Siglfirðingur - 29.06.1935, Side 2
2
SIGLFIRÐINGUR
þessa ágæta sögumanns þegar hann
neyddist til að sfangast við stað-
reyndir sögunnar.
Fundurinn fór skikkanlega fram
nema hvað kommúnistarnir voru
illyrtir. En það var eins og fyrri
daginn, það tók enginn mark á
þeim.
Ólafur sýndi átakanlega fram á
aumingjaskapinn og bitlingasníkjurn-
ar hjá stjórnarliðinu. Og sérstaklega
virtist Krötum bölvanlega við þegar
Ólafur minnti þá á að ráðherra
þeirra væri drengskaparmaður. Ekki
vissi Barði neitt um tekjur Héðins,
og sagðist ekki hafa séð skattskýrslu
hans. En aftur á móti þóttist hann
gagnkunnur efnahag og skattframtali
Sjálfslæðismanna. Ekki minntist
hann heldur á tekjur „súrdeigskauð-
ans“ né annara kratagersema.
Fundurinn gerði það gagn, að
hann mun hafa skilið eftir óbifan-
Iega sannfæringu allra fundarmanna
um þetta þrent:
1. Að stjórnarliðið hefir svikið
öll kosningaloforðin.
2. Að Framsókn er orðin að
ölmusuþýi Kratanna.
3. Að Sjálfstæðisflokknum er
alltaf að aukast fvlgi hér ogá
nú langsamlega mest atkvæða-
magn í Siglufirði allra flokka.
Hafi Ól. Thors mikla þökk fyrir
komuna og drengilega framkomu á
fundinum.
Góðir gestir.
i.
LEIKFLOKKUR.
Siglufjörður hefir að þessu verið
mjög afskiftur af heimsóknum lista-
manna erlendra og inniendra. Veld-
ur því að miklu leyti það ómenn-
ingarorð er af bænum hefir farið
og einnig það, að bærinn var lengi
mjög einangraður. Pá er á það að
líta, að til leiksýninga, söngs og
hljómleika hefir bærinn ekkert við-
unandi húsrúm að bjóða. Er það
tæplega vansalaust nú orðið fyrir
bæ í svo örum vexti og hátt á
þriðja þús. íbúa. Á það ber og að
Hta, að innan þriggja ára verður
bærinn orðinn^mesti ferðamanna-
bær hérlendis og bæri bæjarstjórn
sannarlega að hafa vakandi auga á
því að undirbúa það, að óhróður
Siglufjarðar yxi ekki við aukinn
ferðamannastraum, en færi rénandi
með ári hverju. Hvað ætti og mætti
gera í þessu tilliti er ærið viðfangs-
efni útaf fyrir sig og verður sjálf-
sagt tekið til athugunar. En eitt er
víst: Framvegis verður gróði af
heimsókn ferðamanna ein af drýgstu
tekjulindum borgara bæjaríns.
Sl. þriðjudag kom hingað leik-
flokkur írá Reykjavík og sýndi hér
eitt af kunnustu leikritum Einars
H. Kvaran. Prátt fyrir það þótt
eigi væri auglýstur leikur þessi fyr
en eftir hádegi sýningardaginn, og
þrátt fyrir ónógan skyndiútbúnað
leiksviðsins hefir áreiðanlega aidrei
sézt fleira fólk samankomið á sjón-
leik hér í Siglufirði.
Leikflokki þessum, er sýndi
”Syndir annara" var stjórnað af
tveim færustu og vinsælustu leik-
endum landsins, þeím Har. Björns-
syni og Soffíu Guðlaugsdóttur.
Leikur þessi hefir verið sýndur
hér í Siglufirði áður og var prýði-
lega með flest aðalhlutverkin farið
eftir því sem við varð búizt til-
sagnarlaust af viðvaningum.
En þó verður að segja .eins og
er, að sum hlutverkin voru sízt
betur leikin nú en þá.
