Morgunblaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
„Þetta var nokkuð öruggt enda var
markmiðið að fara í gegnum þetta
með þeim hætti, ekki með neinum
látum,“ sagði Pétur Eyþórsson,
glímukappi úr Ármanni, eftir að
hann hafði tryggt sér sigur í Bik-
arglímu Íslands á laugardaginn.
Hann sigraði bæði í sínum þyngd-
arflokki, -90 kg, og í opnum flokki.
Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir úr
GFD, sigraði einnig tvöfalt, í +65
kg flokki og einnig í opnum flokki.
Pétur hefur verið nær ósigrandi í
glímunni undanfarin ár. „Ég hef
æft svipað og undanfarin ár, en eft-
ir því sem fjölskyldan verður stærri
verður erfiðara að æfa eins og mað-
ur vill. Þetta var ekkert mál þegar
maður var 18 ára, en þá kannski
nennti maður ekki að æfa mikið.
Núna er maður til í að æfa mikið en
bæði fjölskyldan og vinnan gerir
það að verkum að maður hefur ein-
faldlega ekki tíma. Ég verð í þessu
þangað til ég hef ekki gaman af
þessu lengur, eða þangað til maður
fer að tapa – hvort sem kemur nú á
undan,“ sagði Pétur.
Athygli vakti að Ingibergur Sig-
urðsson úr HSK, sem er 37 ára,
mætti til leiks, en nokkuð er um lið-
ið síðan hann keppti síðast. „Við
mættumst ekki því hann meiddist í
undanúrslitunum, en við eigum
örugglega eftir að mætast því hann
æfir á fullu aftur og verður örugg-
lega með á einhverjum mótum í vet-
ur. Það er alltaf erfitt og gaman að
glíma við hann enda erum við aldir
upp hjá sama þjálfaranum og
þekkjumst því vel. Við gætum lík-
legast glímt þetta með bundið fyrir
augun,“ sagði Pétur.
Glímt með bundið fyrir augun
Morgunblaðið/Eggert
Sterkur Pétur Eyþórsson vann tvöfalt í Bikarglímu Íslands á laugardaginn.
Á VELLINUM
Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
„Við áttum alveg von á að vinna en
vissum að við þyrftum að hafa fyrir
því,“ sagði Brynja Magnúsdóttir,
sem var markahæst hjá HK-konum
í 30:24 sigri á ÍBV í Digranesi á
laugardaginn í 15. af 18. umferð N1-
deildar kvenna.
HK-konur byrjuðu með látum á
laugardaginn og náðu mest 11:4 for-
ystu. „Við ætluðum svo sannarlega
að vinna og sýndum í fyrri leiknum
við ÍBV að við erum betri þó við höf-
um misst hann niður í jafntefli svo
ég er ánægð með að halda út þennan
leik þó hann hafi verið kaflaskiptur
því við hleyptum þeim alltof mikið
inní leikinn,“ hélt Brynja áfram. Í
byrjun síðari hálfleiks náði ÍBV að
minnka forskotið niður í eitt mark,
14:13. „Við fórum ekkert að gefast
upp þegar ÍBV minnkaði muninn í
eitt mark því maður finnur oft hvort
maður er með leikinn í höndunum
en á móti kemur að ÍBV er hörkulið
sem gefst aldrei upp svo við vissum
að við þyrftum að halda haus.“
Höfum mannskap til að fara í
úrslitakeppnina
Með sigrinum eygja HK-ingar
tækifæri til að ná fjórða sæti deild-
arinnar, sem gefur sæti í úr-
slitakeppninni. „Við klikkuðum í
fyrri umferðinni, töpuðum fyrir FH
og það situr enn í okkur enda kemur
það í veg fyrir að við séum meðal
fjögurra efstu liðanna og okkur
langar allar í úrslitakeppnina. Nú
eru allir leikir úrslitaleikir fyrir okk-
ur og þessi var einn af þeim. Okkar
markmið var og er að komast í úr-
slitakeppnina og við ætlum okkur
þangað, þurfum að vinna Stjörnuna,
Fylki og ÍR til að ná því. Mér sýnist
við hafa mannskap í það, sýndum
gegn Fram um daginn að við getum
mikið en það vantar stöðugleikann.
Vonir ÍBV eru ekki miklar miðað við
að það á Val, Fram og Stjörnuna
eftir,“ bætti Brynja við.
Yngri stelpurnar öflugar
Brynja hefur leikið í meist-
araflokki síðan 2006, einmitt árið
sem ÍBV vann deildina en á þeim ár-
um var HK einnig með gott og
skemmtilegt lið en síðan hefur
kvarnast úr leikmannahópnum. „Á
hverju ári höfum við misst leikmenn
og það er erfitt að vera alltaf að
byggja upp lið, sem langar að vera í
toppbaráttunni, þegar bestu leik-
mennirnir fara til útlanda eða í önn-
ur lið. Það eru hinsvegar aðrar sem
taka þá við og yngri stelpurnar eru
gífurlega öflugar, koma alltaf inná
og standa sig vel. Mér fannst þær
reyndar ekki koma alveg nógu vel
inní leikina fyrir áramót en nú taka
þær af skarið og bera ábyrgð. Ég
held að reynslan fyrir áramót hafi
skilað því auk traustsins frá þjálf-
aranum og það er mikil stemming í
hópnum, alltaf tuttugu á æfingum
og mikil samkeppni þar,“ sagði
Brynja, sem hefur þó staðið vaktina
og er nú einn af lykilleikmönnum
liðsins þar sem flestir leikmenn
komu uppúr yngri flokkum félags-
ins. „Ég vona að við höldum mann-
skapnum áfram, þá verðum við með
hörkulið á næsta ári, eins og við er-
um með í dag. Þá erum við að sjálf-
sögðu reynslunni ríkari því liðið
byggist upp og stöðugleikinn verður
meiri, hann kemur með reynslunni“.
