Morgunblaðið - 10.02.2011, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Raðhólar, fnr. 211-822, Borgarbyggð, þingl. eig. Brók ehf.,
gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 16. febrúar 2011
kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
9. febrúar 2011.
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Álftahólar 6, 204-9108, Reykjavík, þingl. eig. Jórunn Ingibjörg
Kjartansdóttir og Þorkell Gunnarsson, gerðarbeiðandi Íbúðalána-
sjóður, mánudaginn 14. febrúar 2011 kl. 11:00.
Flúðasel 91, 205-6677, Reykjavík, þingl. eig. Páll Gunnar Ragnarsson,
gerðarbeiðendur BYR sparisjóður, höfuðstöðvar og Sýslumaðurinn á
Blönduósi, mánudaginn 14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
9. febrúar 2011.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Brunnar 18, fastanr. 212-3867, Patreksfirði, Vesturbyggð, þingl. eig.
Haukur Már Sigurðsson og Gunnhildur Agnes Þórisdóttir, gerðar-
beiðandi SpKef sparisjóður, Patreksfirði, mánudaginn 14. febrúar
2011 kl. 15:00.
Hólar 15, fastanr. 212-3912, Patreksfirði, Vesturbyggð (50%), þingl.
eig. Skúli Hjartarson, gerðarbeiðandi Suðurhraun 3 ehf., mánudaginn
14. febrúar 2011 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
9. febrúar 2011.
Úlfar Lúðvíksson.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógar-
hlíð 6, Reykjavík, sem hér segir, á eftirfarandi eignum:
Nesvegur 53, 202-6567, Reykjavík, þingl. eig. Bergþóra Sigurðardóttir,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og NBI hf.,
mánudaginn 14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Njálsgata 72, 200-8393, Reykjavík, þingl. eig. Elvar Már Atlason,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sýslumaðurinn á Blönduósi,
mánudaginn 14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Nýlendugata 14, 200-0384, Reykjavík, þingl. eig. Arnarþing ehf.,
gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 14. febrúar 2011
kl. 10:00.
Ólafsgeisli 69, 225-5607, Reykjavík, þingl. eig. Baldvin Már Magnús-
son, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 14. febrúar 2011
kl. 10:00.
Reykjabyggð 55, 208-4280, Mosfellsbæ, þingl. eig. Hilmar Harðarson,
gerðarbeiðendur NBI hf. ogTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn
14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Seljabraut 36, 205-6236, Reykjavík, þingl. eig. Jens Líndal Sigurðsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 14. febrúar 2011
kl. 10:00.
Seljavegur 11, 200-0686, Reykjavík, þingl. eig. Jóhann Gunnar
Jóhannsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., mánudaginn
14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Skeljatangi 35, 222-3530, Mosfellsbæ, þingl. eig. Halldóra Kristín
Emilsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, NBI hf. og NBI hf.,
Þorláksh., mánudaginn 14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Skipholt 50A, 201-2493, Reykjavík, þingl. eig. Funahöfði ehf.,
gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., mánudaginn 14. febrúar 2011
kl. 10:00.
Skipholt 50A, 229-4231, Reykjavík, þingl. eig. Funahöfði ehf.,
gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., mánudaginn 14. febrúar 2011
kl. 10:00.
Skógarás 7, 204-6582, Reykjavík, þingl. eig. Sveinbjörn Þormar og
Kristín Þórsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., mánudaginn
14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Sogavegur 174, 229-6029, Reykjavík, þingl. eig. Dísa LindTómasdóttir
og Ágúst Reynir Þorsteinsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður
verslunarmanna, mánudaginn 14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Sporhamrar 6, 203-8715, Reykjavík, þingl. eig. Hólmgeir Hallbert
Kristmundsson, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf.,
mánudaginn 14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Stuðlasel 5, 205-4092, 50% ehl. Reykjavík, þingl. eig. Karl Olgeir
Olgeirsson, gerðarbeiðandiTollstjóri, mánudaginn 14. febrúar 2011
kl. 10:00.
Suðurhólar 30, 205-0967, Reykjavík, þingl. eig. Elísabet Bjarnadóttir,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 14. febrúar 2011
kl. 10:00.
