Siglfirðingur - 29.08.1931, Side 1
o
IV. árg.
Siglufirði, Laugardaginn 29. ágúst 1931
40. tbl.
Hjermeð færum við okkar hjartans þakklæti öllum þeim nær og fjær,
sem sýndu okkur hluttekning, í veikindum og við dauða oklcar elskulegu
eiginkoná og móður, Bjargar Sigríðar Sæby.
Siglufirði, Ránargata 13, 29. ágúst 3931.
Eiginmaður og börn.
P i n g 1 o k i n.
Fertugasta og fjórða löggjafarþing
ísl. þjóðarinnar lauk störfum síðari
hluta dags, mánudaginn 24. þ. m.
Hafði þingið þá staðið tæparóvik-
ur, eða rjettan 41 dag. Er þetta
nokkru styttri tími en gengið hefir
til undanfarinna þinga, enda þingið
aukaþing, og, ef satt skal segja, eitt-
hvert gagnslausasta þingið sem háð
hefir verið.
Ekki verða hjer rakin störf þess,
en vera má að blaðið, við tækifæri,
flytji ágrip afþeim lögum, sem þing-
ið afgreiddi, til þess að gera al-
menningi auðveldara að fylgjast þar
með.
Mjög þóttu störf þingsins ganga
hægt allan þingtímann, einkum þó
framanaf. Síðasti þingdagurinn var
þó undanlekning hjer frá, því þá
voru haldnir 6 þingfundir, 2 í efri-
deild, 3 í neðrid. og 1 í sam. þingi
til þess að afgreiða með afbrigðum
frá fundarsköpum nokkur !ög, sem
Framsókn ekki vildi aðdöguðu uppi.
Als voru haldnir 41 fundur í n.d.
42 í e.d. og 7 í samein. þingi. Á
síðasta fundi í sam. þingi fóru fram
kosningar ýmsra starfsmanna:
Gæslustjóri Söfnunarsjóðs til loka
1935 var kosinn Bjarni Ásgeirsson
alþ.m. I verðlaunanefnd gjafar Jóns
Sigurðssonar: Hannes Porsteinsson,
Ólafur Lárusson og Barði Guð-
mundsson. Mentamálaráð íslands:
Ragnar Ásgeirsson, Barði Guð-
mundsson, lng:bj. H. Bjarnason,
Árni Pálsson og Stefán Jóh. Ste-
fánsson. í útflutningsnefnd Síldar-
einkasölunnar voru kosnir með hlut-
fallskosningu: Einar Árnason bóndi
á Eyrarlandi, Björn Líndal lögfr.
Svalbarði og Böðvar Bjarkan lögfr.
Akureyri. Varamenn nefndarinnar
eru í sömu röð: Ingimar Eydal,
Stefán Jónasson og Porm. Eyólfs-
son. Yfirskoðunarmenn landsreikn-
inganna voru kosnir: Hannes Jóns-
son, Pjetur Pórðarson og Magnús
Guðmundsson.
P'orseti sam. þings, í stað Ásg.
Ásgeirssonar, var kosinn Einar
Árnason, Eyrarlandi.
Fjárlögin fyrir 1932 voru afgreidd
með tæplega 60 þús. kr. tekjuhalla.
Merk bók.
I haust er væntanleg á bókamark-
aðinn ný bók eftir Bjarna prófessor
Porsteinsson, prest í Siglufirði, sem
heitir:
Pjóðlegt sönglif d Islandi
að fornu og nýju.
Bók þessi er heldur lítil, tæpar
100 blaðsíður. Hún er samin við
alþýðuhæfi, þótt visindarit sje, og
verður seld við vægu verði. Hjer
er því um sjerstaklega hentugt tæki-
færi að ræða fyrir alla þá, sem þjóð-
legum fræðum unna — og, þá sjer
staklega á sviði sönglistarinnar —
til þess að afla sjer mikilsog marg-
brotins fróðleiks fyrir mjög lítið verð.
- Pað má því gera ráð fyrir að
bókin seljist upp á skömmum tíma.
Pað skal þó tekið fram, að höfund-
urinn hefir áður gefið út bók um
þetta sama efni, sem heitir „Islenzk
þjóðlög" og kom hún út fyrir 25
árum. En bæði er sú bók 25 árum
eldri en þessi, og svo er hún það
stór og dýr, að hún hefir eVki og
verður ekki almennt keyft og lesin
af alþýðu manna. En þessari bók,
sem nú er að koma út, er ætlað bæta
úr þessu.
1 inngangi bókarinnar kemst höf.
svo að orði:
„Prir verða aðalkaflar rits þessa.
Hinn fyrsti er um sönglíf og söng-
kennslu á Islandi frá elztu tímum
og fram um árið 1900. Annar kafl-
Norskt fiskiskip
nýtt, 28 smál., 55x15x7, 40 hk.
Viktman vjel, 8 mílna hraði, raf-
lýst, alt fyrsta flokks, er til sölu.
Verð 25,000 Nkr.
HANS O. SÆVIK
Leinöy pr. Aalesund.
inn er um íslenzk þjóðlög yfirleitt,
eðli þeirra og einkenni, svo og um
hinar sjerstöku tegundir þeirra, svo
sem hinn íslenzka tvísöng, gömlu
sálmalögin, rímnalögin o. fl. Priðji
kaflinn er um hin íslenzku hljóð-
færi, fiðluna og langspilið.
Að miklu leyti má rit þetta heita
frumsamið nú; en að nokkru leyti
er það útdráttur úr safni mínu,
„íslenzk Pjóðlög", sem gefið var út
í Kaupmannahöfn 1906—1909.
Pað rit er stórt og umfangsmikið,
nærfellt 1000 bls. að stærð og vann
jeg 25 ár að söfnun til þess og
samningu. Mjer er það hið mesta
áhugamál og hefur lengi verið, að
þekking manna mætti aukast, bæði
utan lands og innan, á íslenzkum
þjóðlögum, hve gömul þau eru og
góð, hve einkennileg þau eru og
rammíslenzk bæði að efni ogformi,
og hvílíkan fjársjóð vjer oigum á
þessu sviði, ekki síður en á öðrum
sviðum þjóðfræða, jafnvel frekar, og
því hef jeg samið þessa bók, er hjer
liggur fyrir, minni og handhægri en
hina, ef ske mætti að bók þessi fengi
fleiri kaupendur og fleiri lesendur
en hin, og gæti þannig að nokkru
rofið þokuna og þögnina, sem enn
ríkir um of kring um þetta hugtak:
íslenzk Ijóðlög".
Önnur blöð eru vinsamlega beð-
in að birta grein þessa.