Morgunblaðið - 21.02.2011, Side 8
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
„Ég er handarbrotinn og þarf lík-
legast að fara í aðgerð, en ég vona
að ég geti byrjað að spila sem
fyrst,“ sagði Tryggvi Guðmunds-
son, leikmaður ÍBV, í samtali við
Morgunblaðið.
Tryggvi handarbrotnaði í 3:1-
tapi ÍBV gegn Leikni á föstudags-
kvöldið. „Það eru tvær pípur á
handarbakinu brotnar og ég þarf
líklegast að fara í aðgerð til að setja
pinna í þetta,“ sagði Tryggvi.
Hann er samt brattur og vonast
til að geta spilað sem fyrst. „Ef ég
fæ leyfi til að spila með gifsið á
hendinni þá er ég tilbúinn í það
núna strax. Mig langar rosalega að
spila leikinn við Val eftir viku,“
sagði Tryggvi og er fullur bjartsýni
á að hann verði ekki lengi frá
knattspyrnunni vegna þessa.
skuli@mbl.is
Tryggvi vill
spila með
gifs gegn Val
Þegar tvær umferðir eru enn eftir
af riðlakeppninni í Meistaradeild-
inni í handknattleik hafa tíu lið
þegar tryggt sér sæti í 16-liða úr-
slitunum. Leikið er í fjórum sex liða
riðlum, heima og að heiman, og
fjögur efstu liðin í hverjum riðli
komast í 16-liða úrslitin.
Bæði Alfreð Gíslason og Guð-
mundur Guðmundsson eru komnir
áfram með sín lið úr A-riðli, Kiel og
Rhein-Neckar Löwen. Kiel er á
toppnum með 12 stig og Löwen
með 11. Barcelona er með 9 og síð-
an Celje Lasko og Chambéry með 6
og Kielce rekur lestina með 4 stig.
Spurningin er aðeins hvernig end-
anleg röð verður í riðlinum.
Ljóst er að í B-riðli fara Veszp-
rém með 14 stig, Montpellier með
12, Kolding með 10 og Hamburg
með 9 stig áfram en Sävehof og
Tatran Presov sitja eftir.
Chekhovskie Medvedi og Val-
ladolid eru komin áfram úr C-riðli
með 13 og 11 stig. Pick Szeged er
með 8 stig, Kadetten, lið Björgvins
Páls Gústavssonar, er með 7, Di-
namo Minsk 5 og AaB með 4. Þarna
getur í raun allt gerst, en Kadetten
á heimaleik við Medvedi og útileik
við Valladolid eftir og bæði Minsk
og AaB eiga möguleika á að ná
svissneska liðinu að stigum og
skilja það eftir.
Ciudad Real, Croatia Zagreb og
Flensburg eru komin áfram úr D-
riðli en baráttan um fjórða sætið er
hörð þar sem Petersburg og Con-
stanta eru með 4 stig og Sarajevo 3.
Sarajevo og Constanta eiga eftir að
mætast. skuli@mbl.is
Kadetten
gæti komist
áfram
VIÐTAL
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
„Það er mjög gott að fá heimaleikja-
réttinn, deildakeppnin snýst í raun-
inni um að ná honum,“ sagði Jón B.
Gíslason, fyrirliði SA Víkinga eftir
að liðið tryggði sér heimaleikjarétt-
inn í úrslitakeppninni með 7:3 sigri á
Birninum í Egilshöllinni á laug-
ardaginn.
Ekki er alveg ljóst hvenær úr-
slitarimma SA Víkinga og SR hefst
en líklegast verður það um mán-
aðamótin. „Við erum alveg hæst-
ánægðir að fá heimaleikjaréttinn.
Hann er gríðarlega mikilvægur, að
geta byrjað heima og fá stuðninginn
á heimavelli í þremur leikjum, það er
að segja ef þetta fer í fimm leiki,“
sagði Jón. Hann sagði að vel gæti
farið svo að úrslitakeppnin hæfist
eftir viku. „Ég heyrði eitthvað um
það um daginn að það stæði til að
flýta henni aðeins og byrja jafnvel á
mánudaginn eftir viku,“ sagði Jón.
Í vetur hefur þannig háttað til að
Skautafélag Akureyrar hefur verið
með tvö lið, SA Víkinga og SA Jötna,
og hefur Jón leikið með báðum lið-
unum. „Ég spila með báðum lið-
unum en reglurnar eru þannig að
það mega fjórir leikmenn spila milli
liða og við höfum því verið með fjóra
menn úr SA Víkingum sem hafa ver-
ið lánaðir til SA Jötna.
Tvíefldir í úrslitunum
Í úrslitakeppninni verða liðin
sameinuð og það má kannski segja
að við komum tvíefldir til leiks,“
sagði Jón en bætti síðan við. „Í raun-
inni verður Víkings-liðið eins og það
hefur verið í vetur, það verður í það
minnsta ekki mikil breyting á því.“
Hann sagði að þetta fyrirkomulag
hefði komið vel út, en þetta er í
fyrsta sinn sem þetta fyrirkomulag
er haft á. „Þetta hefur komið fínt út.
