Siglfirðingur - 21.12.1923, Page 4
14
Satt og logið.
F*að var settur og haldinn fund-
ur á sunnudaginn var. — Bæjar-
stjórinn var á dagskrá.
Thorarensen: »Jeg er á móti
bórgarstjóra. Jeg fæ aldrei jafn gott
yfirvald. Allar kæiur skriflegar og
vottfastar — takið eftir! Varið yð-
ur á greininni sem ekki er komin
í »SigIfirðing« og öllum greinum
sem Jaar eru ókomnar. F’etta er mitt
ráð — ókeypis recept — takið eftir.U
Flóvent: »Jeg vil hafa bæjarstjóra!
Hjer hefir enginn verksvit — það
skal jeg sanna ef jeg kemst að.
Alt er hjer á trjefótum, rekur sig
hvað á annað og veltur um koll
í nánustu framtíð. Hjer vantar mann,
sem lætur ekki alt hlaupa framhjá
sjer, eins og fít'l — það skal jeg
játa; mann, sem veit hvað hann
vill og gleymir ekki heilum bryggj-
um.«
Bíldal: »Jeg vil gera Flóvent að
bæjarstjóra. F’á fæ jeg máske að
hafa frið við moldarkerrurnar og
eldfæraskoðunina.«
Matthías: »Jegvil stofna embættið
bara handa Þormóði, »simpilthen«
og blátt áfrarn vegna þess, að
hafnarnefnd og bæjarstjórn ráða
ekkert við hann. Og hann á að
hafa gott kaup — ágætt kaup. —
Jeg borga.«
Oddvitinn: »Án þess jeg ætli
nokkuð að hrósa sjálfum mjer, þá
er jeg á sama máli og læknirinn.
Og þó mjer sje málið skiit, þá
verð jeg að segja það, að jeg er
á móti bæjarstjóra af þeirri ástæðu,
að jeg fæ ekki skilið, að þau störf
sem jeg hefi með höndum, sjeu til
tvískiftanna. F*ví — sjáið þið til
— Möller passar skipagjöldin,
Stebbi skemtanaskattinn, Dísa bæj-
argjöldin og Oli tollana. Og ef svo
á að koma bæjarstjóri, ja — hvað
á jeg þá að gera?«
Ovidus.
Með Sirius á morgun koma
JÓLATRJE.
Aðeins örfá óseld. Ennfr. kemur
ýmislegt smádót á jólatrje og vínber.
S. A. Blöndal.
SIOLFIRÐINGUR
B. D. S.
S.s. „Mercur“ fer 2 vetrarferðir í staðinn
fyrir „Sirius“ þannig:
Frá Kristianiu........18. jan. 22. febr.
— Bergen.............. 22. — 26. —
— Reykjavík...........28. — 3. mars
Til Siglufjarðar......30. — 5. —
Kemur við á sömu höfnum og „Sirius“ hefir gert.
Frá 1. apríl ganga 2 skip frá fjelaginu eftir
föstum áætlunum, Gengur annað þeirra (,Mercur‘)
aðeins á milli Reykjavíkur og Bergen hálfsmán-
aðarlega. Hitt skipið kemur upp að austurland-
inu og fer norður um land til Reykjavíkur og
síðan sömu leið til baka út.
O. Tynes.
Sorp- og salernahreinsunar-
starfið
í Siglufjarðarkaupstað til umsóknar.
Starfið veitist frá 1. jan. n. k. og eru árslaun 1500 kr. Umsóknir sjeu
komnar á skrifstofuna fyrir 3. jan. n. k. — Bærinn útvegar sorp- og
saurkassa til flutnings. — Hreinsunarmanni er skylt að sæta ákvæðum
erindisbrjefs um starfann.
Siglufirði, 13. des. 1923
Bæjarfógetinn.
„GAFFELBITER“
FRÁ
ÁSGEIR PJETURSSYNI
ERU ÓMISSANDI Á
JÓLABORÐIÐ.
I