Morgunblaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
íþróttir
Körfuboltinn KR varð bikarmeistari karla í fyrsta skipti í 20 ár og Keflavík bikarmeistari
kvenna í fyrsta skipti í sjö ár. Pavel og Bryndís voru stjörnur úrslitaleikjanna. 4-5
Íþróttir
mbl.is
VIÐTAL
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
„Svona er þetta bara í þessum handbolta,“
sagði Aron Kristjánsson sem var látinn taka
pokann sinn hjá þýska liðinu TSV Burgdorf
á laugardaginn. Aron sagði í samtali við
Morgunblaðið að ekki væri alveg ljóst ennþá
hvort hann kæmi heim eða leitaði sér að
vinnu erlendis.
„Við vorum svo sem búin að ákveða að
konan og krakkarnir færu heim núna fyrir
páska, út af skólamálum
og öðru, og ég var far-
inn að litast um eftir lít-
illi íbúð fyrir mig, en ég
get hætt því núna. Ætli
það sé þá ekki bara
auðveldast að bæta við
einni ferðatösku og
koma heim með fjöl-
skyldunni,“ sagði Aron
þegar Morgunblaðið
heyrði í honum í gær.
Hann sagði að umboðsmaður sinn hefði
tjáð sér að strax á föstudaginn hefðu nokkur
félög haft samband vegna þessa máls. „Ég á
svona frekar von á að koma heim, en það
ræðst reyndar dálítið af því hvaða tækifæri
eru í boði heima. Það skiptir miklu máli,“
sagði Aron.
Fjórum til sex stigum of lítið
„Ég vissi þegar ég tók við liðinu að ég yrði
að skipta út einum tíu leikmönnum. Við erum
með fjórum til sex stigum of lítið til að ná að
klára þetta alveg. Íþróttastjórinn hjá félag-
inu var líka rekinn á föstudaginn enda var
hann ekki búinn að gera góða hluti, svo vægt
sé til orða tekið,“ sagði Aron.
Með liði Burgdorf leika þrír íslenskir
handknattleiksmenn, þeir Hannes Jón Jóns-
son, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Vignir
Svavarsson, og hagur þeirra breytist ekkert
við brotthvarf Arons. Burgdorf er sem stend-
ur með níu stig í 16. sæti deildarinnar en tvö
neðstu liðin, í 17. og 18. sæti, eru með einu
stigi minna.
Við þjálfarastöðunni tekur Christopher
Nordmeyer, en hann hefur starfað innan fé-
lagsins lengi og þekkir vel til þar. Honum til
aðstoðar verður Jacek Bedzikowski og munu
þeir stýra liðinu í sínum fyrsta leik á móti
Rhein-Neckar Löwen á miðvikudaginn.
„Á frekar von á að koma heim“
Aroni Kristjánssyni sagt upp þjálfarastarfinu hjá Burgdorf Telur að auðveldast verði
að fara heim með fjölskyldunni Ræðst mikið af því hvað tækifæri eru í boði hér á landi
Aron
Kristjánsson
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Knattspyrnumaðurinn Guðjón Baldvinsson er nú til reynslu
hjá Korona Kielce sem leikur í úrvalsdeildinni í Póllandi.
Hann lék fyrri hálfleik í æfingaleik með liðinu gegn LKS
Lodz á laugardag, leik sem lauk með 2:1-
tapi Korona, og freistaði þess að heilla
forráðamenn félagsins.
„Það voru reyndar frekar erfiðar að-
stæður því það hafði snjóað nokkuð, og
þetta bitnaði á gæðum leiksins, en ég
held að ég hafi bara staðið mig ágæt-
lega,“ sagði Guðjón við Morgunblaðið í
gær.
Korona er sem stendur í 4. sæti pólsku
A-deildarinnar, fimm stigum á eftir topp-
liði Jagiellonia, nú þegar keppn-
istímabilið er hálfnað. Hlé stendur yfir
en deildin rúllar af stað að nýju um næstu helgi og lýkur í
lok maí.
Guðjón, sem er uppalinn hjá Stjörnunni, er samnings-
bundinn GAIS í Svíþjóð en var á láni hjá KR síðasta sumar
þar sem hann skoraði grimmt. Hann hefur í vetur fengið
tilboð frá rússnesku félagi og öðru dönsku en hafnað þeim
báðum. Hann kveðst hins vegar mjög spenntur fyrir því að
reyna fyrir sér í Póllandi.
„Ég fer á æfingu aftur á morgun [í dag] og svo á fund í
kjölfarið og fæ þá að vita eitthvað eftir hann. Þá kemur í
ljós hvað verður en mér líst mjög vel á þetta dæmi. Það
kom mér mikið á óvart en þetta er mjög sterk deild og ég
held að ég myndi ekki hafna tilboði hér. Þetta er mjög flott
lið og það er mikill metnaður hérna. Þetta er stærra dæmi
en ég hef kynnst í Svíþjóð, 15.000 manns á leikjum og bara
virkilega spennandi,“ sagði Guðjón.
„Myndi
ekki hafna
tilboði hér“
Guðjón ánægður hjá
Korona Kielce Flott lið
og mikill metnaður
Guðjón
Baldvinsson
Norska knatt-
spyrnufélagið
Brann virðist
ætla að bæta sér
það sem fyrst
upp að hafa
misst tvo Íslend-
inga frá síðustu
leiktíð, og tvo til
viðbótar árið þar
áður, því það
hefur boðið
Steinþóri Frey Þorsteinssyni til
reynslu hjá sér, auk Blikans Guð-
mundar Kristjánssonar eins og áð-
ur hefur verið greint frá.
Steinþór Freyr lék með Örgryte í
sænsku B-deildinni á síðasta ári en
félagið er gjaldþrota og því er þessi
knái kantmaður að hugsa sér til
hreyfings. Hann hefur þó æft með
Örgryte síðustu vikur í mikilli
óvissu um framtíðina.
„Ég er búinn að vera að glíma við
meiðsli í hné síðustu tvær vikur en
ég á að geta beitt mér að fullu. Það
er hins vegar spurning hvernig
standið er á manni því við höfum
aðallega verið í einhverjum líkams-
ræktaræfingum, og tókum til dæm-
is bara tvær fótboltaæfingar í jan-
úar,“ sagði Steinþór sem kveðst
afar spenntur fyrir Brann.
„Ég er alveg til í að vera áfram í
Gautaborg en ég vil komast á
hærra „level“ og núna er Brann
númer eitt, tvö og þrjú. Þetta er
toppklúbbur og það sakar ekki að
það sé þegar Íslendingur þarna
[Birkir Már Sævarsson]. Þeir hafa
greinilega góða reynslu af Íslend-
ingum og ég er spenntur fyrir að
fara þangað og spila,“ sagði Stein-
þór í gær.
Hann æfir með Brann á morgun
og heldur svo með liðinu til La
Manga líkt og Guðmundur þar sem
liðið mun æfa og leika tvo æfinga-
leiki. sindris@mbl.is
„Hafa góða
reynslu af
Íslendingum“
Steinþór Freyr
Þorsteinsson
Morgunblaðið/Golli
Tilþrif Íslandsmótið í kata unglinga fór fram í Smáranum í gær. Kata er sýningarhlutinn af
karateíþróttinni. Keppendur voru rúmlega 80 talsins og liðin 20 og þessi piltur sýndi góða
takta ásamt mörgum fleirum. Fleiri myndir frá mótinu verða birtar í Morgunblaðinu síðar.