Siglfirðingur - 14.09.1935, Side 3
SIGLFÍRÐINGUR
3
wam N Ý J A-R í Ó 8SS
Suntiuaaginn 15. sepl. kl. 44:
„Sæl ustu ndir“.
Kl. 64: King - Kong.
ALLRA síðasta sinn.
Kl. 84: „ Vermlendingar“.
Gullfalleg mynd úr sænsku þjóðlífi.
Kl. 10.1:
„Viktor ogrViktoria“.
Petla er einhver fjörugasta og skemmtilegasta myndin, sem sýnd hef-
ur verið á þessu ári, vantar lítið á að hún sé eins skemmtileg
• Einkaritari bankastjórans*, enda er aðal hlutverkið í báðum
myndunum leikið af sama leikaranum, Hermann Thumig.
Sameiginlega
hljómleika
halda karlakórinn Vísir og sam-
einaðar hljómsveitir kafhhúsanna
á morgun (sunnudaginn 15. þ. m.).
Leikur hljómsveitin þar sígild lög
eftir ýmsa fræga höfunda og einn-
ig ýms alþýðulög, karlakórinn Vísir
syngur nokkur af sínum beztu og
vinsælustu lögum og loks leika og
syngja Vísir og hljómsveitin saman
tvö lög, „ísland“ eftir Sigurð Pórð-
arson, söngstjóra Karlakórs Reykja-
vikur og „Förumannaflokkar þeysa“
eltir Karl O. Runólfsson (ljóð eftir
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi).
Bæði þessi lög mega teljast standa
einna fremst af íslenzkum tón-
smiðum fyrir karlakóra. „Island"
er eitt hið vandasamasta lag sem
karlakórinn Vísir hefir flutt á und-
anförnum árum. Er það glæsilegt
og vandað að byggingu og mun
njóta sín prýðilega með hljómsveit.
„Förumannaflokkar þeysa“ var fyrst
sungið á Akureyri árið 1933 af
karlakórnum Geysi, með aðstoð
Hljómsveitar Akureyrar og stjórnað
af tónskáldinu Karli O. Runólfssyni.
Fékk það þá svo góðar undirtektir
að fá dæmi eru að karlakórslagi
hafi verið tekið eins vel, Hefir það
haldið vinsældum sínum óskertum
síðan og því til sönnunar má geta
þess, að í hinni glæsilegu söngför
Karlakórs Reykjavíkur til Norður-
landa nú í vor var þetta það af lög-
unum sem mesta eftirtekt og hrifn-
ingu vakti. Karl O. Runólfsson er
nú á förum héðan úr bænum. Er
þetta því allra síðasta tækifærið til
að hlusta á hljómsveitina og einasta
tækifærið til að hlusta á karlakór
með hljómsveit. Er vonandi að
músíkunnandi bæjarbúar láti ekki
þetta tækifæri ónotað.
Vínber
nýkomin
Nýja Kjötbúðin.
Siglufjarðarprentsmiðja;
Abessinía.
Hér er svo mikið ritað og rætt
um þefta fjarlæga ríki, að full á-
stæða er til þess að fræða fóik of-
urlítið um landið og íbúa þess.
Abessinía eða Etiopia, eins og
það heitir í raun réttri frá fornu
fari, er stcrt, hálent landsvæði
norðaustan til í Mið Afríku, Suður*
takmörk landsins eru rúmum 220
km. norðan við miðbaug og tekur
yfir 1450 km. frá norðri til euðurs
og góðum spöl er það (engra frá
austri til vesturs. Fað er um 800
þús. ferkílómetrar að stærð eða
því nær eins og Italía og Spánn
til samans. íbúar eru þar um 12
miljónir. Eins og fyr segir er
landið mjög hálent og hefir reynzt
örðugt til yfirferðar þeim er herjað
hafa á það. Hvergi nær landið að
sjó, en hefir járnbrautarsambönd
við brezka og franska hafnarbæi á
Adenflóaströndinni. ítalir, sem nú
hyggjast að ná þessu landi undir
sig, eiga lönd að því að norðan
og suðaustan, Frakkar og Englend-
ingar að norðaustan, en Englend-
ingar að sunnan, vestan og norðan
(Brezka Súdan). Enda þótt Abess-
inía sé í hitabeltinu er hiti þar
mjög misjafn eftir hæð landsins, í
1600—2400 metra hæð er meðal-
hiti árs 15 stig á Celsius. í Norður-
Abessiníu er regntíminn frá apríl
og þar til í ágúst, og rignir þá oft
svo ákaflega, að umferð stöðvast
gersamlega. Pá er vetur þar. Hitinn
minnkar fljótt eftir hinar voldugu
regndembur, svo að hæstu fjöll eru
síhulin snjó, en vötn frjósa í byggð
(í 2400—3500 m. hæð). í Suður-
Abessiníu eru regntímarnir tveir:
frá júlí til september og annar
styttri frá febrúar til marz, en þá
hefst þar sumar. Mest rignir þar
um nætur og eru þá þrumuveður
tíð.
Gróður landsins er eðlilega mjög
breytilegur. Par sem bezt eru skil-
yrði vaxa tamarindur, akasíur, syko-
morafíkjur, brauðaldin og bambus-
gras, hærra í hlíðum vaxa olíu-
viðartré og kaffirunnar. Auk þessa
eru ræktuð bjúgaldin, eiraldin,
granatepli, jarðepli, dúrra, bygg og
hveiti.
Dýralíf er mjög fjölskrúðugt. Par
érf margar apategundir, ljón, hlé-
barðar, sjakalar, hýenur, gaupur,
moskuskettir og er ylmefni þeirra
allverðmæt útflutningsvara. Pá eru
þar fílar, nashyrningar, vatnahestar
og villisvín; af jórturdýrum má