Sundlaugavegur 12, 201-8859, Reykjavík, þingl. eig. Rúnar Bjarni
Bjarnason, gerðarbeiðendur Innheimtustofnun sveitarfélaga,
Sýslumaðurinn á Blönduósi ogTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn
14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Svarthamrar 18, 203-8828, Reykjavík, þingl. eig. Víðir Guðmundsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 14. febrúar 2011
kl. 10:00.
Sölkugata 8, 231-6762, Mosfellsbæ, þingl. eig. Stekkjarhús ehf.,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin hf.,
mánudaginn 14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Sölkugata 10, 231-6768, Mosfellsbæ, þingl. eig. Stekkjarhús ehf.,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin hf.,
mánudaginn 14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Vallengi 3, 221-9109, Reykjavík, þingl. eig. Þórdís Hermannsdóttir,
gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., mánudaginn 14. febrúar 2011
kl. 10:00.
Vatnsstígur 3b, 225-9267, Reykjavík, þingl. eig. Sverrir Snær Ingimars-
son, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 14. febrúar 2011
kl. 10:00.
Vesturgata 2, 200-2577, Reykjavík, þingl. eig. Bryn ehf., gerðar-
beiðandi Icepharma hf., mánudaginn 14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Vesturhús 9, 226-0173, Reykjavík, þingl. eig. Inga Margrét Guðmunds-
dóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Reykjavíkurborg,
mánudaginn 14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Vitastígur 17, 200-7954, Reykjavík, þingl. eig. Bjarki Már Sveinsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 14. febrúar 2011
kl. 10:00.
Völvufell 17, 205-2210, Reykjavík, þingl. eig. Rafn Reynir Bjarnason,
gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., mánudaginn 14. febrúar 2011
kl. 10:00.
Þrastarhöfði 47, 229-0628, Mosfellsbæ, þingl. eig. Hrönn Sigurðar-
dóttir, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., mánudaginn
14. febrúar 2011 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
9. febrúar 2011.
Nú ertu farin, elsku
systir mín. Við áttum
mikið hvor í annarri og
sagðir þú oft „systir mín, þú er alltaf í
hjartanu mínu“. Ég gaf þér líka alltaf
pláss í mínu hjarta og verður svo
áfram að eilífu, ástin mín.
Þegar þú varst lítil þurfti oft að
passa þig mjög vel og gerði ég mitt
besta, en einu sinni slappst þú frá mér
inn í fjós og hafðir komið þér fyrir á
bakinu, undir júgri einnar kýrinnar, og
varst að mjólka upp í þig, þegar að var
komið. Þarna sást hvað þú varst dug-
leg að bjarga þér, sem var svo sann-
arlega þitt aðalsmerki alla tíð.
Of varst þú mjög veik, en náðir þér
furðu fljótt, enda ákveðin stúlka, sem
ætlaði sér ekki að láta veikindin ná yf-
irtökum og sýndir viljastyrk, sem var
þér mikil hjálp í þínu lífi.
„Ég ætla,“ sagðir þú oft og margt
tókst líka vel, sem þú hafðir ætlað þér.
En ekki var alltaf hægt að ráða hlut-
unum, eins og við vissum.
Öll ferðalögin okkar voru yndisleg,
hvort sem voru sundlaugarferðir,
fjöruferðir, ferðir á Laugarvatn, bíl-
túrar á gamlar slóðir eins og í Gufunes
eða réttirnar heima í sveitinni. Allar
þessar ferðir með þér eru í minning-
unni bæði fallegar og skemmtilegar,
ekki síst okkar síðasta ferð saman í
sumarhúsið austur í Grímsnesi. Þar
fékkst þú að ráða því að eitt herbergið
var merkt þér og skrifaðir þú sjálf á
miða sem festur var á hurðina og verð-
ur þar alltaf og minnir okkur á þig.
Ég þakka þér allar samverustund-
irnar og ég mun sakna faðmlagsins
þíns, sem var svo yndislega hlýtt og
Ingibjörg Ragnheiður
Sveinbjörnsdóttir
✝ Ingibjörg Ragn-heiður Svein-
björnsdóttir fæddist í
Vesturkoti á Skeiðum
30. september 1953.
