Siglfirðingur


Siglfirðingur - 30.11.1923, Qupperneq 4

Siglfirðingur - 30.11.1923, Qupperneq 4
4 SIGLFIRÐINGUR Skrá yfir aukaútsvör í Siglufjarðarkaupstað, fyrir árið 1924 og enn- fremur skrá yfir framhaldsaukaniðurjöfnun fyrir árið 1923, liggja frammi almenningi til sýnis í sölubúð Halldórs Jónassonar, hin fyrnefnda frá 1. til 15. desember og hin síðarnefnda frá 1. til 7. desember þ. á. Fyrir hönd niðurjöfnunarnefndar Þorm. Eyólfsson. Bókasafnið er opið til útiána á sunnudögum frá kl. 1—2^2 e. m. á miðvikudögum frá kl. 4 —5 72 e-m. Á öðrum tímum verða hvorki lánaðar bækur nje tek- ið á móti þeim. Skyldugjald er ekkert, en öllum frjálst að greiða þókn- un fyrir afnot af bókum safnsins. Bækurnar lánast út til einnar viku í senn, og er e n g u m h e i m- i 11 að hafa þær lengur án samþykkis bókavarðar. Verði útaf breytt má hlutaðeigandi búast við að honum verði neitað um bækur af safninu. Skemdir á bókum skulu borgaðar eftir áliti bókavarðar. Börnum innan fermingar verða ekki lánaðar bækur nema eftir beiðni foreldra eða hús- bænda. Útlánin fara fram í Norðurgötu 13. Bókavörður. Jarðarför Guðrúnar sál. Jóhannsdóttir, Eyrargötu 3, fór fram í dag. A t h y g 1 i skal vakin á því, að sölubúðir verða lokaðar á morgun. Erl. símfrjettir. Frá Berlin er símað að Strese- mann stjórnarforseti hafi beiðst lausnar vegna þess að ríkisþingið feldi traustsyfirlýsingu til stjórnar- irinar með 230 atkv. gegn 150. Frá París er símað 2ó. nóv, að Stinnes og Thyssen hafi gert sam- ing um að 90% af iðnaðarfyrirtækj- unum í Ruhrhjeraði skuli rekinn í samvinnu við Frakka, Hermálaeftirlit verður tekið upp í Bayern 1. desember. Poincari hefur gefið út ytirlýs- ingu um, að ef þjóðleg einveldis- stjórn verði tekin upp í Pýskalandi, þá verði Múnchen og Berlin tekn- ar hernámi. 27. nóv. er símað að orðrómur gangi um það, að bandalag sje komið á á milli ítala og Spánverja með því markamiði, að ná yfirráð- um yfir Miðjarðarhafinu. Tillaga hefur komið fram um að stofnað verði sjerstakt Rínarveldi, fjárhagslega sjálfstætt en með þýsk- ri yfirstjórn. Frá Berlin er símað 28. nóv. að Stegewald miðfloksmaður reyni að mynda stjórn í Pýskalandi með stuðningi miðfl., þjóðernisflokks- ins og þjóðflokks Bayernmanna, Kommúnista fjelagskapur hefur verið bannaður í Pýskalandi. Pingkosningar eiga að fara fram í Bretlandi 6. n. m. kosningabarátt- an fer sívaxandi og er talið víst að Baldwins verði í meiri hluta, Brunabótagjöld. Menn eru alvarlega ámintir um að greiða brunabótagjöld sín til Brunabótafjelags íslands f y r i r 10. d e s e m b e r n. k. Eftir þann tíma verða ógreidd brunabótagjöld tekin lögtaki á kostnað húseigenda. Öll þessi gjöld áttu að greiðast 15. okt. s. 1. Þorm. Eyólfsson. ,Hjúkrun sjúkra* síðara hefti er nú komið, og eru áskrifendur ámintir um að vitja þess hið allra fyrsta. Friðb. Níelsson. Vínber Ep/i Laukur nýkomið Friðb. Níe/sson. SkÓfatnað hefi jeg nú fyrirliggjandi af öllum stærðum og mörgum gerðum Friðb, Níelsson. Nýar bækur: Skytturnar I. eftir Dumas íslensk Endurreisn eftir V. Gíslas. Æfintýri íslendings eftir Axel Th. Vormerki eftir Árna Jóhannsson Friðb. Níelsson. Jólakerti og Jólakort fást hjá Friðbirni. Petta. blað verður sent um allan bæinn og nágrennið, og auk þess sent viðs- vegar' út um alt land sem sýnis- horn til athugunar. En næsta blað verður aðeins sent þeim, sem hafa gelið sig fram seni kaupend- ur og greitt andvirði þess. #

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.