Siglfirðingur


Siglfirðingur - 09.03.1935, Side 4

Siglfirðingur - 09.03.1935, Side 4
4 SIGLFIRÐINGUR Röng mælitæki og rangar vogir. Pað hefir ekkiveriðum það getið í blöðum stjórnarflokkanna né í út- varpinu að upp er komið og opin- bert, að mikill meirihluti mælitækja voga, lóða og kvarða austan og norðaustanlands hefir við rannsókn reynzt stórkostlega rangur. Kom í ljós við rannsókn, er M. Guðm. fyrv. dómsm.ráðh. fyrir skipaði. og löggildingamaðnr mæli- tækja, Óskar Bjartmars, framkvæmdi að skekkjan hefir numið 5—15 prc. og í mörgum tilfellum uppí 20 prc. Pað hefir aldrei verið tilgangur- inn hjá þeim, er á þetta hneyksli hafa minnzt, að halda því fram, að hér sé um vísvitandi svik að ræða af þeirra hálfu er mælitækin eiga. En þegar stjórnarblöðin gera úlf- alda úr mýflugu ef um er að ræða miklu smávægilegri misfellur í at- vinnurekstri, t. d. mælitæki Kveld- úlfs og flöskurnar á Korpúlfsstöðum, skyldu menn ætla að vandlætingin kæmi eigi síður fram við aðra, — jafnvel flokksmennina sjálfa. Ætli hefði ekki heyrzt óp og ýlfran úr herbúðum stjórnarliðsins yfir samskonar vanrækslu og slíkt kallað þar „glæpamennska", „ok- ur“, „auðvaldskúgun", og jafnvel höfðað mál og fyrirskipuð saka- málsrannsókn, ef andstæðingar hefðu átt í hlut. En nú vill svo til, að mikill hluti þessara fyrirtækja eru kaupfélög og stofnanir, er stjórnar- liðið álítur viðurhlutamikið að styggja með miklu brölti og hávaða. Hefir því verið þagað um þetta. En óviðkunnanlegt finnst mörg- um, að haldið skulí hlífiskyldi yfir samskonar „athæfi" stjórnarliða og stjórnarandstæðingar eru ofsóttir fyrir með odd og egg. Löggildingamaður hefir nú sent skýrslu til stjórnarinnar, og það fyrir all-löngu, um þetta hneykslismál. En það hefir algerlega verið um þetta þagað. Hvað mikið hafa þessar stofnan- ir haft af viðskiftamönnunum með þessum mælitækjum? Og því fá ekki þessir aðilar refsingu að lög- um fyrir notkun rangra mælitækja? Á þessar vogir hafa þó vegnar ver- ið vörur bændanna og sjómann- anna, ullin, kjötið, fiskurinn, olían og fleira. Verið einhuga um að iíftryggja yður hjá eina innlenda líftryggingarfélaginu LÍFT RYGGING ARDEILD Sjóvátryggingarfélags Islands h.f. Umboðsmaður á Siglufirði er Porraóður Eyóltsson konsúll. Hér skulu nefnd dæmi: Hjá Kaupfélaginu á Hornafirði voru 9 vogir rangar, þar afóstórar decimalvogir (200—500 kg.). Par voru 58 lóð röng, en 26 rétt, og hin þyngri lóðin voru röng, en hin léttari (gramma-lóðin) voru rétt. Hjá Kaupfélaginu á Reyðarfirði voru 6 decimalvogir (200—500 kg.) allar rangar. Par voru 35 lóð röng, þar á meðal öll þyngri lóðin, en aðeins 5 rétt, smálóð, er vega 50— 500 grömm. Par voru tveir kvarð- ar í búðinni, báðir rangir. Hjá Kaupfélaginu á Mjóafirði voru öll mælitæki ólöggild og röng nema ein lítil borðvog. Hjá Kaupfélaginu á Seyðisfirði vöru þrjár stórvogir rangar, en ein lítil borðvog rétt, 19 Ióð röng, en 5 rétt, og báðir kvarðarnir rangir. Hjá Kaupfélaginu á Húsavík voru 4 vogir rangar, þar af ein stór (503 kg), annar hver kvarði var rangur og auk þess ein olíudæla frá Olíu- verzlun íslands (Héðni Valdimars- syni) sem var röng. Hjá Pöntunarfélagi alþýðu á Norð firði voru allar vogir réttar nema sú stærsta (600 kg. vog), sem var röng. Par vorn öll 27 lóð röng" og sömu- leiðis báðir kvarðarnir Hjá Olíuverzlun íslands (Héðni Valdimarssyni) á Seyðísfirði varein stór vog f500 kg.; og 8 lóð — allt rangt. Hjá sarna fyrirtæki áFáskrúðs- firði er ekki getið í skýrslunni nema um eitt mælítæki, stóra rennilóðs- vog — en hún var röng. Pær hefðu ekki verið litlar fyrir- sagnirnar í stjórnarblöðunnm, ef slík Til sölu húsið No. 4 við Miðstræti, ásamt lóðarréttindum. Upp- lýsingar í Miðstræti 4 (uppi). Harðfiskur oé Hangikj öt fæst í y Kjötbúð Siglufjarðar, Leikfimisskór £ráir o£ svartir. Flókaskór fleiri litir, fást hjá Sig. J. S. Fanndal. mælitæki hefðu fundizt hjá Kveld- úlfi norður á Hesteyri eða í Rvík, eða á Korpúlfsstöðum, eða yfir höfuð hjá einhverjum meiri háttar stjórnarandstæðingi. Nú þegja stjórn- arblöðin og þora ekki að hreyfa sig. — Pað eru sem sé þeirra menn sem þarna eiga hlut að máli.

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.