Hún lést á Landspít-
alanum í Fossvogi 24.
janúar 2011.
Ingibjörg var jarð-
sungin frá Graf-
arvogskirkju 2. febr-
úar 2011.
sagði svo mikið og lifir í
minningunni alla tíð og
mun það styrkja mig
mikið, Inga mín.
Takk fyrir allt.
Svanhildur systir.
Nú er hún Inga systir
farin frá okkur svo
snögglega, erfitt er að
átta sig á því. Nú hring-
ir hún ekki oftar og spyr
hvort hún megi gista og
hvort ég sé ekki með
svið og sviðalappir í
matinn. Inga var mikil húsfreyja og
hafði gaman af að bjóða fólki í mat.
Einu sinni sem oftar þegar var hún hjá
mér í haust, þá hringdum við í bróður
okkar sem býr erlendis og hann tjáði
henni að hann hlakkaði mikið til að
koma til hennar í skötuveislu um jólin,
en Inga bauð alltaf til skötuveislu enda
skata í miklu uppáhaldi hjá henni.
Inga átti marga vini og var dáð af
öllum sem kynntust henni, var alltaf
lífsglöð og var mikill gleðigjafi. Hún
hafði yndi af því að ferðast og var búin
að ákveða að fara hringinn í kringum
landið í annað sinn næsta sumar með
frænkum sínum. Inga var búin að
ferðast víða um heim. Hún fór í marg-
ar sólarlandaferðir og hafði hún yndi
af því að liggja í sólbaði og fá sér einn
bjór við laugina. Inga elskaði afmæli
og hélt alltaf stórar afmælisveislur á
hverju ári. Óli mágur átti að koma með
harmonikkuna og það átti að vera
söngur og gleði. Inga var einnig mikið
jólabarn og hlakkaði alltaf til að byrja
að jólaskreyta og fá alla jólapakkana.
Með þessum orðum vil ég kveðja
Ingu systur og þakka henni samfylgd-
ina.
Kristín Sveinbjörnsdóttir.
Elsku Ingibjörg okkar, það er svo
sárt að þurfa að kveðja þig. Í gegnum
hugann fara margar góðar minningar
um þig og allt það sem við höfum gert
saman. Öll ferðalögin, bæði innanlands
og utanlands, óvissuferðirnar, sum-
arbústaðaferðirnar, reiðtúrarnir og
allar þær stundir sem við höfum átt
saman. Þessar minningar munum við
geyma sem perlur í hjörtum okkar.
Takk fyrir alla þá ást sem þú gafst
okkur. Við elskum þig að eilífu og
söknum þín sárt.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín systurdóttir og frænka,
Margrét Kristín og Sandra Lind.
Elsku Ingibjörg, besta frænka í
heimi. Nú þegar þessu er lokið og
þetta mikla tómarúm orðið til minnist
ég þess hve mikill þátttakandi þú hef-
ur alltaf verið í mínu lífi. Það vakti allt-
af ánægju og þótti spennandi að fara í
heimsókn til Ingibjargar frænku og
sjá hvað þú værir að skrúfa í sundur,
rekja upp, sauma út eða prjóna svo
eitthvað sé nefnt. Þú veittir mér kraft
á lokasprettinum þegar ég labbaði frá
Ísafirði til Reykjavíkur og þú mættir
hress og kát með ömmu og afa til að
hitta mig í Bröttubrekkum. Þú varst
eina manneskjan sem kom manni allt-
af í gott skap sama hvað gekk á, alltaf
gast þú fengið mann til að brosa og
hlæja. Það var alltaf gaman að gleðja
þig og gefa þér eitthvað því þú varst
alltaf svo þakklát. Ingibjörg mín, þín
verður sárt saknað og þú munt alltaf
eiga þinn stað í hjarta mínu.
Saknaðarkveðjur,
Hjálmar frændi.
