Morgunblaðið - 14.04.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.04.2011, Blaðsíða 2
2 14. apríl 2011finnur.is Finnska arkitektinn Alvar Aalto þekkja Íslend- ingar fyrir að hafa teiknað Norræna húsið í Reykjavík. Færri vita að Alvar Alto áheiðurinn af þessum vinsæla vasa sem finna má á mörgum heimilum. Vasinn er ýmist kallaður Aalto-vasinn eða Savoy-vasinn, en hann var meðal muna sem hjónin sérhönnuðu fyrir Savoy veitingastaðinn í Helsinki. Hægt er að finna Aalto-vasann í öllum litum, og ef leitað er til Iittala-glerverksmiðjunnar í Finnlandi má jafnvel fá vasann handblásinn og með sýni- legum samskeytum, rétt eins og hann var fyrst gerður fyrir 70 árum. ai@mbl.is Sígild hönnun Vasinn hans Alvars Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannes- sen Umsjón Birta Björnsdóttir birta@mbl.is Bílar Sigurður Bogi Sævarsson sigurdurbogi@ mbl.is Blaða- menn Ásgeir Ingvarsson, Finnur Thorlacius, Elín Alberts- dóttir. Auglýsingar finnur@mbl.is, sími 5691107 Prentun Landsprent ehf. 14. apríl 1695 Hafís rak inn á Faxaflóa í fyrsta sinn í áttatíu ár. Ísinn rak suður með Austfjörðum og vestur með Suðurlandi. 1931 Alþingi var rofið og boðað til kosn- inga. Yfir þvera forsíðu Morgunblaðsins daginn eftir stóð: Einræðisstjórn. 1962 Handritastofnun Íslands stofnuð með sérstökum lögum þegar sá fyrir endann á handritamálinu. 1963 Hrímfaxi, flugvél Flugfélags Ís- lands, fórst við Ósló og fórust tólf manns, flestir Íslendingar. Þeirra á með- al var leikkonan Anna Borg. 1980 Fyrsta hljómplata Iron Maiden, Iron Maiden, kom út í Bretlandi. 1983 Ólafsvík fékk kaupstaðarréttindi. 1987 Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Kefla- víkurflugvelli vígð. 1992 Ráðhús Reykjavíkur var tekið í notkun. Bygging þess kostaði á fjórða milljarð króna. Þegar þú í draumum mínum birtist allt er ljúft og gott og ég vildi ég gæti sofið heila öld. Hvaða Íslendingur sem er þarf ekkiannað en að lesa þessi fleygu orðog magnaður söngur StefánsHilmarssonar og Eyjólfs Krist- jánssonar byrjar að hljóma í höfðinu á honum. Lesendur fara örugglega létt með að botna þetta viðlag eins alvinsælasta dægurlags Ís- lands fyrr og síðar enda varla haldin sú veisla eða sá óskalagatími í útvarpi að Draumur um Nínu sé ekki settur á fóninn. Ótrúlegt en satt þá verða í maí liðin 20 ár frá því þeir Stebbi og Eyfi stigu á svið í Róm og færðu vanþakklátri heimsbyggðinni þetta meistaraverk. „Þetta var auðvitað fyrir þann tíma að reglunum var breytt og söngvurum leyft að flytja lög sín á ensku,“ segir Eyjólfur glettinn um það reginhneyksli að lagið skyldi ekki komast hærra en í fimmtánda sæti. Gæsahúðarmóment Að öllu gríni slepptu er ljóst að Draumur um Nínu er einstakt dægurlag. „Vinsældir lagsins hafa ekki síst komið mér á óvart fyrir þær sakir að textinn er í raun mjög dapurlegur og ætti hreinlega að vera niðurdrepandi. Textinn fjallar um ungan mann sem hefur misst unn- ustu sína, saknar hennar geysimikið en sér hana bara lifandi í draumum sínum og vill helst sofa út í eitt. Ég held að Íslendingar vilji bara leiða hjá sér textann og syngja lagið hástöfum, sem er bara fínt í mínum huga,“ segir Eyjólfur. Þar hefur laglínan örugglega sitt að segja, enda kröftugt lag sem virðist til