Siglfirðingur - 24.12.1940, Qupperneq 4
4
SIGLFIRÐINGUR
löngu baráttu flokksins fyrir raf
orkuvirkjun sveitanna, oglýsir yfir
yfir ánægju sinni út af því, að
andstæðingar Sjálfstæðisflokksins
virðast nú horfnir frá fyrri mót-
stöðu sinni gegn þessu þjóðþrifa-
máli«.
Frjáls verkalýðssamtök.
• Sambandsþing ungra Sjálfstæð-
ismanna, haldið í nóvembnr 1940,
fagnar þeirri hreyfingu, sem hafin
er til að koma á öfiugum samtök-
um sjálfstæðra verkamanna, og
treystir því, að Sjálfstæðisflokkur-
inn linni ekki baráttunni fyrirfuliu
jafnrétti og lýðræði innan verka-
lýðsfélaganna fyr en fullur sigur
er unninn«.
Vinnudeilur.
• Sambandsþing ungra Sjálfstæð-
ismanna, haldið í nóvember 1940,
teiur þjóðarnauðsyn að atvinnu-
rekstur landsmanna stöðvist eigi
af ástæðum, sem landsmenn ráða
við sjálfir, meðan svo horfir sem
nú.
Þingið beinir eindregnum tilmæl-
um til verkamai.na og atvinnurek-
enda, að semja hið fyrsta um
kaupgjaldsmálin, þannig að komist
verði hjá vinnustöðvun af þeim
sökum«.
Frjáls verziun.
• Sambandsþing ungra Sjálfstæð-
ismanna, haldið i nóvember 1940,
telur, að hag þjóðarinnar sé bezt
borgið með frjálsrí verzlun, og
skorar á ríkisstjórnina að halda
áfram á þeirri braut, að létta af
verzlunarhöftunum, eftir því sem
ástæður frekast leyfa«.
Iðnaðurinn.
• Sambandsþing ungra Sjálfstæð-
ismanna, haldið í nóvember 1940,
telur nauðsynlegt að styðja heil-
brigðan innlendan iðnað og miða
allar aðgerðir við, að hann geti
staðizt eftir að óeðlileg höft eru
niður fallin«.
Sparnaður.
• Sambandsþing ungra Sjálfstæð-
ismanna, haldið í nóvember 1940,
skorar á ríkisstjórnina að íhuga
gaumgæfilega þá hættu, sem af-
komu þjóðarinnar stafar af þeirri
verðbólgu, sem styrjaldarástandið
hefir skapað, og gera ráðstafanir
til þess, að stundarvelmegun at-
vinnuveganna í landinu leiði ekki
til aukinnar opinberrar eyðslu rík-
is, bæjar- og sveitarfélaga, sem
óhjákvæmilega hefði í för með sér
enn meiri erfiðleika fyrir þjóðina
þegar styrjöldinni lýkur og vænt-
anlegt verðhrun skellur á«.
Nauðsyn samvinnu.
• Sambandsþing ungra Sjálfstæð-
ismanna, haldið í nóvember 1940,
telur þjóðarnauðsyn, að samstarf
sé milli höfuðflokka um stjórn
landsins, eins og nú horfið. Þingið
vítir þess vegna harðlega viðleitni
núverandi samstarfsflokka Sjálf-
^jleðileg jóL. JJott og farsœLi nýti ár.
LÞöíh fy rir u'iðs íipt in á lídna árinu.
ULcjr. 911 árusson, (LLœðsfieri.
Gleðileg jól.
Gott og farsælt nýtt ár.
Nýja-Bíó.
(fjLeðiLeg jóL og farsœLt nýjár.
rMá fj rir uíðsízipiin á liSna árinu.
Phruf ús ÓiglufjarcLar.
GLEÐILEG 3ÓL!
Kaupfélag Siglfirðinga.
ÍjjLeðiLeg jóL,
gott og farsœLt nýtt ár!
Phrzl. CSig. Lfristjánssonar.
Óskum öllu starfsfólki voru og við-
skiptamönnum
gleðilegra jóla
°g
góðs og farsæls nýjárs.
Síldarverksmiðjar ríkisins.
ffjLedileg jóL. ffarsœlt fomancli ár. Gleðileg jöl, farsælt nýár, þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
ffóf. fjófannesson, rafuirfi, Hárgreiðslustofa Gróu Halldórs
fjLeáiLeg jóL! Gleðileg jól.
Urzl. Péturs Pdjörnssonar. V A L U R-
(jjLediLecg jóL.
JfarsœLt nýtt ár. fJjLeðileg jólí
ML fijrir uiúsfiiþlin á lidna árinu.
'jhrzL, JJtaLLdórs JJónassonar JJtappcLrœtiiá.
fjón fjíslason.
stæðismanna til þess að torvelda
og spilla fyrir þessari samvinnu«.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt
frá Leifi Auðunssyni, Dalseli:
• Sambandsþing ungra Sjálfstæð-
ismanna, haldið í Reykjavík í nóv-
ember 1940, lýsir ánægju sinni yf-
ir bókaútgáfu Menningarsjóðs og
Þjóðvinafélagsins, og treystir því,
að útgáfufyrirtækið haldi fast við
pólitískt hlutleysi og verði í fram-
tíðinni landsmönnum til aukins
þroska«.
Ábyrgðarmaður:
Jónas Björnsson.
Siglufj arð arpr entsmiðj a.