Morgunblaðið - 14.04.2011, Síða 24
bílar24 14. apríl 2011
André Citroën varð fyrstur evrópskra bíla-
framleiðenda til að fjöldaframleiða bíla á færi-
bandi úr stöðluðum einingum að hætti Henry
Ford. Það var vorið 1919. Citroën varð ekki ein-
ungis fyrsti bíllinn sem venjulegt fólk í Evrópu
hafði efni á að kaupa heldur jafnframt gang-
öruggari, hagkvæmari í rekstri og ending-
arbetri en bílar keppinauta. Það var Model A af
árgerð 1919; einfaldur, sterkbyggður en búinn
ýmsum nýjungum: Um haustið hafði fyrsta
sendingin komið til Danmerkur, 50 bílar.
Einkaumboð var í höndum P.Andersen „Jy-
den“ í Himmerland. Það var samsteypa margra
fyrirtækja sem þá þegar rak vel skipulagt sölu-
og þjónustunet fyrir bíla, reiðhjól og fleira í
flestum borgum og bæjum. Stærst fyrirtækj-
anna og umsvifamesti seljandi Citroën-bíla var
„Autojyden“ í Kaupinhöfn sem þeir áttu saman
Valdemar Hansen og Jens Kragholm. Mál þró-
uðust þannig að Jens Kragholm ásamt Walther
Langer yfirtóku einkaumboðið fyrir Citroën
1922. Varla hafði blekið þornað á samningnum
er hafin var einhver árangursríkasta markaðs-
setning bíltegundar í Evrópu.
Þjónustan númer eitt
Fyrirtækið Kragholm & Langer seldi ekki
einungis Citroën í Danmörku heldur einnig
öðrum löndum Skandinavíu, í Þýskalandi, Pól-
landi og Eystrasaltslöndunum – Jens Krag-
holm gerði Kaupinhöfn að evrópskri miðstöð
bílasölu og það sem hann skipulagði og gang-
setti í Danmörku á fyrstu áratugum 20. aldar er
enn við lýði og sígilt alþjóðleg dæmi um hvernig
standa ber að sölu nýrra bíla.
Þegar André Citroën stofnaði sín eigin dótt-
urfyrirtæki víðsvegar í Evrópu 1924 og keypti
Kragholm & Langer réð það Jens Kragholm til
að annast markaðssetningu utan Kaup-
inhafnar. Sú ráðning skilaði sér heldur betur.
Kragholm einbeitti sér að því að tryggja Citro-
ën-þjónustu á landsvísu. Innan skamms var eitt
af því fyrsta sem blasti við þegar ekið var inn í
borg eða bæ skiltið „Citroën Service.“ Krag-
holm sá til þess með þaulunnu skipulagi að
skiltið stóð fyrir góða og hagkvæma þjónustu –
það vafðist aldrei fyrir honum að þjónustan
ætti að vera númer eitt – bílasalan númer tvö.
Fyrstu ár Kragholm & Langer fór hagnaður
fyrirtækisins í að byggja upp þjónustukerfið.
Á hverju vori fór Jens Kragholm fyrir Citro-
ën-sýningarlest sem þræddi hverja borg og bæ
Danmerkur; – Citroën-dagurinn varð fastur
viðburður með skemmtiatriðum og uppá-
komum ásamt kynningu á nýjum bílum og
þjónustu. Ár eftir ár var Citroën efst á lista yfir
mest seldu bíla.
Bilanatíðni minni í Danmörku
Danir urðu fyrstir Citroën-eigenda í Evrópu
til að fá nýja bíla með 3ja ára ábyrgð. Frá 1954
voru þjónustuskoðanir á 10 þús. km. fresti, að
30 þús. km, innifaldar í söluverði Citroën-bíla í
Danmörku og jafnframt var danska Citroën
fyrst evrópskra fyrirtækja til að taka upp
skipulagt forvarnarviðhald tengt þessum skoð-
unum. Bilanatíðni Citroën Traction Avant
(1934 –1955) og Citroën ID 19/DS 1955-1974,
en þessir bílar voru tæknilega 20 árum á undan
keppinautum, var minni í Danmörku en jafnvel
í Frakklandi!
Enn þann dag í dag njóta danskir Citroën-
eigendur þessa frumkvöðlastarfs sem m.a. sést
á því að bilanatíðni Citroën-bíla er lægri í Dan-
mörku en t.d. annars staðar á Norðurlöndum,
endursöluvirði með því hæsta og sala nýrra bíla
lífleg og jöfn.
