Siglfirðingur - 17.12.1940, Page 2
2
SIGLFIRÐINGUR
Stj órnar sam vinnan
i.
í 15. tbl. Einherja er heilmikill
útúrsnúningur að nafni »Dómur
reynslunnar«. Allir vita, við hvers-
konar tækifæri gripið er til útúr-
snúnings og rangfærslur viðhafð-
ar, en það er þegar óvandaðir
menn finna til vanmáttar og þreng-
inga. En dómur Einherja á annara
reynslu, eins og greinin hefði átt
að heita, er svo augljós og léleg-
ur skáldskapur, að manni gæti
komið til hugar, að til væru þeir,
sem ekki 'gætu lært af reynslunni,
heldur gerðu sér einungis fráleitar
hugmyndir, sem ekki stæðu í neinu
sambandi við það sem hefir gerzt
og reynslan er af. T. d. það lög-
mál Einherja, að safna beri pen-
ingum á stríðsárum. Hefir kannske
ekki reynsla, bæði okkar og ann-
ara þjóða, kennt okkur, að lang
ótryggasta verðmætið á stríðstím-
um eru einmitt peningar. Verð-
mæti, sem geta orðið einskis virði
við bankahrun í ófriðarlandi, sem
er mjög algengt.
En einmitt af því, að allir sem
skyn bera á þessa hluti, vita að
eignir (vörur og fasteignir) eru
margfalt tryggari en peningar á
þessum tímum, er það skylda
Framsóknarflokksins að vera á ann-
ari skoðun.
II.
Hvað viðkemur þeirri staðhæf-
ingu, að helmingur þingflokks
Sjálfstæðismanna hafí neitað að
bjarga þjóðinni, í því dæmi, sem
eg tók i fyrri grein minni, þá er
þar um einn útúrsnúninginn að
ræða. Einherji hlýtur að vita það,
fyrst hann á annað borð ræðst í
að skrifa um þessi mál, að ef afskipti
Sjálfstæðisflokksins af stjórn lands-
ins hefðu ekki hafist einmitt á
þessum tíma, þá var þess ekki
langt að bíða, að stjórnmálaspill-
ingin og úrræðaleysið í forustu
Framsóknarfl. yrði opinbert. Svo
opinbert, að fiokkurinn stæði stríp-
aður með allar sínar axaskaftaorður
á brjóstinu, fyrir framan þjóðina,
henni til viðvörqnar og jafnframt
til leiðbeiningar um það, hvernig
ekki ætti að stjórna landinu. Þjóð-
ina hefði tekið það sárt, að flokkur
sá, sem að vísu minni hluti hennar
hafði trúað fyrir stjórn landsins,
skyldi treysta sér vanmáttugum í
annað eins stórræði. Henni hefði
sárnað hve hrapallegar ókindur
gætu þrifist í þjóðarlífinu, og mik-
ill hluti hennar myndi vera lengi
að ná sér eftir slíkt áfall. En allir
verða eitthvað að líða fyrir það,
sem þeir hafa rangt gert. Þess
vegna vildi minnihluti Sjálfstæisfl.
i þjóðstjórnarmálinu ekki hlífa
þjóðinni við réttlátri refsingu. Þjóð-
in var eins og lúsugur krakki, sem
þurfti að kemba duglega þótt hon-
um finndist það sárt, en þá var
hann líka Iaus við óþverrann. Ef
Sjálfstæðisfl. hefði ekki aðstoðað
Framsóknarfl. við stjórnarmyndun-
ina, þá værum við lausir við Fram-
sóknarflokkinn.
Meirihluti Sjálfstæðisfl. í þessu
máli áleit aftur að vanmáttur Fram-
sóknarfl. væri kominn nógu skírt
í ljós, eins og næstu kosningar
munu bera með sér.
Einasta tækifæri Framsóknarfl.
— sem er og svipað þeim aðferð-
um, sem flokknum er eiginlegt að
beita — var að fá einhverja aðra
með, til þess að geta skellt skuld-
inni á þá.
Enda sjást þess glögg dæmi í
15. tbl. Einherja, þar sem Jakob
Möller er atyrtur fyrir óstjórn og
það, sem Einherji lýgur á hannog
leggur honum jafnframt út til lasts,
en það er, að hann feti nákvæm-
lega sama veg og Eysteinn Jóns-
son fyrv. fjármálaráðh.
