Morgunblaðið - 21.02.2011, Síða 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
Landsliðsmað-urinn Björg-
vin Víkingsson
úr FH var á með-
al áhorfenda á
bikarkeppni FRÍ
um helgina vegna
hásinarmeiðsla
sem hafa lengi
plagað hann og
tóku sig upp í síðasta mánuði. Hann
hefði eflaust safnað stigum fyrir FH
í 400 metra hlaupi og hjálpað liðinu í
boðhlaupi en hefur nú sett stefnuna
á að koma sterkur inn í sumar.
Norðlendingurinn ÞorsteinnIngvarsson hefur einnig sett
stefnuna á sumarið en hann tognaði
aftan í læri í einu stökka sinna í lang-
stökkskeppninni. Þorsteinn ætlaði
sér að komast á EM í París sem
fram fer í mars og hafði gert harða
atlögu að því að undanförnu en hefur
nú lokið keppni í vetur og hugar að
sumrinu.
Eins og sjá má í frétt hér að ofaner Kristinn Torfason á leið til
Parísar í mars á EM innanhúss í
frjálsum íþróttum. Hann fer þó ekki
einn því áður hafði liðsfélagi hans
hjá FH, Óðinn Björn Þorsteinsson,
tryggt sér sæti þar. Óðinn Björn
vann að vanda öruggan sigur í kúlu-
varpi í bikarkeppni FRÍ um helgina
en hann varpaði kúlunni þá lengst
17,77 metra.
Í kúluvarps-keppni
kvenna var spjót-
kastarinn Ásdís
Hjálmsdóttir úr
Ármanni á meðal
keppenda. Hún
vann keppnina af
öryggi með því að
varpa kúlunni
14,85 metra. Það
er þó nokkuð frá lágmarkinu fyrir
EM í París en ekki er keppt í spjót-
kasti þar. Ásdís verður hins vegar á
meðal keppenda á vetrarkastmóti
frjálsíþróttasambands Evrópu sem
fram fer í Sofiu í Búlgaríu þann 19.
mars.
FH-ingurinn Óli Tómas Freyssonsýndi spretthörku sína í bik-
arkeppni FRÍ um helgina þar sem
hann vann sigur í bæði 60 og 200
metra hlaupi. Óli Tómas hljóp 60
metrana á 7 sekúndum sléttum en
Haraldur Einarsson og Arnór Jóns-
son komu næstir á nákvæmlega
sama tíma, 7,11 sekúndum.
Keppni í 800 metra hlaupi kvennavar afar spennandi en þar
skildu 50/100 úr sekúndu 1. og 3.
sætið að. Björg Gunnarsdóttir fór
með sigur af hólmi.
Fólk sport@mbl.is
Í HÖLLINNI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Aðalmarkmiðið núna var að vinna
karlakeppnina í fyrsta sinn í langan
tíma og það tókst þrátt fyrir nokkur
skakkaföll. Við áttum von á að vinna
kvennakeppnina, þar sem við erum
með yfirburðalið, sem og heild-
arstigakeppnina en það mátti lítið út
af bregða í karlakeppninni. Þar
höfðum við ekki unnið FH í yfir 20
ár og ísinn var því loksins brotinn
þar,“ sagði Þráinn Hafsteinsson, yf-
irþjálfari ÍR, stoltur yfir þreföldum
sigri ÍR í bikarkeppni frjálsíþrótta-
sambands Íslands sem fram fór í
Laugardalnum á laugardag.
3/100 úr sekúndu frá EM
Í bikarkeppninni er keppt í 24
greinum og fást sjö stig fyrir sigur í
hverri grein, sex stig fyrir 2. sætið,
og svo framvegis. ÍR hlaut 70 stig af
84 mögulegum í stigakeppni kvenna,
og 63 í stigakeppni karla. Heild-
arstigakeppnina vann liðið því með
133 stigum, en næst komu Norður-
land og HSK með 103,5 stig eins og
lesa má nánar um í grein hér að of-
an.
Af afrekum einstaklinga á mótinu
stendur árangur Kristins Torfason-
ar, sem sagt er frá hér að ofan, upp
úr ásamt 400 metra hlaupi hinnar 15
ára gömlu Örnu Stefaníu Guð-
mundsdóttur. Hún var 3/100 frá því
að komast á EM innanhúss sem er
hreint út sagt magnaður árangur.
Hún hljóp á 54,73 sekúndum sem er
nýtt met í öllum aldursflokkum 22
ára og yngri.
„Fyrir mér var hlaupið hjá Örnu
Stefaníu hápunkturinn. Ég átti ekki
von á að hún bætti sig svona mikið
núna því hún hefur ekkert verið í
sérstökum undirbúningi fyrir 400
metra hlaup heldur fjölþraut. En
hún er ótrúlega efnileg og hjá þann-
ig fólki getur allt gerst,“ sagði Þrá-
inn. Þessi góði árangur Örnu Stef-
aníu gerir það að verkum að
ÍR-ingar hyggjast nú leita leiða til
þess að hún nái að keppa á öðru
móti áður en lokafrestur til að ná
EM-lágmarki rennur út næsta
sunnudag.
„Ég var svo mjög ánægður með
Einar Daða [Lárusson] sem setti
unglingamet í grindahlaupi og stökk
hástökkið mjög vel, auk þess að
hlaupa vel í boðhlaupinu,“ sagði
Þráinn, ánægður með sitt lið.