Svipaða sögu má segja um ÍBV,
nú eru flestir leikmenn úr Eyjum og
liðið til alls líklegt. Þar fer Ester
Óskarsdóttir fremst í flokki en hún
skoraði 11 af mörkum ÍBV á laug-
ardaginn. „Við byrjuðum hræðilega
og lendum 5 mörkum undir en gef-
umst ekki upp, náðum svo að saxa
betur á forskot HK-liðsins en svo
kom skellur þegar við misstum HK
aftur í fimm mörk og vorum svo að
elta allan tímann. Við spiluðum ekki
eins og við ætluðum okkur, fengum
á okkur mörk frá stöðum sem við
ætluðum að loka á og þá var allt
fljótt að breytast,“ sagði Ester og
var ekki mjög bjartsýn á að liði
hennar tækist að komast í úrslit.
„Ég held að framhaldið verður erfitt
með Fram, Val og Stjörnuna eftir en
við ætlum okkur að halda fimmta
sætinu. Það hefði átt að vera nægur
hvati til að mæta betur í dag en það
er einhver útivallagrýla hjá okkur
þar sem við byrjum alltaf mjög illa á
útivelli“.
Fjórir stórir sigrar
Hinir fjórir leikirnir í deildinni á
laugardaginn enduðu allir með
stórum sigrum, enda efstu liðin að
leika við þau neðstu. Fram vann FH
40:18, Valur vann ÍR 37:20, Stjarnan
vann Hauka 40:21 og Fylkir vann
Gróttu 31:16. Öll úrslit og marka-
skorarar eru á bls. 6.
„Hörkulið á næsta ári“
HK lagði ÍBV 30:24 í Digranesi Uppbyggingarstarf Kópavogsfélagsins
að skila sínu Hörð keppni HK, Fylkis og ÍBV um sæti í úrslitakeppninni
Morgunblaðið/Golli
Öflug Brynja Magnúsdóttir skoraði 7 mörk fyrir HK gegn ÍBV á laugardaginn og hér reyna Eyjakonurnar Sigríður
Lára Garðarsdóttir og Renata Horvath að stöðva hana. HK vann öruggan sex marka sigur í leiknum í Digranesi.
Arnór Atlasonfór mikinn
hjá AG Köben-
havn er liðið lagði
Mors-Thy 38:32 í
dönsku deildinni
á laugardaginn.
Arnór gerði níu
mörk og var
markahæstur í
liðinu. Snorri Steinn Guðjónsson
gerði tvö marka AG sem er sem fyrr
í efsta sæti deildarinnar með 41 stig,
aðeins gert eitt jafntefli í vetur, og
Århus kemur þar á eftir með 31 stig.
Alexander Petersson var marka-hæstur hjá Füchse Berlín með
5 mörk þegar liðið varð að sætta sig
við jafntefli gegn Melsungen á úti-
velli, 22:22, í þýsku 1. deildinni í
handknattleik í fyrrakvöld. Füchse
er því í þriðja sæti, stigi á eftir Kiel.
Björgvin Björgvinsson, skíða-maður frá Dalvík, náði ekki að
ljúka við fyrri ferðina á HM í svigi í
Garmisch-Partenkirchen í gær.
Björgvin var eini íslenski keppand-
inn þar sem þremur íslenskum
skíðamönnum tókst ekki að komast
áfram úr forkeppninni á laugardag-
inn. Sigurgeir Halldórsson féll þá úr
keppni í fyrri ferðinni en þeir Brynj-
ar Jökull Guðmundsson og Gunnar
Þór Halldórsson í þeirri síðari.
Frakkinn Jean-Baptiste Grange
sigraði í svigi karla og krækti hann
sér þar með í sínu fyrstu gull-
verðlaun í langan tíma. Svíinn Jens
Byggmark varð annar og Manfred
Mölgg frá Ítalíu þriðji.
Hvorki ÍrisGuðmunds-
dóttir né Katrín
Kristjánsdóttir
komust áfram í
svigi kvenna á
HM, þær féllu
báðar úr keppni í
fyrri ferðinni.
Marlies Schild
frá Austurríki sigraði í sviginu og
landa hennar, Kathrin Zettel varð
önnur. Þriðja sætinu náði síðan
Maria Pietiale-Holmner frá Svíþjóð.
Svig karla var síðasta greinin áHM. Austurríkismenn hlutu
flest gullverðlaun á mótinu, fjögur
talsins og öll í kvennaflokki. Frakkar
fengu tvenn gullverðlaun og ein gull-
verðlaun fóru til Ítalíu, Bandaríkj-
anna, Slóveníu, Kanada og Noregs.
Guðmundur E. Stephensen ogMagnea Ólafs sigruðu í opnum
flokki karla og kvenna á Rafkaupa
Grand Prix borðtennismótinu um
helgina. Guðmundur lagði Magnús
K. Magnússon 4-0, 11:5, 11:5, 11:4 og
11:2, í úrslitum en Daði Freyr Guð-
mundsson og Magnús Finnur Magn-
ússon urðu í næstu tveimur sætum.
Systir Magneu, Halldóra, varð í
öðru sæti í kvennaflokki.
Fólk sport@mbl.is