Það kemur áreiðanlega einhverjum á óvart
að sömu sögu er að segja um gengi Citroën í
Ástralíu – en þar nýtur Citroën sérstaks álits
fyrir hagkvæmni í rekstri og örugga endursölu.
Og það er ekki tilviljun því Ástralarnir byggðu
upp þjónustukerfið í einu og öllu eftir danskri
fyrirmynd. Niðurstaða: Það er þjónustan sem
selur bíla.
Leó M. Jónsson svarar spurningum um bílamál
Alþjóðleg og sígild dönsk fyrirmynd
Alþjóðlegt og sígilt. „Þar nýtur Citroën sérstaks álits fyrir hagkvæmni,“ segir um lúxusbílinn góða.
Leó M. Jónsson véltæknifræðingur leoemm@simnet.is
(Ath. Bréf geta verið stytt. Eldri spurningar og ítarlegri svör eru birt á
www.leoemm.com)
Öragnasía (DPF = Diesel Particle Filter)
er hluti af tölvustýrðri mengunarvörn
sem gerir Diesel-vél vistvænni en
bensínvél. Ein „hreinasta“ Diesel-vélin
á markaðnum nú er nýja 6,7 lítra Ford
PowerStroke. Efnahvörf gera uppsafn-
aða mengun í síunni skaðlausa með því
að þvagefni er sprautað inn í brunahólf
(Bluetech-hvati). Sían hreinsar sig
reglulega með sjálfvirkum hætti.
Hreinsunin tekur um eina mín. Þá birt-
ist ljósboðið „Emission System Clean-
ing.“ Mikilvægt er að drepa ekki á vél-
inni fyrr en ljósboðið hefur slokknað.
Sé þess ekki gætt verður vélin ekki
gangsett nema á verkstæði.
Ábending
Gerir vélina
vistvænni
IMPREZA SPORT
Nýskráður 10/2007, ekinn 40 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 2.890.000
SUBARU
CR-V ELEGANCE
Nýskráður 4/2007, ekinn 70 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 3.390.000
HONDA
206 PERFORMANCE S 1.6i
Nýskráður 3/2007, ekinn 36 þ.km,
bensín, sjálfskiptur
Verð kr. 1.690.000
AYGO
Nýskráður 6/2006, ekinn 53 þ.km,
bensín, 5 gírar.
Verð kr. 1.190.000
TOYOTA
307 SW 1.6HDi
Nýskráður 6/2006, ekinn 117 þ.km,
dísel, 5 gírar.
Verð kr. 1.450.000
PEUGEOT
GETZ GLS 1.4i
Nýskráður 5/2008, ekinn 80 þ.km,
bensín, 5 gírar. 90% fjármögnun.
Verð kr. 1.290.000
HYUNDAI
VW POLO COMFORTLINE
Nýskráður 3/2007, ekinn 106 þ.km, bensín, 5 gírar.
Verð kr.1.190.000
Tilboðsverð kr. 899.000
VW PASSAT II COMFORTLINE
Nýskráður 9/2005, ekinn 123 þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Verð kr.1.990.000
Tilboðsverð kr. 1.499.000
TOYOTA RAV-4
Nýskráður 6/2004, ekinn 70 þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 1.970.000
Tilboðsverð kr 1.399.000
TILBOÐ DAGSINS TILBOÐ DAGSINS TILBOÐ DAGSINS
HR-V SPORT
Nýskráður 1/2001, ekinn 137 þ.km,
bensín, 5 gírar.
Verð kr. 690.000
HONDA
CIVIC ES
Nýskráður 9/2007, ekinn 25 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 2.390.000
HONDA
LAND CRUSIER 120 VX
Nýskráður 10/2007, ekinn 79 þ.km,
dísel, sjálfskiptur.
Verð kr. 7.290.000
TOYOTA
ACCORD EXECUTIVE 2.4i
Nýskráður 5/2007, ekinn 27 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 2.750.000
HONDA
Bílakjarnanum • Eirhöfða 11 • Sími 551 7171 • notadir.bernhard.isVið seljum bílinn fyrir þig!
Opið laugardaga milli kl. 12:00 og
16:00
NOTAÐIR BÍLAR Á FRÁBÆRU VERÐI
PERFORMANCE