm. Á þessum sorgar- tíma er huggun að geta látið hugann reika um fjölda samverustunda sem okkar góði vinahópur hefur átt allt frá táningsaldri fram á þennan dag. Þrátt fyrir að Jón Valgeir dveldi langtímum erlendis, fyrst við nám í Sviss, síðar við störf í London og Suður-Afríku, var einhvern veginn alltaf eins og það væri stutt síðan við hittumst síðast. Nú eru rétt um átta ár síðan sjúk- dómurinn gerði fyrst vart við sig. Allan þann tíma sýndi Jón Valgeir æðruleysi og styrk sem var gjöf til okkar allra sem vanmáttug fylgd- umst með hvað verða vildi. Á þessari stundu er hugur okkar hjá sonum Jóns sem misst hafa ást- ríkan föður auk þess sem minningin um góðan vin mun lifa áfram. Friðbert Friðbertsson, Soffía Huld Friðbjarnardóttir. Jón Valgeir Gunnarsson ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON trésmiður frá Sunnuhvoli, Stokkseyri, síðast Merkurheimum í Flóahreppi, verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju laugar- daginn 12. febrúar kl. 10.30. Hólmfríður Tómasdóttir, Tómas Jónsson, Inger Lise Myklebust, Guðríður Jónsdóttir, Bergþór Kárason, Bergþóra Jónsdóttir, Böðvar B. Magnússon, Erna Jónsdóttir, Andri Ólafsson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.