þess fallið að blása fólki gleði og krafti í brjóst. „Það eru auðvitað nokkur gæsahúð- armóment inn á milli. Þetta er kraftballaða og svo auðvitað syngur hann Stefán svo hátt og glæsilega að það verður mikið úr laginu,“ segir Eyjólfur. Að sögn Eyjólfs lá enginn sérstakur inn- blástur að baki laginu. „Ég held þetta hafi verið í eina skiptið sem ég beinlínis settist niður og samdi lag fyrir þessa söngvakeppni. Ég hafði mótað með mér vissa hugmynd um viðfangsefni textans en lagið kom fyrst og textinn í kjölfar- ið.“ Þegar Eyjólfur lítur til baka hugsar hann bara með jákvæðni til þess ævintýris sem Draumur um Nínu var. „Í sjálfu sér markaði þetta lag engin tímamót, hvorki hjá mér né Stefáni, enda vorum við báðir búnir að koma okkur nokkuð vel af stað á tónlistarferlinum. Auðvitað var árangurinn í keppninni úti svolítil vonbrigði, og við höfðum vonast til að ná að minnsta kosti í topp tíu, en á heildina litið var þetta skemmtileg ferð og góður tími sem við eyddum þarna úti í Róm,“ segir hann. Lifað vel með þjóðinni „Síðan er náttúrlega yndislegt hvað lagið hefur orðið vinsælt og lifað vel með þjóðinni. Mér finnst alltaf jafnmerkilegt að ár eftir ár er Draumur um Nínu valið vinsælasta íslenska Eurovisionlagið og eru þó mörg önnur sem hef- ur gengið miklu betur í sjálfri keppninni.“ Laugardaginn 30. apríl gefst svo kostur á að hverfa 20 ár aftur í tímann, til tíma þar sem enginn hafði heyrt minnst á Icesave, Kringlan var rétt nýopnuð og Börn náttúrunnar frum- sýnd í kvikmyndahúsum. Stefán og Eyjólfur munu nefnilega halda sérstaka afmælistónleika í Salnum í Kópavogi. „Auk þess að gera Draumi um Nínu góð skil ætlum við að syngja nokkur íslensk og erlend Eurovisionlög sem okkur þykir vænt um, í bland við okkar þekktustu sönglög,“ segir Eyj- ólfur og bætir við að aldrei sé að vita nema gömlu fjólubláu og myntugrænu jakkafötin úr Rómarferðinni verði tekin fram úr geymslunni. ai@mbl.is Draumur um Nínu er gleðisöngur þrátt fyrir dapurlegan texta. Afmælistónleikar í lok mánaðarins Syngja Nínu hástöfum Morgunblaðið/Sigurgeir S Þetta er kraftballaða, segir Eyjólfur Kristjánsson, sem var á æfingu í vikunni með félaga sínum og vini, stórsöngvaranum Stefáni Hilmarssyni. Eyvi og Stebbi sungu Draum um Nínu í Róm 1991 og æ síðan hefur verið tekið hraustlega undir. Þótt ekki hafi gengið eins vel og vonir stóðu til í söngvakeppninni í Róm árið 1991 hefur Draumur um Nínu í seinni tíð hlotið hálf- gerða uppreisn æru. Suður- afrískur tónlistarmaður, Bles Bridges, tók sig t.d. til og tók lagið upp á ensku fyrir sinn heimamarkað og var þónokkuð vinsælt á sínum tíma. „Svo hlera ég það endrum og sinnum að þetta lag sé býsna vinsælt hjá svoköll- uðum Eurovision-nördum. Þegar eldheitu Eurovision- aðdáendurnir semja sína vinsældalista kemst Draum- ur um Nínu oft ofarlega á blað,“ segir Eyjólfur. Ofarlega á blaðiVilt þú vita hvers virðieignin þín er í dag? HRINGDU NÚNA Bær820 8081 Sylvia Walthers // best@remax.is Brynjólfur Þorkelsson // 820 8080 Rúnar S. Gíslason Lögg. fasteignasali. PANTAU FRÍTT SÖLUVERMAT! - nýr auglýsingamiðill Þjónustu- auglýsingar Fáðu tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1390 eða á maja@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.