Siglfirðingur - 22.02.1924, Blaðsíða 2
50
SIGLFIRÐINGUR
Er því bersýnilegt, að sjálfstæð-
isleyfarnar geta brugðið fáeti fyrir
hverskonar viðleitni Borgaraflokks-
ins til stjórnarmyndunar, með því
að snúast í lið með Framsóknar-
flokknum, þó þeir binsvegar niuni
ekki geta orðið sammála um að
mynda stjórn í sameiningu.
Pað má því búast við að þing-
störfin verði að þessu sinni, eins
og stundum fyrri, að meira eða
minna leyti tafin af reipdrætti og
flokkaríg og að það litla, sem gjört
kann aó verða, beri augljós merki
sundrungar og samtakaleysis, og
komi þarafleiðandi ekki að tilætluð-
um notum fyrir iand og lýð. En
slíkt kann ekki góðri lukku að
stýra til langframa, og hefur við-
gengist alt of lengi,
í fyrradag, þegar Kl. Jónsson
lagði fjárlagafrumvarpið fyrir þing-
ið, gat hann þess í ræðu sinni, að
samkvæmt lauslegu yfirliti yfir fjár-
haginn 1923, mætti búast við ná-
lægt U/a iniljón króna tekjuhalla á
því eina ári. Væri því ekki um
annað að gera næsta ár, en að
kippa að sjer hendinni um allar
framkvæmdir og verja tekjunum
einungis til skuldagreiðslu.
Síðustu fregnir segja að í undir-
búningi sjeu tvö frumvörp um
breytingu á stjórnarskránni, og lík-
legt taiið að annaðhvort þeirra
verði samþykt. Verður þá þingrof
og nýjar kosningar að hausti.
Taugaveiki
hefur komið upp á Akureyri, á
matsöluhúsinu ,Goðafoss‘, og liggja
nú fimm sjúklingar á sóttvarnarhús-
inu þar. Eru þeir all-þungt haldnir
en þó von um, að þeir muni lifa.
Eftir upplýsingum, sem blaðið
hefur fengið hjá hjeraðslækninum
hjer, er óupplýst ennþá, hvernig
veikin hefur borist inn á matsölu-
húsið en talið víst, að »bakterían«
sje í einhverjum matvælum þess.
Hefur því verið sett bann á húsið
að því er snertir tiýja gesti,
Eftir því sem blaðið best veit,
þá hafa nokkrir menn, hjeðan úr
Siglufirði, haldið lil eða komíð í
þetta hús, eftir að veikinnar varð
þar vart, en enginn þeirra hefur
þó veikst enn sem komið er. Aft-
Skrá yfir bækur
sem fást í bókaverzlun Friðb. Níelssonar.
N.
Norðurljósið, 4.—7. árg., innheftur í kápu 5,00
Nýa testamenti, vasaútgáfa í bandi 3,00
Námar Salomons, í kápu 2,00
Njósnarmærin, saga frá stríðinu, í kápu 3,00
Níu myndir úr lífi meistarans, í kápu 5,00
— — — — — í bandi 7,50
Negrastrákarnir, myndabók, 3,00
Ný lesbók, handa börnum og unglingum, í bandi 4,00
ur á móti voru þar um sama leyti
3 menn innan úr fljótum, og hafa
nú 2 þeirra lagst í veikinni. Og
tveir menn úr Ringeyjarsýslu höfðu
haldið þar til í nokkra daga, og
lögðust báðir eítir að þeir komu
heim til sín, og er nú annar þeirra
dáinn. Er það fyrsta dauðsfallið úr
veikinni sem til hefur frjest að
þessu sinni, og væri óskandi að
það yrðl einnig hið síðasta.
Sóttvarnarnefndin hjer hefur gert
ráðstafanir til þess að varna veik-
inni hingað, eins og sjá má af
auglýsingu á öðrum stað hjer í
blaðinu.
Eru menn alvarlega ámyntir um
að fara eftir fyrirmælum nefndar-
innar, því ella geta alvarlegar af-
leiðingar af hlotist.
Nokkur frarntíðarmál
Siglufjarðar.
n.
Höfnin„
Inngangur.
Engum þeim sem nokk-
uð hugsar um framtíð
Siglufjarðarbæjar, getur
blandast hugur um það, að höfnin
er það sem bærinn stendur og
fellur með. Höfnin er það sem
skapað hefir bæinn frá öndverðu
og undir henni er það að iang-
inestu leyti komið hvort Siglufjörð-
ur heldur áfram að vaxa og þrosk-
ast í framtíðinni eða hvort liann
veslast upp og verður að nokkur-
urn mannsöldrum liðnum, aðeins
blað í menningarsögu íslands á
20. öldinni í stað þess að vera
nyrsti forvörður ísl. menningar og
framtakssemi.
Rað gegnir því stórfurðu, hve
nauðalítið hefir verið gjört til þess
að viðhalda og bæta þessa líflind
bæjarins; — varða um og bæta
þessa bæjarins og 1 a n d s i n s
arðbærustu eign, því ekki þarf að
sanna það hjer með tölum, að
Siglufjarðarhöfn gefur Iandinu lang-
mestar tekjur tiltölulega, af öllum
eignum landsins.
Rað vantar ekki, að
talsvert hefir verið rætt
og ritað urn endurbæt-
ur á Siglufjarðarhöfn á undanförn-
um árum. Gamli »Fram« byrjaði
fyrsta blað sitt á því, að taka hafn-
armálið til íhugunar og síðan hefir
það oft verið- gjört, — altaf af
góðum vilja, en oft af misjöfnu viti.
En þetta hefir að mestu seíið við
orðin tóm; framkvæmdir hafa litlar
orðið, sem að gagni má telja. Og
þó er hjer það vá fyrir dyrum að
við svo búið má ekki standa leng-
ur. Höfnin grynnist sem
sje ár frá ári, og áður en
nokkurn varir, er innhöfnin orðin
óskipgeng öðru en smáfleytum, ef
ekki er að því gjört í tíma og geta
allir sjeð hvílíkur voði bænum er
búinn með því, ef sá hluti hafnar-
innar sem einan má telja örugt
lægi, eyðilegst,
Hjer þarf því skjótra
og röggsamlegra að-
gerða við. D ý p k u n
innri hafnarinnar er það
málið sem hafnarnefnd
o g bæjarstjórn þurfa að
setja efst ádagskrá sína
þegar á þessu ári.
Uppmokst-
ur hafnar-
innar.
Höfnin
grynnist
ár frá ári.