„Breiddin er það mikil hjá okkur
að þegar einhver dettur út kemur
annar sterkur í staðinn. Stefnan
hefur verið að byggja upp fjölmennt
og sterkt lið sem getur unnið svona
mót, og það hefur gengið upp. Við
erum mjög sátt við þennan árang-
ur,“ bætti hann við.
Fyrrnefndur Einar Daði naut sín
vel í höllinni og vann bæði hástökk
og grindahlaup, auk þess að hlaupa
gríðarvel lokasprettinn í 4x400
metra boðhlaupi, þar sem ÍR
tryggði sér endanlega sigur í karla-
flokki.
Aldrei verið betri
„Við ætluðum okkur að vinna
karlakeppnina en ég reyni að pæla
lítið í stigunum og einbeiti mér bara
að því að gera vel í mínum greinum.
Það er líka gaman að njóta þess að
keppa á þessu móti því það er fullt
af áhorfendum og mikil stemning.
Frjálsar íþróttir eru einstaklings-
sport en það er gaman að tilheyra
liði og um að gera að njóta þess þeg-
ar svona liðsstemning kemur upp,“
sagði fjölþrautarkappinn sáttur.
„Ég er í toppstandi núna. Ég var
meiddur allt síðasta ár í hásininni og
ég held að ég sé bara orðinn
ákveðnari fyrir vikið. Ég hef aldrei
verið í svona góðu formi,“ bætti
hann við.
„Ísinn loksins brotinn“
Morgunblaðið/Golli
Verðlaunahafar Efstu þrjú liðin í stigakeppni kvenna fagna hér. Fyrir miðju er gulllið ÍR, til vinstri er silfurlið HSK og til hægri bronslið Norðurlands.
ÍR bikarmeistari í frjálsum íþróttum Vörðu titilinn í kvennaflokki og náðu
titlinum af FH í karlaflokki eftir langa bið Arna Stefanía kom öllum á óvart
Bikarkepppni FRÍ
» Í heildarstigakeppninni
hlaut A-lið ÍR 133 stig, Norður-
land og HSK 103,5 stig hvort,
FH 93,5 stig, Ármann/Fjölnir
83 stig, Breiðablik 80,5 stig,
og B-lið ÍR 71 stig.
» ÍR hlaut 63 stig í karla-
keppninni, FH 56 stig og Norð-
urland 54 stig.
» Í kvennakeppninni hlaut ÍR
70 stig, HSK 57 stig og Norður-
land 49,5 stig.
Eðlisfræðingurinn Kristinn Torfason úr FH
bætti sig um heila 20 sentimetra í langstökki
innanhúss þegar hann sigraði í bikarkeppni
FRÍ í Laugardalshöllinni um helgina með
7,77 metra stökki. Það stökk dugði honum til
að komast á Evrópumeistaramótið sem fram
fer í París 4.-6. mars næstkomandi, en lág-
markið var 7,75 metrar.
„Þetta hefur verið stefnan lengi og ég vissi
að ég ætti þetta inni þó ég hefði bara verið að
stökkva 7,50 metra. Ég hef vitað í tvö ár að
ég gæti þetta,“ sagði Kristinn við Morg-
unblaðið á laugardag. „Langtímamarkmiðið er að ná 8 metr-
unum, og innanhúss er Íslandsmetið 7,82 metrar svo ég ætla
mér að ná því,“ bætti Kristinn við. Hann var þegar farinn að
hlakka til Frakklandsferðarinnar.
„Ég hef ekkert komið þangað þannig að það verður gaman að
fá að skoða staði eins og Eiffelturninn,“ sagði Kristinn sem
kveðst þó ekki eiga neina blómarós til að taka með sér til þess-
arar rómantísku borgar. „Nei, en ég finn mér bara eina í París,“
sagði Kristinn léttur. sindris@mbl.is
Gaman að fá að
skoða Eiffelturninn
Kristinn
Torfason
Morgunblaðið/Golli
Karlarnir ÍR-ingar fyrir miðju ásamt FH-ingum og Norð-
lendingum við verðlaunaafhendinguna.
„Þetta var rosalega gaman. Ég var búin að
hugsa mér að við gætum náð 2. sæti og það gekk
upp, þó það stæði eins tæpt og hugsast getur.
Ég gæti ekki verið ánægðari en núna,“ sagði
Hafdís Sigurðardóttir sem keppti fyrir hönd
Norðurlands í bikarkeppni FRÍ um helgina.
Norðurland náði þar 2. sæti í heildarstigakeppn-
inni, þrátt fyrir að vera jafnt HSK að stigum,
með því að vinna sigur í þremur greinum en
HSK vann sigur í einni grein. Hafdís var í lyk-
ilhlutverki því hún vann einmitt tvær af þessum
þremur greinum; langstökk og 60 metra hlaup.
Mikið var undir í lokagreininni, 4x400 metra boðhlaupi, en þar
varð Norðurland í 2. sæti og HSK í 6. og næstneðsta sæti.
„Liðið stóð sig frábærlega í dag og það er bara frábært að koma
hingað suður og standa sig svona vel,“ sagði Hafdís. Aðspurð hvort
þess verði langt að bíða að Norðurland geti gert atlögu að meist-
araliði ÍR stóð ekki á svörum. „Við gerum það bara í sumar,“ sagði
Hafdís létt. „Við erum með mjög sterkt lið og það verður bara betra
með hverju mótinu. Við mætum sterk til leiks í sumar,“ bætti hún
við. sindris@mbl.is
Stóð eins tæpt
og hugsast getur
Hafdís
Sigurðardóttir