Bezt mun hafa tekizt samtal þeirra
Gríms (H. B.) og Porgeirs (Gests
Pálssonar) í öðrum þætti. Einhvern-
veginn var það þó, að bvorki
Soffía né Gestur virtust njóta sín
til fulls, en Haraldur hafði fullt
vald á sínu hlutverki frá upphafi
til enda. Regína Pórðardóttir lék
vel og var sjálfri sér samkvæm
enda þótt hún væri full skvettuleg.
En gaman var að henni og elsku-
leg var hún. Anna var vel leikin
en persónan var nokkuð budduleg,
og hefði mátt vera virðulegri. Pað
er aðgæzluvert, að velja svo í hlut-
verk, að persónan samsvari því er
hún á að sýna. Annars verður leik-
urinn raunverulega léleg eítirherma.
Annars er það um þenna leik
að segja, að hann er viðburður í
menningarsögu Siglufjarðar.
Hér hefir verið reynt að halda
uppi leiksýninum af veikum mætti
þó. En þar hefir miklu fremur
strandað á skilningsskorti bæjar-
búa og algjörlega óhæfu húsrúmi
en vöntun á leikkröftum og við-
leitni. Væri betur, að bæjarhúum
skildist, að hollara menningartæki
fær bærinn ekki en heimaþjálfaða
og heimafengna kiklist. En til
þess þarf húsrúmi og leiksvið, sem
ennþá er ekki til hér.
Leikflokkurinn á heiður skilinn
fyrir viðleitni sína og þökk skal
honum tjáð fyrir komuna til Siglu-
fjarðar.
II.
KARLAKÓR K. F. U. M.
kom hingað með Gultfossi á
fimmtudaginn. Mikill mannfjöldi
safnaðist á Hafnarbryggjuna, þegar
skipið lagði að. Var þar karlakór-
inn Vísir og heilsaði gestunum með
því að syrigja Móðurmálið eftir
Sveinbjörnsson. Gekk þá fram
prófessor Bjarni Porsteinsson og
bauð kórinn velkominn með stuttii
ræðu. En K. F. U. M. kórinn
svaraði með Iagi séra Bjarna „Eg
vil elska mitt land“. Gengu svo
gestirnir upp í bæinn og skoðuðu
Ríkisverksmiðjurnar o. fl. Kl. 4
söng kórinn í Bíó, en þar var fá-
skipað eins og við var að búast
um þetta leyti dags, þegar svo að
segja hver maður er önnum kafinn.
Kl, 9 söng kórinnaftur og var þá
húsfyllir og kom þá í ljós, að Sigl-
firðingar kunnu að meta góðan
söng.
Að lokinni söngskrá kórsins
sungu báðir kórarnir saman 4 lög
og að endingu þjóðsönginn.
Kórinn á mörgum glæsilegum
raddmönnum á að skipa og mun
þegar allt kemur til alls, bezti
harlakór landsins, enda með þeim
allra elztu og þjálfuðustu.
Vísir hélt kórnum samsæti að
Hótel Siglufirði að loknum söngn-
um. Voru þar gerðir að heiðurs-
félögum K. F, U. M. kórsins þeir
Pormóður Eyólfsson, söngstjóri,
Egill Stefánsson, formaður Vísis og
prófessor Bjarni Porsteinsson.
Bæði leikflokkurinn og karlakór-
inn áttu góðum viðtökum og góðri
aðsókn að fagna, og sýndu Siglfirð-
ingar þar að þeir kunna að meta
gildi þess sem þeim er boðið.
Ætti nú héreftir að rísa upp sá
metnaður í bæjarbúinu, að kosta
kapps um að eignast sjálfir slíkar
sveitir sem þessar og hlúa vel að
viðleitni þeirra fáu manna, sem eru
að reyna að halda hér uppi slikri
menningarstarfsemi.
Veiðarfærum
og allskonar búsáhöldum verð-
ur pakkað upp þessa dagana
hjá
Sig. Fanndal.