Siglfirðingur - 21.03.1931, Blaðsíða 1
Símfregnir frá Rvík,
Alþingi.
15. mars: E.d. hefir með 9 gegn
5 atkv. samþ. frv. um dýrtíðarupp-
bót embættismanna, og afgreitt það
tii n.d. Sjálfstæðismenn í sjávarút-
vegsnefnd n.d. ílytja breytingar á
lögum um rekstur síldarbræðslu-
verksmiðju ríkisins, svipaðar breyt-
ingunum á Síldareinkasölulögunum.
J'rfn íð irmenn flytja frv. u;n ríkisút-
gáfu skóiabóka og um mannafla á
íslenskum eimskipum og mótorskip-
um. Eri. flytur einkasöluheimiid fyr-
ir bæjar- og sveitarfjelög.
18. mars: Snarpar umræður urðu
um fimtardómsfrumvarpið, aðallega
milli Jónasar annarsvegar og Pjet-
urs Magnússonar og Jóns Porláks-
sonar hinsvegar, frumvarpið komst
samt til nefndar. Frumvarp Har-
aldar um tekjuskatt og eignaskatt
iiefir verið til umræðu og var aðal-
lega deilt um 8. gr., en ''l henni
stendur að tekjuskattinri megi með
fjárlagaákvæði lækka og hækka um
ákveðna hundraðstöiu, alt að 25
prc. eitt og eitt ár í senn. Telja
margir þingmenn þetta brot á 34.
gr. stjórnarskrárinnar og kröfðust úr-
skurðar forseta, er feldi þann úrskurð
að greinin kæmi í bága við stjórn-
arskrána, og kæmi því ekki til at-
kvæða og yrði feld úr frumvnrpinu.
Ingvar og Jón Baldvinsson, sem
rrieiri hluti fjárhagsnefndar, vilja
samþ. frv. um einkasölu á tóbaki
og eldspítum. Sveinn Olafsson fiytur
írv. um eítirlit með loftskeytanotk-
un botnvörpunga. Halldór Steinsson
og Pjetur M. flytja fiv. um breyt-
ingu á lögum um varnir gegn kyn-
sjúkdómum. Jón Olafsson og Har-
aldur flytja frv. um Utvegsbanka ís-
lands.
19. mars: Breytingartill. frá Pjetri
M. og Páli Herm. um að ríkissjóð-
ur greiði flutning á tilbúnum áburði,
ef vegalengdin sje yfir 30 km. var
feld í e.d. Frv. Erlings um einka-
söluheimild sveitar- og bæjarfjelaga
var vísað til nefndar. P'rv. sjálfstæð-
ismanna um breytingu á síldareinka-
sölunni og frv. Jóhanns Jósefssonar
um sjóveitu í Vestm., hefir verið
vísað til nefndar. Ný tnál: ingvar
flytur breytingu á Samvinnulögun-
um, til þess að gera þau skýrari.
Hjeðinn og Sigurjón vilja fjölga þing-
mönnum Rvíkur jupp í niu. Bjarni
flytur breytingu á lögum um Bygg-
ingar og landsnámssjóð.
20. mars: Ný mál: Frv. um bú-
fjárrækt, framborið af landbúnaðar-
nefnd. Frv. um andleg verk, flm.
Haraldur og Ásgeir. Um veitingu
læknishjeraða og um heilbrigðisráð,
flm. Magnús Jónsson. Frumvarp
um lýðskóla samkv. hugmynd Björg-
vins sýslumanns, framborið af
þingm. úr öllum flokkum. Frv. um
breytingu á útvarpslögunum flm.
Magnús Jónsson.
Páll Halldórsson, skólastjóri sjó-
mannaskólans, hefir skrifað efri deild
--------------------------J-------
Alþingis brjef, þar sem hann biður
um leyfi til þess að meiga stefna
dómsmálaráðherra, eða til vara Ing-
vari. Pálmasyni, fyrir ummæli_____í
greinargerð fimtardómsfrumvarpsins.
21. Fjármálaráðherra svarar í dag
fyrirspurn Jóns Porlákssonar viðvíkj-
andi skekkjum í skýrslu hans um
fjárhag ríkisins 1930. M. Guðm.
ber fram fyrirspurn til dómsmála-
ráðh. svohlj.: Eftir skýrslum sem
fyrir hendi eru hefir ríkissjóður ár-
in 1928—1930 lagt tæplega 350 þús.
kr. til byggingar Laugaskólans en
samkvæmt lögum nr. 37. 1929 á
jafnmikið fje að leggjast fram ann-
arstaðar frá. Hverjir hafa lagt þetta
fje fram og hvað mikið hver.
Stjórnarmyndun Finnlands.
15. mars: Kallio hefir gefist upp
við stjórnarmyndun eftir viku til-
raunir.
19. mars: Svinhufvud hefir falið
Sunilla forseta landbúnaðarráðsins
að mynda stjórn.
21. mars. Sunilla hefir myndað
borgaralega stjórn.
Frá Englandi..
18. mars: í neðri málslofu þings-
Jakob Björnsson,
sildarmatsmaður á Svalbarðs eyri,
andaðist 16. þ. m.
Trúlofun sina
opinberuðu í Leith 17. þ. m.
ungfrú Sigrún Pormóðsdóttir og
Svavar Guðmundsson, Hannessonar
prófessors. ________________.______
ins beið enska stjórnin ósigur við
atkvæðagreiðslu um að banna Lund-
únarháskóla að senda framvegis
fulltrúa á þing, voru 242 með en
246 móti.
19. mars: Aukakosning í dag í St.
Georges kjördæmi í Westminster
vekur mikla eftirtekt vegna þess að
Sir Ernest Patter, óháður íhalds-
maður, er þar frambjóðandi í trássi
við Stanley Baldwin. Patter þessi
er einn kunnasti kaupsýslumaður
Bretlands. -*- Tala atvinnnlausra
hefir enn aukist um 56 þiís.
21. mars; Óháði íhaldsmaðurinn
komst að; fjekk fleiri atkvæði en
flokksframbjóðandinn.
Aflabrögð og fisksala.
18. mars: í Keflavík er ágætis
afli og er meiri fiskur kominn þar
á land nú, en á sama tíma í fyrj’‘þ
Aflasala: Gylfi U5Ö, Hilmir 800.
Surprise 933, Porgeir Skorrageir
875 stpd. — Botnvörpungar þeir,
sem inni hafa legið, búast nú til
saltfisksveiða, margir fara út í kvöld
og nótt.
Skipsströnd.
18. mars: Færeyisk skúta, Queen
Victoria, strandaði kl. 4 í morgun
á Meðaliandssandi; mannbjórg.
19. mars: Selveiðaskipið „Viking“
fórst við Nýfundnaland vegna ket-
ilsprengingar; seytján manns drukn-
uðu en 120 komust af eftir sólar-
hrings hrakninga í ís.
20. mars: Breskur botnrörpungar,
Lord Beaconsfjeld strandaði í gær-
kveldi á 3Öndunum austan Kúða-
fljóts; mannbjörg. — Frá Hammer-
fest er símað að gufuskipið „Flera
hafi strandað þar í gær. 8 menn
menn fórust en 57 var bjargað.
Frá Glasgow gr símað að gufuskip-
ið „Citrina" hafi strandað við lsle
of man; níu menn druknuðu.
21. mars: Vjelbáturinn Óli frá
Súðavík rakst á ísjaka út af Akra-
nesi og sökk samstundis. Formað-
urinn komst upp á ísjaka en há-
setarnir hjeldu sjer uppi á bélgium
uns annar bátur kom og bjargaoi
þeim.