Siglfirðingur - 21.09.1935, Page 3
SIGLFIRÐINGUR
3
»«^^SNÝJA-BÍO
Sunnuúaginn 22. sept. kl. 4|:
„Viktor og Viktoría“
Petta er einhver skemmtilegasta og fjörugasta myndin
sem sýnd hefir verið lengi.
Kl.
„ Vermlendingar“.
Gullfalleg mynd úr sænsku þjóðlífi.
Kl. 8*
„Barkskipið Margrét“
Dönsk mynd í 12 þáttum, skemmtileg og spennandi.
Aðal leikendur: Karin Nellemose og íb Schpnberg.
KI. 10.1:
„Farþeginn, sem stalst með skipinu“.
Sænsk mynd, afbargðsgóð.
— Eg býst við, að það hefði
tæplega orðið minna en 1 kr. kíló
af 1, flokks kjöti. Pó er það ekki
gott um að segja. Kannske ef til
vill eitthvað lægra.
Jón var að búast til brottferðar og
samtalið varð ekki lengra.
En af því þóttist blaðið mega
ráða þetta tvennt:
1. Að neytendur hér hcíðu feng-
ið kjötið með miklum mun lægra
verði ef verzlun með það hefði
verið frjáls og
2. að framleiðendur hefðu einriig
fengið hér mun hærra verð en þeir
geta nokkurntíma búizt við að fá
hjá kjötverðlagsnefnd. Auk þess,
sem bændur hefðu þá að mestu
verið vissir um staðgreiðslu í pen-
ingum, eða þá í öðrum gagnkvæm-
um viðskiftum, er báðum aðiljum
hefði verið stór hagnaður að.
Og eftir skýrslu kjötverðlagsnefnd-
ar, fá bændur aldrei meira greitt
fyrir kjöt sitt, að viðbœttri verðupp-
bót og styrk rikissjóðs en í hæzta
lagi 80 aura á kg. af 1. fl. kjöt.
Pað er því ekki nema eðlilegt
þótt ýmsum komi það allspánskt
fyrir hér. að þurfa að greiða frá
2,07 til 1,27 eða meira fyrir kjöt-
kílóið útúr kjötbúðunum.
Pað heflr Iegið nærri, að hafi
menn freistast til að kaupa sér kjöt
til hátiðabrigða til miðdags á sunnu-
dögum, hafi sú eina máltíð orðið
eins dýr eða dýrari en efni í mið-
dagsmatinn alla hina sex daga vik-
unnar til samans.
Pað er eitthvað bogið við slíkt
„skipulag".
V eggfóður
í stóru úrvali.
Einar Jóhannss.
& Co.
H ú s g ö g, n.
2 stoppaðir stólar Ottoman
og eikarborð til sölu nú
þegar. — R. v. á.
Abessinía.
Framhald.
Verzlun er lítil við önnur lönd
enda skilyrði slæm, helzt er flutt
út kaffi. gull, fílabein, hunang, vax,
húðir og skinnvara, sennep og
myrra. Samgöngur eru erfiðar, lítið
um járnbrautir og síma, þó hefir
bætzt allmikið úr þessu á síðari
árum.
Pað voru Egyptar, sem kom-
ust fyrst í kynni við Abessiníu og
breiddu út þekkingu um hana, en
Grikkir urðu til þess að bera þang-
að menningu sína og trúarbrögð.
Kristnin barst þangað strax á 4. öld
og höfðu Grikkir þar mikil ítök
þar til á 7. öld, að Falasjar brut-
ust til valda og ríktu fram yfir
miðja 13. öld, en þá náðu Abessin-
íumenn aftur völdum. Abessinía
átti í langvarandi trúarbragðadeilum
við Portúgala og klofnaði þá ríkið
í þrennt og hafði hvert ríki sinn
konung unz Theodor 2, sameinaði
ríkið í eina heild og var krýndur
keisari 1855. En hann féll í skær-
um viö Englendinga 1868. Voru
nú um hríð innanlandsdeilur og
viðsjár í landinu unz einn af for-
ingjunum sigraði og krýndist 1872,
og kallaðist Jóhannes. Hann var
duglegur stjórnandi og reyndi að
innleiða vestræna Evrópumenningu
í landið. Hann reyndi að fá styrk
ýmsra Evrópuþjóða til að fá viður-
kennd hafnarréttindi einhversfetaðar
við Rauðahafið, helzt Massana.
En útaf þessu lenti ríkið í styrjöld
við Italíu. Beið Jóhannes ósigur
og mest fyrir það, að einn af vold-
ugustu höfðingjum. Abessinía gekk
í lið með ítölum. Féll Jóhannes í
úrslitaorustunni. En Mtnelik, sá
er ítalir studdu, varð keisari og
hélt hann tryggð við ítali, sem
loks tóku að sér vernd Abessiníu.
En brátt féll Menelik illa afskifti
Italíu og vildi verða laus við þau.
En Italir þverskölluðust. 1895 greip
Menelik til vopna gegn Ííölum og
bar jafnan hærra hlut í þeirra við-
skíftum, unz að friður var saminn
í Addis Abeba 1896. Létu ítalir af
höndum réttindi sín til verndar
Abessiníu og greiddu allstóra fjár-
hæð af höndum. Hallaði Menelik
sér þá að Frökkum og fékk hjá
þeim rétt til að leggja járnbraut frá
Addis Abeba til hafnarbæjar þeirra
Djibouti. 1902 gerði Abessinía
samning við Englendinga, þar sem
hún skuldbindur sig til að trufla í
engu eða hefta rennsli fljóta þeirra
er falla úr Abessiníu til Nílar og
valda vexti hennar, er viðheldur