Siglfirðingur - 10.08.1935, Page 2
2
SIGLFIRÐINGUR
NÝ J A-BÍÓ
Til minnis.
Sýnir sunnudagskvöld 11. ágúst kl. 4$
Svefnlausar nætur.
Fjörugur gamanleikur í 10 þáttum. — Aðaihlutverkin leika:
STANLEY LUPINO og POLLY WALKER.
í þessari mynd eru sungin fjörug lög og margar skrautlegar sýningar sjást.
Efni myndarinnar er um unga miijónamæringsdóttur og fátækan blaðamann, sem
komast í gvo mikla klípu, að þau neyðast tii að lýsa því yfir að þau séu ný-
gift, þótt þau vitanlega séu ógift. »TengdaforeIdrarnir« koma að alt í einu og
fagna »tengdasyninum«. Komast nú ungu hjónaleysin í mestu vandræði og er
oft hægt að fá tækiíxri til að skellihlæja.
Kl. 6*:
Við sem vinnum eldhússtörfin.
Tal- og hljómmynd í 10 þáttum tekin eftir sögu SIGRID BOO
Aðalhlutverkin leika:
TUTTA BERNTZEN-ROLF, BENGT DJURBERG, KARIN SVANSTRÖM
Breder verksmiðjustjóri hefir átt tal við ungan hugvitsmann, sem vill selja hon-
um einkarétt á nýju bifhjóli, sem hann hefir fundið upp, en þegar Breder víll
ekki kaupa, huggar ungi maðurinn hann með því, að hans eigin bifhjól »Eld-
ingin skuli bíða iægra hlut fyrir hinu nýja í næsta kappakstri. Breder er f vondu
skapi og það gengur út yfir Helgu dóttur hans, sem hann svíkur um Parísar-
ferð, sem hanti hafði áður lofað henni, Til að hugga sig, fer hún til Jörgens
vinar síns. sem er einnig trúnaðarmaður hennar, og lendir í heilum hóp af ungu
fólki á baðstað. Par hefst kappræða um ungar stúlkur nú á dögum, og Jörgen
og fleri halda fram, að nútímastúlkan kunni ekki annað en dansa og leika sér.
»Eg skal gefa þér demantshring ef þú vilt vinna hjá öðrum í hálft ár og lifa af
því, sem þú vinnur þér inn sjálf«. Helga slær til og fer brátt í vist og eftir að
hafa upplifað ýmislegt skrítið vinnur hún veðmálið. En hvað hún upplifði ýmis-
Iegt skrítið, vinnur hún veðmálið. En, hvað hún upplifði, er best að fá að vita
með því að sjá myndina. Hún er nú sýnd í NÝJA BÍÓ.
Sýnd í allra síðasta sinn.
Kl, 8*.
Syndaselur kvennaskólans.
Tal- og hljómmynd í 10 þáttum. — Aðalhlutverkið leikur:
ANNY ONDRA.
Hér er á ferðinni skemmtileg og fjörug gamanmynd, og þar sem Anny
Ondra leikur aðalhlutverkið, er fengin trygging fyrir því að myndin er
bæði hlægileg og fjörug. Anny Ondra leikur unga lífsglaða stúlku, sem
send er af foreldrum sínum á kvennaskóla. Rar kemur hún öllu í uppnám
og reynist nokkuð erfitt fyrir kennara hennar að tjónka við hana.
Kl 10J:
Veðmál um lífið.
Afarspennandi »wild West mynd« í 10 þáttum. — Aðalhlutverkin leika:
TOM KEENE og HELEN FOSTER.
Monty býr f afskektum bæ ásamt Jude gamla. Leiðist honum einveran og heldur
til Dan Hurnis, en þar eru margir Cowboys, og fjör og líf. Verða þeir Monty
og Rance áslfangnir í sömu stúlkunni og reynir Rance að Iosna við keppinaut
sinn með því að fá hann til að fara á bak á óhemju, sem áður er búinn að
dr«pa tvo menn. En margt fer öðruvísi en til er ætlast. — Afarspennandi mynd.
Almenningur hefir sennilega aldrei
athugað það hve geypileg fjáreyðsla
Framsóknarstjórnarinnar hefir verið
þau átta ár, sem hún og sósíalistar
hafa farið með völdin.
Islenzka ríkið er álíka fjölmenn
og Björgvinjarbær í Noregi. Stjórn-
inni hefir þó tekizt að eyða frá
þessu litla, fátæka þjóðfélagi
133 miljónum
á 8 árum
eða hátt á 17. miljón króna á ári.
Pegar menn fara að hugsa um
þessa óskaplegu fjáreyðslu, furðar
menn mest á hvernig þessi litla
þjóð hefir farið að því að afla alls
þessa fjár.
Nú er allur almenningur farinn
að skilja það, að þessi voða-eyðsla
er í raun og veru meginorsök þess
hve afskaplega nú er þröngt í þjóð-
arbúinu, atvinnuvegirnir vanmegn-
ugir að sjá verkalýðnum fyrir at-
vinnu.
Prátt fyrir þessar ískyggilegu stað-
reyndir, eru fjárlögin fyrir 1935 út-
gjaldahæstu fjárlög sem nokkurt
Alþingi hefir dirfzt að bera fram
og jafnframt allir skattar hækkaðir
svo nemur 2—4 miljónum.
Auk þessa hefir bitlinga-austurog
embættastofnanir aldrei komizt á
slikt óhófsstig eins og síðan núver-
andi stjórn tók við. Pað er því
nauðsynlegt, að almenningur fylgist
dálítið með bitlingaaustrinum; skal
þvi hér birt skrá yfir nýjar greiðsl-
ur sem núverandi stjórn hefirskellt
á ríkissjóð og að nokkru á bæjar-
og sveitasjóði. Ekki er hér þó talið
nema hið helzta, mart er ótalið, og
vafalaust ótal margt, sem almenn-
ingur veit ekki enn um og vitnast
sennilega aldrei. Hér er ágripið:
1. Eflirlit með opinberum rekstri.
Prjú þriggja manna ráð, sam-
tamtals 9 menn.
2. Eftirlit með sjóðum, 3 menn.
3. Stjórn markaðs- og verðjöfn-
unarsjóðs, 9 menn.
4. Samkvætnt lögum um verka-
mannabústaði 5 mannastjórn.
Auk þess einn eða fleiri í
hverjum kaupstað eða kaup-
túni. UM 80 MENM.
5. Síldarútvegsnefnd, 5 manna
stjórn, 5 varamenn og margt
annarra starfsmanna. Alls um
20 menn.
6. Vinnumiðlunarskrifstofur. 5