Siglfirðingur - 14.12.1923, Side 3
SIGLFIRÐINGUR
kemur út fyrst uin sinn á hverjum föstu-
degi. Fyrsti árgangur, minst 40 blöð,
kostar 4 krónur er greiðist fyrirfram. I lausa-
sölu 15 aura biaðið. Erlendis kostar blað-
ið 5 krónur.
Auglýsingar kosta 1 kr. hver centimeter
dálksbreiddar og greiðast við afhendingu
nema öðruvísi sje umsamið. Þeir sem
auglýsa mikið geta komist að samningi
um lægra verð. — Auglýsingum sje skil-
að á prentsmiðjuna eða til útgefanda fyr-
ir miðvikudagskvöld.
Ritstjórn og afgreiðslu annast útgef.
Erl. símfrjettir.
Kosningarnar í Bretlandi fóru
þannig, að stjórnarflokkurinn fjekk
260 þingsæti, Verkamannaflokkur-
inn 191 og Frjálslyndi flokkurinn
159. Er því talið víst að núverandi
stjórn muni sitja áfram að völdum.
Ákaflegur vöxtur Iiefir hlaupið í
Tiberfljótið, og hefir það valdið
miklum skemdum í Rómaborg.
Hover hinn ameríski inælir með
því að Ameríka veiti Rjóðverjum
sjötíu miljónir dollara lán.
Níu ríki í Mexiko hafa gert upp-
reisn undir forustu Goudalupa
Saches.
Dyrtíð í París, og er sagt að
slegið hafi þar í bardaga og margir
særst.
Nýúng.
Svo sem kunnugt er, hefur á
síðustu árum tekist að senda als-
konar hljóð með loftskeytum úr ein-
um stað í annan, óravegu, yfir lönd
og höf. Á loftskeytasíöðinni í Rvík
hefur lengi heyrst söngur, hljqð-
færasláttur og ræður frá öðruin
löndum, einkanlega Englandi. Mót-
tökustöðvar þær, sem nema þessi
hljóð, hafa mjög rutt sjer til rúms
á þessu ári, og nú hefur herra
Rósenberg sá, sem veitingarnar
hefur á Nýja Bíó í Rvílc fengið
sjer eina slíka móttökustöð og lát-
ið setja hana upp í veitingasalnum.
Ekki er enn þá komin full reynd á
SIGLFIRÐINGUR
þessa nýju móttökustöð, en þó
hefur oft heyrst mjög greinilega í
henni bæði söngur, hljóðfærasláttur
og ræður, frá Englandi og öðrum
löndum. Ef tilraun þessi tekst svo
vel sem vonast er eftir, þá ætlar
Rosenberg að gefa gestum sínum
kost á að heyra þær nýungar, sem
stöðinni berast. — Seinna mun í
ráði að koma móttökutækjum stöðv-
arinnar svo fyrir, að sýningargestir
í Nýja Bíó geti heyrt hinn erlenda
söng á miili þátta.
Hvenær ætli við fáum slíka skemt-
un hjer á Siglufirði?
Fyrirsp urnir.
1. Hver hefir ráðið því að láta
taka möl og grjót sunnan við
»Söbstadsþróna«, sem hlýtur að
verða til þess að eyðileggja þróna
að nieira eða minna leyti? Ekki
hefir það verið borið undir bæjar-
stjórn.
2. Hver hefir ráðið verkstjóra
við uppfyllingu á hafnarlóð og með
hvaða kjörum? I fyrra var sú at-
vinna boðin niður, en þó greitt
hærra kaup en undirboðið bar með
sjer. Hvorugt þetta hefir verið sam-
þykt af bæjarstjórn.
3. Hver hefir látið setja lyfti-
tæki á nýu hafnarbryggjuna, og
fyrir hvers reikning er það gjört?
Ekki hefir það verið borið undir
bæjarstjórn.
F.
Fyrirspurnum þessum var odd-
vita geíinn kostur á að svara nú í
þessu blaði, en hann Ijet það vera.
Er þeim því hjermeð vísað til bæj-
arstjórnarinnar.
R i t s t j.
Hermann Jónasson,
fyrv. alþingismaður, er nýlátínn.
Pýskur togari
sökk undan Krísuvíkurbjargi.
Menn komust allir af.
Togararnir
hafa selt illa undanfarið.
II
Siglufjörður.
Bæjarstj órnin
hefir kosið 5 manna nefnd til þess að
ransaka og gera tillögur um, hvort for-
gangsrjettur B. Petersens til syðra sölt-
unarplássins sje úr gildi fallinn, eða ekki.
Sjúkrasamlagið
hjelt hlutaveltu á sunnudaginn var. Að-
sókn var fremur dauf.
Bæjarstjóri.
Grein með þessari yfirskrift kemur í
næsta blaði.
Alskonar Jólasúkkulaði
Epli og Vínber
bíður eftir kaupanda hjá
Friðb. Nielssyni.
Látið ekki svona góðan
mat bíða lengi.
Fundargerðabækur
Reikningsfærslubækur
Kontrabækur
Vasabækur
Stílabækur
Sögubækur
Ljóðabækur
Kensluhækur
fást hjá
Fríðb. Níelssyni.
BOLSKYRTUEFNI
hvít og svört, SILKI og MOLL
verður selt með miklurn afslætti til
JÓLA.
Sophus Arna.
T W I N K
í mörgum lilum nýkomið í
versl. Sig. Kristjánssonar.
Góð bók er tilvaiin
JÓLAGJÖF.
Allar nýustu bækurnar fást hjá
Friðb. Níelssyni.