Morgunblaðið - 04.04.2011, Blaðsíða 8
Á VELLINUM
Skúli Sigurðsson
sport@mbl.is
Keflavík og Njarðvík hófu leik í úr-
slitaeinvígi Iceland Express deildar
kvenna á laugardag með látum. Þeg-
ar um 5 sekúndur voru eftir skoruðu
Njarðvíkingar þriggja stiga körfu og
komust einu stigi yfir, 73:72, en
Keflavíkurliðið hafði ekki sagt sitt
síðasta og lokaorðið átti Lisa Karcic
sem skoraði tveggja stiga körfu um
leið og flautan gall, 74:73.
Leikurinn var frábær skemmtun
og má búast við mikilli skemmtun í
Reykjanesbæ á næstu leikjum þess-
ara liða ef miðað er við þennan leik.
Njarðvíkurstúlkur gera sér fyllilega
grein fyrir því að vera litla liðið og
þurfa að berjast vel eins og sást í
þessum leik. Liðin eru nokkuð jöfn
þó svo að reynslan sé töluvert meiri
hjá Keflavík. Hvort það muni vega
uppá móti baráttuglöðum Njarðvík-
urstúlkum mun koma í ljós í næstu
leikjum.
„Þetta var heldur betur tæpt hjá
okkur að þessu sinni. Þetta verður
líkast til svona í þessari seríu. Njarð-
vík er með frábært lið og við megum
alls ekki vanmeta það. Þetta lið vann
Hamar þrisvar í vetur en við náðum
því bara einu sinni. Vörnin okkar að
þessu sinni var ekki nægilega góð og
við vorum svolítið á hælunum. Þetta
þurfum við að laga fyrir næsta leik.“
sagði Pálína Gunlaugsdóttir eftir
þennan magnaða leik.
Ólöf Helga Pálsdóttir hjá Njarð-
vík var að vonum vonsvikin með tap-
ið. „Við vorum grátlega nálægt því
að taka sigurinn hérna í dag. Ég
bjóst alveg við svona spennuleik.
Þær vinna hér á heimavelli með einu
stigi á síðustu sekúndunni og þetta
er bara það sem koma skal í þessari
seríu, þetta verður mikil barátta.
Auðvitað vildi ná sigri hérna í dag en
hann kemur bara í næsta leik. Við
þurfum að sýna sama hungur og við
sýndum í leiknum gegn Hamri í
Hveragerði og það kemur hjá okkur
í næsta leik,“ sagði Ólöf Helga í sam-
tali við Morgunblaðið í leikslok.
Næsti leikur liðanna hefst annað
kvöld í Njarðvík kl. 19.15.
Háspenna
Ljósmynd/Skúli Sigurðsson
Tilþrif Miðherji Keflavíkur Bryndís Guðmundsdóttir reynir óvenjulegt skot sem Anna María Ævarsdóttir fyrirliði
Njarðvíkur reynir að verjast. Njarðvíkingurinn Sara Dögg Margeirsdóttir fylgist grannt með.
Skemmtileg byrjun á rimmu Kefla-
víkur og Njarðvíkur um meisaratitilinn
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2011
ÚRSLITAKEPPNI
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Úrslitakeppnin í blaki hefst í kvöld
með tveimur leikjum í karlaflokki,
en annað kvöld hefja konurnar leik.
Það eru fjögur efstu liðin úr
deildarkeppninni í Mikasadeildinni
sem leiða þarna saman hesta sína,
liðið sem varð í efsta sæti mætir
því sem varð í fjórða sæti og liðin í
öðru og þriðja sæti mætast. Það lið
sem er ofar í töflunni fær heima-
leikjaréttinn og byjar á heimavelli
og komi til oddaleiks verður hann
einnig á heimavelli þess liðs sem er
ofar í töflunni. Vinna þarf tvo leiki
til að komast áfram, og það sama á
reyndar við þegar komið er í úr-
slitarimmuna, það lið sem fyrr sigr-
ar í tveimur leikjum verður Ís-
landsmeistari.
Kópavogsdömur úr HK eiga titil
að verja í kvennaflokki en hjá körl-
unum eru það KA-menn frá Ak-
ureyri sem eru handhafar Íslands-
meistaratitilsins og eiga því þessi
lið titla að verja.
