Siglfirðingur - 18.11.1924, Page 1
SIG LFIRÐINGUR
I. árg.
Siglufirði 18. nóv. 1924.
40. blað
Hugleiðingar.
Hinn geysimikli ósigur A-lista-
manna við hvorttveggju hinar ný-
afstöðnu kosningar gefur tilefni til
hugleiðinga um breytingu þá á hug-
arfari borgaranna, sem kosningar
þessar benda íil að orðin sje.
Undanfarið hafa, eins og áður
heíir verið tekið fram hjer í blað-
inu, tvö fjelög nálega eingöngu tekið
þátt í fulltrúatilnefningu, þegar kosn-
íngar til bæjarsíjórnar eða niður-
jöfnunarnefndar hafa staðið fyrir
dyrum. Og jafnan hefir verið tölu-
vert kapp milli þessara fjelaga um
það, að eiga sem flesta fulltrúa í
stjórn bæjarins, -og má svo heita,
að það hafi verið orðið fjelögunum
metnaðarmál, að verða ekki undir
við kosningar.
Ekki verður þó í fljótu bragði
sjeð, að ágreiningur eða skiftar
skoðanir á neinum ákveðnum bæj-
armálum hafi verið því valdandi,
hve fjelög þessi hafa sótt róðurinn
fast í þessu efni. Mun þar meiru
hafa ráðið kapp en forsjá.
Fylgi borgaranna hefir svo að öðr-
um þræði skifst eftir fylgi þeirra
við þessi fjelög, en að nokkru hefir
það snúist um þá menn, sem í það
og það skiftið hafa verið í kjöri.
Kosningarnar hafa því að miklu
leyti snúist um menn, en ekki mál-
efni. Og þó að ágreinings hafi við
og við orðið vart um stjórn bæjar-
málanna út á við — framkvæmdir
eða framkvæmdaleysi — þá hefir
sá ágreiningur venjulega verið í
molum og engin heildaráhrif haft
við kosningar.
Siglfirðingar hafa verið frábitnir
því, að standa í stórræðum, eða að
láta sig stjórnarfar bæjarins nokkru
skifta. Þeir hafa látið líða um dal
og hól, þó að þeim hafi þótt eitt-
hvað athugavert við gerðir stjórn-
endanna og að jafnaði hliðrað sjer
hjá athugasemdum eða aðfinslum.
En nú virðist vera orðin breyt-
ing á þessu.
Fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfall og jarðarför fósturdóttur
okkar, Pálmínu Einarsdóttur, þökkum við undirrituð hjaríantega Sjer-
stakt þakklæti sendum við tóbaksbindindinu »Gunnar«, er á svo hug-
næman hátt kvaddi fjelagssystur sína í síðasta sinn.
Siglufirði, 4. nóv. 1924.
Inda Tynes. Ole O. Tynes.
Nú er annað áðurnefnt fjelag
gengið úr Ieik við fulltrúatilnefningu
og, sem slíkt, hætt að taka þátt í
kosningum. Nú skiftist fylgi borg-
aranna á alt annan veg en áður var.
Nú vinna fjölda-margir gamlir kosn-
inga-andstæðingar saman í sátt og
samlyndi að því, að koma hæfum
og gætnum mönnum í bæjarstjórn.
Nú eru örfáir menn, sem áður fylgdu
Verkamönnum viðkosningar,gengnir
í lið með einstaka skáskífum úr
Verslunarmannafjelaginu og mynda
þeir fáránlega og lítt skiljanlega sjer-
stöðu — klíku — sem virðist ekki
hafa annað á stefnuskrá sinni en
starblint persónufylgi. Nú er lang-
samlegur meiri hluti borgaranna að
sameinast um það, að vinna í bróð-
erni að velferðarmálum bæjarins.
Nú snúast kosningarnar um málefni,
en ekki menn. Nú er sama, hvort
fulltrúaefnið heitir Pjetur eða Páll.
Nú er það heill bæjarins,
sem kept -er að við kosningar, og
sem alfarið ræður úrslitunum.
Hjer er um all-verulega breytingu
að ræða frá því sem áður var, og
er því ekki úr vegi, að gera sjer
Ijóst, hvað það er, sem þessum
breytingum hefir valdið.
Pað sem vakti borgarana til með-
vitundar um skyldur sínar við bæj-
arfjelagið var það, að meiri hluti
bæjarstjórnar leyfði sjer að leigja
útboðslaust dýrmætustu eign bæj-
arins fyrir hlægilega lágt verð, til
þess, að því er talsmenn þessa til-
tækis útskýrðu, að hlaupa undir
bagga með leigjendunum, af því að
þeir hefðu tapað á síðastliðnu sumri.
Pað var þetta bryggjuleigu-frum-
hlaup, sem ppnaði augu borgaranna
fyrir þvf öfugstreymi, sem verið hefir
innan bæjarstjórnar undanfarna mán-
uði, og farið hefir æ versnandi. Pað
var þetta atriði, sem kom hinu svo-
kallaða uppþoti á stað, sem hefir
sameinað borgarana betur en nokk-
uð annað um það, að vinna í bróð-
erni að góðum málsíað — heill og
framförum bæjarins.
Nú snýst hugur bæjarbúa um það
eitt — og ekkert annað — að koma
»þeim sem hneykslunum valda«
fyrir kattarnef. Bæjarstjórnin hefð
ekki átt að ganga þess duiin, aði
»svo má brýna deigt járn að bíti«,
og að einhverntíma mundi loga upp
úr. Og það geta þeir hinir sömu
bæjarfulltrúar, sem hjer eiga hlut að
máli, verið fullvissir um, að borg-
arar bæjarins hætta ekki fyr en þeim
er öllum bolað burtu úr bæjarstjórn,
þótt þeir í skammsýni sinni jjrjósk-
ist við að ganga úr henni af frjáls-
um vilja, þó að þeir finrii það, að
þeir sitji þar í óþökk alls þorra bæj-
armanna. — Pví að það hljóta
þeir að finna.
Pað er þess vegna alger óþarfi
fyrir Framtíðina að vera að fárast
yfir því, að nú sjeu íveir andstæðir
flokkar teknir höndum saman, eða
leggja menn á metaskálar og »sort-
jera« þá eins og sláturfje í sjerstaka
flokka. Verkamenn eru ekki fremur
verkamenn í þarfir bæjarfjelagsins
en kaupmenn og iðnaðarmenn eða
útgerðarmenn eðá læknar eða kenn-
arar. Par eru allir jafnir. Allir gjalda
sinn skerf til bæjarfjelagsins og hafa
allir sinn óskoraðan rjett til að heimta
það, að ekki sje gálauslega farið