Kæra Ingibjörg. Ég man eftir þér
og Björgvini frá því í gamla daga. Þá
var oft gaman hjá okkur. Ég gleymi
því ekki þegar þú sýndir einstaka leik-
listarhæfileika þína þegar þú lékst
með okkur í leikhópnum Perlunni í
leikriti Steins Steinars „Tvær ljósærð-
ar stúlkur“. Fyrir nokkrum árum fór
ég ásamt Ingibjörgu og fleirum í ferð
til Spánar en þar áttum við saman
góðar stundir og oft var dansað fram
á kvöld og leikið sér í sjónum. Þú
varst alltaf svo vingjarnleg og ljúf við
mig, kallaðir mig frænda og varst
uppfull af jákvæðni og með gott skop-
skyn. Það var einmitt í þínum anda
þegar þú bauðst mér í skötuveislu á
Þorláksmessukvöld í desember, en
það var í síðasta sinn sem ég naut
samvista við þig, kæra vinkona.
Ég veit að nú líður þér vel og þú ert
komin til Björgvins þíns. Þakka þér
allar góðu stundirnar sem ég mun nú
geyma í hjarta mínu. Sendi fjölskyldu
þinni samúðarkveðjur.
Þinn vinur,
Sigfús Svanbergsson.
Ég hitti Ingibjörgu fyrst fyrir fá-
einum árum í ferð sem við fórum
ásamt fleirum til Tenerife á Spáni.
Hún var fjölhæf og skemmtileg kona
og fylgdi henni glaðværð og hlýja
hvar sem hún fór. Væntumþykju sína
sýndi hún af innileik og klappaði mér
og kjassaði í hvert sinn sem við hitt-
umst. Hún var einhvern veginn góð í
gegn og alltaf var stutt í bros og hlát-
ur. Á Spáni fórum við út að ganga á
kvöldin, hlusta á sjóinn, dönsuðum og
fórum í skoðunarferðir, skoðuðum í
búðarglugga og fórum í fjöruna að
bleyta okkur og stundum þurftum við
að fara í svala sundlaugina til að kæla
okkur niður. Ingibjörg kom oft í
heimsókn til okkar í Láland 23 og
voru það gleðistundir sem seint líða
mér úr minni.
Ég bið Guð að geyma þig, kæra vin-
kona.
Þinn vinur,
Haraldur Viggó Ólafsson.
Elsku amma.
Nú skilja leiðir að
sinni, en mikið er ég
glaður og þakklátur fyrir að við skyld-
um hafa þann tíma sem við höfðum
saman. Það er sennilega eins með mig
og aðra drengi, mamma er best og
konuna mína elska ég mest en alltaf
þykir mér nú vænst um hana ömmu.
Amma var stór og mikil kona og
hjartað eftir því. Alveg sama hvað
heimurinn getur verði óréttlátur þá
gat amma alltaf lýst upp lífið, ýmist
með lummum eða einhverju góðgæti.
Ég held að ömmu hafi hvergi liðið
betur heldur en í dalnum sínum enda
Lára Aðalheiður
Jónsdóttir
✝ Lára AðalheiðurJónsdóttir fæddist
á Svarfhóli í Álfta-
firði 23. desember
1921. Hún andaðist á
Heilbrigðisstofnun
Ísafjarðarbæjar 7.
janúar 2011.
Útför Láru fór
fram frá Súðavík-
urkirkju 22. janúar
2011.
fyllti hún hann alltaf af
sól og yl. En dagur var
að kveldi kominn hjá
ömmu og ég held að
hún hafi farið sátt eftir
sína dvöl hér. Það
skiptir ekki máli hvað
þú tekur með, heldur
það sem þú skilur eftir
þegar þú ferð. Sólin
var hátt á lofti þegar
amma stóð á hlaðinu og
virti fyrir sér útsýnið
yfir fjörðinn og leit
fram dalinn og bjóst til
hinstu ferðar.
Kæra amma, ég kveð þig að sinni
með orðum skáldsins Ólafs J. Sig-
urðssonar.
– – –
upp yfir brún og í þá sveit
sem enginn í þessum sóknum leit.
– – –
Stíg ég á bak og brott ég held,
beint inn í sólarlagsins eld.
Þinn ömmustrákur,
Orri Sverrisson.