Siglfirðingur - 23.12.1935, Qupperneq 1
/
VIII. árg.
Siglufirði, máoudaginn 23. des. 1935.
41. tbl.
Jólaklukkurnar.
(Jólahu^ieiðin^).
Pegar vér heyrum hina hreimfögru hljóma
kirkjuklukknanna, þá vekur það æfinlega
hjá oss sérstakan geðblæ.
Sjaldan finnum vér þetta þó betur en á
aðfangadagskvöld, þegar þær taka að hringja
inn jólahátíðina og boða oss frið og helgi
jólanna. Þegar jólaklukkurnar hafa hljómað,
þá finns oss fyrst, að jólahátíðin sé í raun
og veru byrjuð.
Um aldaraðir bafa jólaklukkurnar hljóm-
að og boðað heiminum hátíð ljóss og friðar
mitt í skammdegi og dapurleika.
Pær kalla mennina til umhugsunar um
löngu liðna atburði, sem urðu til þess að
ráða aldahvörfum í heiminum.
Fæðing Jesú Krists er einn merkilegasti
atburður mannkynssögunnar. Hann kom til
þess að boða mannkyninu trú á ný verð-
mæti, til þess að hefja merki kærleikans,
og leiða mannkynið til frelsis fyrir kærleiks-
þjónustuna. Jólahátíðin, sem vér höldum
á hverju ári, er minningarhátíð þessara at-
burða.
Jólin, Kristur og kærleikurinn eru þrjú
hugtök, sem í raun og veru tákna eitt og
hið sama. Hv«r sem fagnar jólunum fagn-
ar Jesú Kristi, fagnar sigri kærleikans-
Tímarnir breytast, en kærleikurinn fellur
aldrei úr gildi, þessvegna er hin dýpri
merking jólanna æ hin sama,
Að ytra formi hefir jólahelgin tekiðmikl-
um breytingum hin síðari ár. Nú þekkja
inargir ekki lengur jólin frá æskuárum sín-
um, þó að birtan, gleðin og vinarhugurinn
sem þau vekja, sé æ hið sama. Nú gerast
margir þeir atburðir, sem ótrúlegir hefðu
þótt fyrir 25 árum.
Jafnvel ómar jólaklukknanna frá Betle-
hem, fæðingarborg frelsarans, berast nú til
vor yfir höf og hauður, og vér heyrum
raddir frá þeim stöðum, þar sem himnesk-
ar hersveitir sungu Drotni Iof og dýrð, og
boðuðu mönnunurn velþóknun Guðs og
frið á jörðu.
Er þetta ekki dásamlegt?
Er það ekki fyrirboði þess, sem ein-
hverntíma skal verða? Að mannkynið- allt
verði eitt í kærleika og fagni sigri kærleik-
ans með því að syngja Gnði lof og dýrð.
Vér sitjum hér í skammdegi og sólarleysi,
vér gleðjumst, þegar vér heyrum hljóma
jólaklukknanna og vér hlökkum til þess að
fagna jólunum og minnast atburðanna, sem
þau eru helguð.
Guð gefi að jólaklukkurnar megi hljóma
fegurra í eyrum vorum og vekja hjá oss
meiri lotningu en nokkru sinni áður og
boði oss himneska jólagleði.
Vér biðjum þess af hjarta, að þegar jóla-
klukkurnar taka að hljóma hér í þessum
bæ, þá megi ómar gleði og friðar berast
ínn á hvert heimili og bergmála í hjörtum
ungra og gamalla og gefa öllum í Jesú
nafni
GLEÐILEG JÓL.
Óskar J. Porláksson.