Siglfirðingur - 06.04.1935, Blaðsíða 1
W' 'i
VIII. árá.
Sigluíirði, Laugardaginn 6. apríl 1935
7. tbl.
Jón rorláksson
b o r g a r
fæddur 3. marz 1877,
Pað «r óhætt að t'ullyrða það,
að sjaldan hefir öll ísl. þjóðin orð-
ið harmi lostnari við fráfall riokk-
urs manns í síðari tíð en þá er
andlátsfregn Jóns Porlákssonar barst
með símanum og útvarpinu út urn
byggðir landsins.
Menn setti hljóða. Pað skildu
það allir, jafnvel andstæðingar hans,
að þar varð þjóðin á bak að sjá
þeim syninum, er hún sízt mátti
án vera á þessum ólánstímum óár-
anar og óstjórnar. Og þó munu
Reykvíkingar mest afhroð goldið
hafa við fráfall hans.
Pað vissu allír, að Jón var heilsu-
veill hin síðari ár, en þó mun öll-
um hafa komið andlátsfregn htns á
óvart. Menn áttu bágt með að
átta sig á þrí, að einmitt þessi ó-
missandi maður væri dáinn —
horfinn, fyrirvaralaust. því enda
þótt hann væri sárþjáður, fannst
lítt á um störf hans, sem hann
vann með sömu elju síðustu dag-
ana eins og áður.
Jón Porláksson er fæddur að
Vesturhópshólum í Húnavatnssýslu
3. marz 1877, sonur Porláks Por-
lákssonar, bónda þar, og konu hans
Margréfar Jónsdóttur, prests Eiríks-
sonar. Jón varð stúdent úr Lærða-
skólanum í Rvík 1897, með hærri
einkunn er nokkur hefir þar hlotið fyr
eða síðar. Síðan hóf Jón verkfræði-
nám við Polyteknisk Læreanstalt í
Kbh. og Iauk þar námi 1903 með
fyrstu einkunn. Að loknu námi
hvarf hann heim til íslands og var
við ýmsar verklegar framkvæmdir,
Flóaáveituna o.fl. 1905 varð Jón
landsverkfræðingur og gegndi því
starfi til 1917. Eftir að Jón hafðí
lokið námi, fór hann að gefa sig
við stjórnmálum og bauð sig fyrst
stj óri,
dáinn 20. marz 1935.
fram ti! þings í Arnessýslu, en náði
þar eigi kosningu. A þing var Jón
kösinn í Reykjavík 1921 og sat á
þingi sem þingm. Rvíkinga til 1926,
eu síðan sem landskjörinn þing-
maður. Varð Jón strax einn af
foringjum Sjálfstæðisflokksins og
formaður hans um langt skeið, unz
hann baðst undan því starfi 1934,
sakir vanhéilsu. Fjármáiaráðherra
varð Jón í 3. ráðuneyti Jóns Magn-
ússonar 1922 — 1924 og forsætisráð-
herra eftir andlát Jóns Magnússon-
ar 2ó. júní 1926, en baðst lausnar
fyrir ráðuneyti sitt 28. ágúst 1927,
er Sjálfstæðisflokkurinn hafði kom-
izt í þingminnihluta við kosningar
á því sumri.
Auk þingstarfa gegndi Jón fjölda
annarra trúnaðarstarfa. 1906 var
hann kosinn í milliþinganefnd er
fjalla skyldi um framkvæmd Flóaá-
veitunnar, 1917 í milliþinganefnd í
fossamálum, 1928 í utanríkismála-
nefnd og s. á. í milliþinganéfnd í
skaltamálum, en baðst undan þeim
starfa. Borgarstjóri í Reykjavík
varð hann 1932 og gegndi því starfi
ti! dauðadags.
Eitt af mestu þrekvlrkjum Jóns
var það, að rétta við fjárhag þjóð-
arinnar á þeim stutta tíma.erhann
hafði yfirstjórn fjármálanna með
höndum. en- fjárhagsafkoma ríkisins
var komin í botnlaust öngþveiti í
höndum samsteypustjórnarinnar er
áður hafði farið með völdin. Hafði
Jón, áður en hann tók við, gert
rækilegt yfirlit yfir fjárhagsástæð-
urnar í tnörgum flugskörpum grein-
um, og benti á ráð til viðreisnar.
Og er hann tók við fjármálastjórn-
inrii, lét hann ekki lenda við orðin
tóm, en stöðvaði algerlega skulda-
söfnun og sneri svo við blaðinu að
skuldirnar minnkuðu í höndum
hans uin fullar 6 miljónir króna á
rúmum þrcrn áruni. Vann Jónsér
þar þá frægð, er seint mun fyrnast,
og mundi margur ósií.a, að hans
hefði lengur mátt við njóta þá við
fjármálastjórnina. Enda fór svo,
að fljótt seig aftur á ógæfuhliðina
er hann lét i.f fjármálastjórninni og
er nú eigi annað sýnt, en að þjóðin
innan skamms muni missa sjálf-
stæði sitt og verða undiriægja ann-
ara sakir fjárbruðlunar þeirra
skammsýnu manna, er síðan hafa
með völdin farið.
Jafnvel andstæðingar J>5ns hafa
orðið að játa yfirburði hans um
fjármálaþekkingu. Og síðan Jón
tók við stjórn bæjarmálefna Rvíkur
hefii borgin eflzt stórkostlega að
efnum og margvíslegum fram-
Útgeröar- og málningarvörur
Firma, sem getur tekið að sér (ura síldveiðitímann og
í sumar og framvegis) umboðssölu á útgerðar- og
málningarvörum á Siglufirði fyrir aaig — eins og firma
Sören Goos að undanförnu — snúi sér góðfúslega
til mín hið fyrsta.
ATFl. Gott búðarpláss við aðalgötu lbæjarins eða sem næst
henni og fagkunnátta naúðsynleg.
O. ELLÍNGSEN.
Símnefui: Ellingsen, Reykjavík.
Reykjavík.