Það er ekki nýtt á nálinni, þó
að slettist svona dropi og dropi
yfir á forustumenn Framsóknar,
þegar þeir í ákafa sínum eru að
ausa skit á:keppinautasina. Hvern-
ig var til dæmis, þegar Eysteinn
Jónsson í einu kastinu rak Jakob
Möller frá, sem eftirlitsmann banka
og sparisjóða, fyrir óreiðu og sukk
í starfinu. Auglýsingar voru birtar
á áberandi stöðum í Framsóknar-
blöðúnum, þar sem þess var getið,
að Jabob Möller hafi verið vikið
frá embætti sínu fyrir áðurgreinda
eiginleika. Nokkru seinna felur Ey-
steinn honum á hendur yfirstjórn
á fjármálum landsins. Kannske
kassinn hafi verið tómur svo það
hafi verið óhætt.
Útlitið framundan var iskyggilegt,
einkum í atvinnu- og fjármálum.
Þessi tvö stórmál var vitað, að
yrðu fyrir mestum truflunum og
erfiðleikum í ófriðí. Tekjur ríkisins
mundu stórlækka vegna þess, að
lestagjöld og vitagjöld erlendra
skipa, sem undanfarin ár hefir ver-
ið mjög stór liður á fjálögunum,
mundu Ieggjast niður með öllu,
tolltekjur var sýnilegt að myndu
minnka stórlega og yfirleitt var
ekki útlit fyrir, að hægt væri að
semja hallalaus fjárlög, án mjög
hækkaðra skatta. Atvinnumálin
horfðu einnig til vandræða, þar
sem sýnilegt var, að framleiðslan
yrði að leggjast að miklu leyti
niður vegna innilokaðra markaða.
Útlitið við stjórnarmyndunina var
meira að segja svo svart, að Fram-
sóknarfl. samþykkti 20 prc. niður-
skurðarheimild á opinberum fram-
kvæmdum.
Þessi tvö vandamál tók Sjálf-
stæðisflokkurinn að sér, ekki vegna
þess að þau væru eftirsóknarverð,
heldur vegna hins, að aðrir höfðu
ekki á að skipa færum mönnum
til þeirra starfa, mönnum, sem
meta meir þjóðarhagsmuni en jötu-
Blárósótta
steintauið
komið aftur
Veiöarfæraverzl. Siglufjarðar
Eldavélar og
kolaofnar
nýkomið.
Verslun
Egils Stefánssonar
Ljóð og Laust mál
eftir ANDRÉS BJÖRNSSON
er komin. Áskrifendur vitji hennar
til mín sem fyrst.
Sigmundur Sigtryggsson.
Herbergi óskast.
Afgr. visar á.
Kápuefni
Ullarkjólaefni
Undirföt
mikið úrval.
Aðalbúðin.
Útvega með stuttum
fyrirvara
SK F kúlulegur.
Björn Dónsson.
Beztu jólagjafirnar
handa kvenþjöðinni
eru
Ilmv ötnin
sem fást í
Lyfjabúðinni.
pólitík. Þjóðin getur nú virt ástand-
ið í þessum málum fyrir sér. Aldrei
hefir verið minna atvinnuleysi og
aldrei betri fjárhagsleg afkomarík-
issjóðs. Þó það verði að viður-
kennast, að tímarnir hafi breytzt
til batnaðar, er ríkjandi ástand í
þessum málum mest að þakka
góðri forustu og stjórn. C.
Sætar
MÖNDLUR
fást í
Lyfjabúðinni.
Lindarpennar.
Göður
lindarpenni
er góð 3ÓLAG3ÖF.
Kristinn gullsmiður.
Fallegar
5ÓLAG J AFIR:
Undirföt
Silkisokkar
Hanzkar
Treflar
Konfektkassar
Leikföng o. fl.
Verzlun
Halld. 5ónassonar.
Ódýrt
jólasúkkulaði;
Lilla kr. 2.75 stk.
Fjallkonan — 2.00 —
ísi — 1.60 —
Bella — 1.40 —
Geislinn.
Bollapör, Diskar
djúpir og grunnir
nýkomið.
Geislinn.
Jólagjaýirnar
verður bezt, eins og að
undanförnu, að kaupa
hjá mér.
Kristinn gullsmiður.
REMINGTON
eru beztu skotin.
Fást í
Lyfjabúðinni.