Siglfirðingur - 13.06.1924, Síða 3
103
SIQLF IRÐINOUR
m
Notið aðeins
Kalcium þaklakk
á húsþök yðar í stað Blackfernis (jafnt á járn trje og
pappaþök), því það gjörir þau algjörlega vatnsþjett og
myndar glerharða húð, sem endist afar lengi. Verð-
ið er aðeins 80 aura kg’. ef tekið er á heihhúsþök.
Pekí um aílan heim!
Friðb. Níelsson.
S I y s.
í gærkvöld um kl. 8 fóru 2 menn
á báti frá mk. sBára«, sem lá uppí
fjöru á Akureyri, til þess að leggja
varpakkeri fram af skipinu. En þeg-
ar akkerið fór fyrir borð, festist
önnur flugan í bátnun og kvolfdi
honum. Annar maðurinn bjargaðist
en liinn, Jónas Friðriksson frá
Kambhóli, druknaði.
Erl. símfrjettir.
Allsherjarjárnbrauíarverkíall hófst
í Lundúnaborg um síðustu helgi,
svo samgöngur til og frá borginni
eru stöðvaðar að kalla má.
Doktor Marx hefur tekist að
mynda stjórn aftur í þýskalandi
með söinu ráðherrurn og áður. —
Kommúnisíar liafa komið á stað
miklum róstum þar i landi.
Frakkinn Oisy hefur flogið frá
París til Tokio.
Uruguaymenn kafa sigrað við
knattspyrnuna á Olympíuleikjunum
í París.
Bráðabyrgðarstjórn var mynduð
í Frakklandi undir forsæti Marsalls
aðeins til þess aó birta boðskap
Millerands forseía um að hann segi
því að eins af sjer forsetastörfum,
að báðar deildir þingsins neiti að
vinna með sjer á grundvelli stjórn-
skipunarlaga landsins. — Pennan
boðskap hefir öldungadeildin frest-
að að taka til umræðu með 154
atkv, gegn 144. En fulltrúadeildin
samþykti með yfirgnæfandi meiri-
hluta tillögu frá ’Herriot um að
neita að ræða boðskapinn.
Eítir þetta sagði Millerand af sjer
og fer forsetakosning fram 13. júní
(í dag). — Úrslitunum fagnað af
frjálslyndum. Stjórnarmyndun frest-
að þangað til forsetakosningin er
afstaðin.
Fyrirspurn
til brunamálanefndar.
Er það leyfilegt að hafa steinolíu-
geymslu inn í bænum? Og ef svo
er, hví er olíunni valinn staður svo
nærri íbúðarhúsum eins og nú er?
Bent skal á það einnig, aö olíaner
svo nærri fjölfarinni götu, að ekki
þarf nema ofurlitla ógætni af veg-
faranda, t. d, að hann fleyji frá sjer
eldspííu logandi vindiistúf eða sig-
aretíuenda, þá er alt í báli og brandi,
því jarðvegurinn er ailur sinitaður
olíu úr trjetunnunum. Og hver get-
ur sagt um það feiknatjón sem af
slíkri íkveykju hlytist, t. d. við
sprengingu stáltunnanna. Hefir
brunamálanefndin gert sjer Ijósa
grein fyrir því hver feikna voði af
slíku gæti leitt. Og hefir hún yfir
höfuð noklcuð athugað um þetta
mál?
Eldhræddur.
Frjettir.
O. C. Thorarensen lyfsali (yngri)
á Akureyri, heíir' verið skipaður
norskur konsúll frá 1, júníað telja.
Gagnfræðaskólanum á Akureyri
var sagt upp 1. þ. m. Tóku 39
nenrendur fullnaðarpróf, þaraf 26
með I einkun. 12 með 11 einkun og
1 með III einkun.
Læknaþing verður haldið á Ak-
ureyri í sumar. Búist við að læknar
muni sækja það víðsvegar að af land-
inu.
»Sjöstjarnan« eign Stefáns Jóns-
sonar skipstj. á Ákureyri, fór til
Englands með frosinn kola 4. þ. m.
Um bæjarfógetaembættið í Vest-
manneyjmn hafa þessir sótt: Bogi
Brynjólfsson sýslumaður í Húna-
vatnssýslu, Kr. Linnet sýslum. í
Skagafjarðarsýslu, Pálljónsson iög-
maður á ísafirði, Sigfús Jóhnsen og
Sig. Sigurðsson fulltrúar í stjórnar-
ráðinu.
Rannsóknaiskipið Dana, er kom-
ið til Reykjavíkur.
Hestamannafjelagið »Fákur« í
Reykjavík efndi til kappreiða á ann-
an í hvítasunnu.
- Prófi í efnafræði luku átta stud-
endar í fyrradag.
Prjú börn hafa fengið mislinga í
Reykjavík þessa viku. Veikin væg.
íslandsfaik er á leið til Græn-
lands.
Sjera Jóhann Porkelsson, dóm-
kirkjuprestur í Reykjavík, hefur'sótt
um lausn frá prestskap frá 1. okt.
Porsteinn Benedildsson, prestur í
Lundi, andaðist 9. þ. m.
Barnaveiki hefur gert vartvið sig
í Fljótshiíð undir Eyjafjöllum.