Siglfirðingur - 09.03.1935, Blaðsíða 3
SIGLFIRÐINGUR
3
N ý k o m i 9:
Pverskerar, Langskerar, Sting-
sagir, Bakkasagir og 2 tegundir
Stórviðarsagir, — Einnig 2 teg-
undir af Járnköllum.
Einar Jóhannsson & Co.
Kjötfars M
«
og 'Of
Vínarpylsur
fást í
o£
Kiötbúð Siglufjarðar.
Síldarnætur & síldarnótastykki
Ef þér viljið spara útgerðarkostnað yðar,
þá notið aðeins fyrsta flokks veiðarfæri.
Messrs. J. & W. STUART LIMITED, Musselburgh Scotland,
hefur framleitt fiskinet og fiskinetagarn síðan 1812, eða i 123 ár.
Frá því fyrsta hefir verksmiðjan fengið orð fyrir að framleiða þau
beztu veiðarfæri sem völ er á. Pað er reynsla fiskimanna hér á
íslandi, sem reynt hafa SÍLDARNÆTUR frá STUART, að betri
síldarnætur hafi þeir aldrei brúkað, bæði hvað styrkleika og fiski-
, sæld snertir. Spyrjið þá sem brúkað hafa SÍLDARNÆTUR frá
STUART, um gæði freirra.
Ollum fyrirspurnum svarað greiðlega,
sendið fyrírspurnir yðar sem fyrst.
HELGI H. ZOEGA,
Einkaumboðsmaður fyrir J. & W. Stuart Limited, Musselburgh
P.O.BOX 131. Símskeyti: „HELGI ZOEGA REYKJAVÍK"
er ekki vitað til fulls enn, en ef
dæma má eftir mjótkursöluhersing-
unni o.fl. stjórnarliði, má búast við
að margur maðurinn verði dýr.
Hérvið bætist húsaleiga, sem
er eins og vita má ærið dýr í Rvík.
Er þar ekkert til sparað.
T.d. hefir skipulagsnefnd (RauðkaJ
aðsetur í dýrasta stað í bænum.
Hún leigir skrifstofupláss í stórhýsi
Jóns Porlákssonar í Austurstræti.
Lágt er reiknað þótt áætlað sé að
kostnaður við allar þessar nefndir
og ný embætti skifti hundruðum
þúsunda.
Næsta sporið verður sennilega
að ríkissjóður þarf að byggja yfir
allt farganið Arnarhvál nr. 2, uppá
einar 300 þúsundir.
Bæjarfréttir.
Síðustu viku
hafa verið miklar veðurblíður,
suðvestan þíðviðri og er nú snjór
horfinn að mestu.
Atli er
heldur tregur. Hafa bátar róið
nokkra róðra héðan. Hefir mest
fengizt 3000 kg. í róðri. En fisk-
urinn er vænn.
Undanfarið
hefir Kvenfélagið sýnt hér tvo
smáleiki við mikla aðsókn. Sýnir
þetta ljóst hve mikil nauðsyn hér
væri á skipulagsbundinni, góðri
leikstarfsemi. Margt var prýðilega
leikið í smáleikjum þessum og sýndi
meðal annars að bænum hafa bæzt
nýir leikkraftar. sem auk þeirra
gömlu, er synd að eigi fái að njóta
sin.
Hin árlega
skemmtun barnaskólans til ágóða
fyrir ferðasjóð barnanna verður að
öllu forfallalausu 16, þ. m. í Bíó
húsinu. Sýna börnin þar sjónleik
í tveim þáttum, leikfimi o.fl. Par
syngur einnig kór barna. Pess má
geta, að sjónleikur barnanna er
mjög fallegur og með talsvert öðru
sniði en hér hefir áður sézt.
Undanfarna daga hafa staðið yfir
samningar milli bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar annarsvegar og KEA, Akur-
eyri hinsvegar, um sölu mjólkur
hingað til bæjarins.
Hefir þess mjög gætt í samning-
um þessum, að bærinn væri þarna
að semja við „stórveldi“, sem gæti
boðið byrginn slíku kotríki og Siglu-
fjarðarkaupstaðar er, og mjögkennt
dælsku af' kaupfélagsins hálfu,
Má |sem dæmi nefna það, að
loks þegar samningum var svo langt
komið, að bæjarstjórn þóttí viðlit
að taka boðum KEA, símar hún
og kveðst mundu fús að semja á
þessum grundvelli, og mundi hún
senda menn til samningagerðar við
fyrsta hentugt tækifæri. En þá
kemur eítt voldugt ultimatum frá
stórveldinu sem heimtar að gengið
sé að eða frá tilboðinu strax á
stundinni.
Nú er svo komið málum þessum
að á bæjarstjórnarfundi í dag var
samþykkt með 5 gegn 1 að slíta
öllum samnihgatilraunum við KEA
um þetta mál. Siglufjörður er því
frjáls orðinn og laus við að „inn-
limast" í „stórveldið" fyrst um sinn
að minnsta kosti.
K. E. A. er nú þegar farið að
teygja arma sínu hingað til Siglu-
fjarðar, og á nú hér stóreign sem
það hefir keypt með aðstoð ríkis-
ins. Petta er Bakkaeignin með ís-
húsinu, Pað er engin furða þótt
slíkur auðhringur og K. E. A. vekji
ótta almennings. Skattfrjálst ogstyrkt
á marga lund öðruvísi af ríkisvald-
inu, býður það byrginn jafnvel heil-
um bæjarfélögum. Nú undanfarið
standa yfir harðar deilur milli K.
E. A. og íslendings um réttmæti
skattfrelsis kaupfélaganna, Par geng-
ur einn ungur Sjálfstæðismaður fram
fyrir skjöldu og býður þessu stór-
veldi byrginn. Menn undrast dirfsku
hans og hópast undir merki þess
flokks er hann tilheyrir, og sem
hefir frelsið efst á sinni stefnuskrá.
Skattabyrgði þeirri í bæjarútgjöld-
um er K. E. A. hefði að réttu átt
að greiða á Akureyri er velt yfir á
fátæka verkalýðsborgara þar og
millistéttamenn. Sama sagan mun
endurtakast hér ef það nær hér
fótfestu.__________________________
Ritstjóri og dbyrgðarm.:
Sig. Björgólfsson.