SA Jötnar hafa veitt öllum liðum
keppni í flestum leikjum og það
munar mestu að við fáum fleiri leiki
út úr vetrinum en ella og það skiptir
miklu máli,“ sagði Jón.
Hann var hógvær þegar hann var
spurður hvort úrslitarimman færi
ekki bara 3:0. „Ég vona það. Við
stefnum í það minnsta að því. Hins
vegar er gaman að fara í fimm leiki,
oddaleikirnir eru alltaf svo skemmti-
legir – að því tilskildu að við
vinnum,“ sagði fyrirliði SA Víkinga.
Víkingar fá heimaleikinn
Deildakeppnin í íshokkíinu snýst um að fá heimaleikjaréttinn í úrslitunum
SA Víkingar tryggðu hann um helgina Mæta SR í úrslitakeppninni
Morgunblaðið/Eggert
Í úrslit SA Víkingar tryggðu sér heimaleikjaréttinn í úrslitunum við SR.
KR-ingar hófu vörn deildabikars karla í fót-
boltanum með því að sigra Selfyssinga, 2:1, í
Egilshöllinni á laugardaginn. Ásgeir Örn
Ólafsson, sem er kominn aftur til KR eftir
ársdvöl í Noregi, kom Vesturbæingum yfir
eftir korter en Ingþór Jóhann Guðmundsson
jafnaði fyrir Selfoss í lok fyrri hálfleiks. Um
miðjan síðari hálfleik skoraði Kjartan Henry
Finnbogason sigurmarkið, 2:1.
Valur vann Víking frá Ólafsvík, 4:0, á Akra-
nesi í gær en öll mörkin komu í seinni hálfleik.
Arnar Sveinn Geirsson, Guðjón Pétur Lýðs-
son, Rúnar Már Sigurjónsson og Matthías
Guðmundsson skoruðu.
Ingimundur Níels Óskarsson skoraði sig-
urmark Fylkis sem vann Stjörnuna, 2:1.
Hörður Árnason skoraði fyrst fyrir Garðbæ-
inga en Andrés Már Jóhannesson jafnaði fyr-
ir Fylki.
Skagamenn eru á sigurbraut þessa dagana
og þeir unnu Þórsara, nýliðana í úrvalsdeild-
inni, 1:0, í Akraneshöllinni. Arnar Már Guð-
jónsson skoraði sigurmarkið.
Viggó Kristjánsson, 17 ára unglingalands-
liðsmaður, kom inná hjá Gróttu og tryggði
liðinu 3:1 sigur á KA með tveimur mörkum
seint í leik liðanna í Akraneshöll.
Þór Steinar Ólafs skoraði sigurmark
Hauka gegn BÍ/Bolungarvík, 3:2, eftir að þeir
höfðu lent 0:2 undir í leik liðanna í Reykja-
neshöllinni.
Orri Freyr Hjaltalín skoraði tvívegis fyrir
Grindvíkinga sem lögðu ÍR, 4:2, í Egilshöll-
inni í gærkvöld. vs@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Deildabikar Viktor Bjarki Arnarsson úr KR í skallabaráttu við Auðun Helgason, varnarmann-
inn reynda, sem er kominn til liðs við Selfyssinga og var fyrirliði þeirra á laugardaginn.
Skaginn á sigurbraut
KR hóf vörn deildabikarsins á því að sigra Sel-
fyssinga Fylkir, Valur og Grindavík unnu líka
Valskonur urðu í gærkvöld Reykja-
víkurmeistarar í knattspyrnu fjórða
árið í röð þegar þær unnu sannkall-
aðan risasigur á HK/Víkingi, 18:0, í
lokaumferð mótsins í Egilshöllinni.
Eftir að Fylkir vann Þrótt „aðeins“
3:1 í leiknum á undan hefðu Vals-
konur þurft að tapa leiknum með
fimm mörkum til að missa af sigri í
mótinu.
Elín Metta Jensen, sem er aðeins
15 ára gömul, skoraði sex mörk fyrir
Val í leiknum og landsliðskonan
Kristín Ýr Bjarnadóttir gerði þrjú
mörk. Valskonur skoruðu samtals 43
mörk í mótinu en fengu ekkert á sig
og virðast koma áfram geysisterkar
til leiks þrátt fyrir breytingar.
Hinn eiginlegi úrslitaleikur móts-
ins var í síðustu umferð en þá vann
Valur öruggan sigur á Fylki, 4:0.
Fylkir vann aðra leiki örugglega og
varð í öðru sæti mótsins annað árið í
röð.
KR vann Fjölni, 7:0, og hafnaði í
þriðja sætinu en þar skoruðu Dag-
mar Mýrdal og Hafrún Olgeirsdóttir
sín þrjú mörkin hvor.
vs@mbl.is
Morgunblaðið/hag
Fyrirliðinn Málfríður Erna Sigurðardóttir er nýr fyrirliði Vals og hún tók við bikarnum í mótslok í gærkvöld.
Valskonur
urðu meist-
arar fjórða
árið í röð