KA var á dögunum deildarmeist-
ari og fær liðið því Þrótt frá
Reykjavík í heimsókn í kvöld og í
hinni viðureigninni tekur HK á
móti nágrönnum sínum úr Garða-
bæ, Stjörnunni.
Hjá konunum taka nýkrýndir
bikarmeistarar og nýorðnir deildar-
meistarar, Þróttur frá Neskaup-
stað, á móti KA og Kópavogsliðin
HK og Ýmir mætast í hinni við-
ureigninni í Fagralundi.
Fyrirfram má búast við því að
úrslitarimman í kvennaflokki verði
á milli Þróttar frá Neskaupstað og
HK, liðanna sem léku til úrslita í
bikarnum á dögnum og buðu áhorf-
endum þar upp á gríðarlega
skemmtilegan og spennandi leik.
Þetta eru einfaldlega tvö sterkustu
liðin og ekkert sem bendir til ann-
ars en þau mætist í úrslitarimm-
unni, sem hefst þá 12. apríl, en í
undanúrslitunum er leikið annan
hvern dag.
Í karlaflokki búast sjálfsagt allir
við því að KA hampi bikarnum og
það er ekki að ástæðulausu sem
menn álykta þannig. Liðið vann
Stjörnuna fremur auðveldlega í úr-
slitum bikarsins fyrir skömmu,
varð síðan deildarmeistari og hefur
einfaldlega leikið best allra liða í
vetur. HK og Stjarnan eru reyndar
með ágætis mannskap en einhverra
hluta vegna hafa liðin ekki alveg
náð að sýna sitt besta og velgja
KA-mönnum verulega undir ugg-
um, þó svo HK hafi tvívegis unnið
KA í vetur og Reykjavíkur-Þróttur
vann KA einnig í deildinni. Það
breytir því hins vegar ekki að KA
hefur sýnt jöfnustu og bestu leikina
í vetur.
Búast má við hörku rimmu milli
HK og Stjörnunnar þegar þau berj-
ast um að fá að mæta KA í úrslit-
um blaks karla.
Tvöfalt hjá KA
og Þrótturum?
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Undanúrslit Fríða Sigurðardóttir og félagar í HK taka á móti nágrönnum
sínum úr Kópavogi, Ými í undanúrslitum á Íslandsmóti kvenna í blaki.
Úrslitakeppnin að hefjast í blakinu HK og KA eiga titil
að verja, HK í kvennaflokki og Akureyringar í karlaflokki
Toyota höllin, Iceland Express
deild kvenna, fyrsti leikur í úrslit-
um um Íslandsmeistaratitilinn
laugardaginn 2. apríl 2011.
Gangur leiksins: 2:4, 9:12, 16:16,
20:21, 22:23, 24:30, 29:34,
34:38, 37:41, 39:43, 48:45,
53:50, 56:56, 60:62, 67:66,
74:73.
Keflavík: Marina Caran 28, Lisa
Karcic 15/9 fráköst/9 stolnir/3
varin skot, Bryndís Guðmunds-
dóttir 12/10 fráköst, Pálína Gunn-
laugsdóttir 9, Birna Ingibjörg Val-
garðsdóttir 6/5 fráköst/5
stoðsendingar, Hrund Jóhanns-
dóttir 2, Ingibjörg Jakobsdóttir 2.
Fráköst: 23 í vörn, 10 í sókn.
Njarðvík : Shayla Fields 29/7 frá-
köst/6 stoðsendingar, Julia Dem-
irer 18/14 fráköst, Dita Liepkalne
15/14 fráköst, Ólöf Helga Páls-
dóttir 6, Ína María Einarsdóttir 3,
Anna María Ævarsdóttir 2.
Fráköst: 30 í vörn, 11 í sókn.
Dómarar: Rögnvaldur Hreið-
arsson.
Áhorfendur: Ekki uppgefið.
Keflavík - Njarðvík 74:73
Moggamaður leiksins
Lisa Karcic, Keflavík. Karcic var
hárréttur maður á réttum stað og
skilaði niður mikilvægustu körfu
leiksins þegar lokaflautan gall. Lisa
skoraði fimmtán stig, tók níu fráköst
og stal boltanum níu sinnum og því
ekki ýkja langt frá þrefaldri tvennu.