Morgunblaðið - 15.04.2011, Page 2

Morgunblaðið - 15.04.2011, Page 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ Gleðilega páska www.lyfja.is Hjá okkur er opið alla páskana, einnig föstudaginn langa og páskadag. Lyfja Lágmúla kl. 7–01 Lyfja Smáratorgi kl. 8 –24 15.04.2011 Útgefandi Árvakur Umsjón Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is Elín Albertsdóttir elal@simnet.is Guðrún S. Guðlaugsdóttir gudrunsg@gmail.com Karl Eskil Pálsson karlesp@simnet.is Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Forsíðumyndin er af páskaung- um í Mosfellsbæ. Ljósmyndari Sigurgeir Sigurðsson. Prentun Landsprent ehf. LifunPáskar 10 Tilhlökkun, segir Þuríður sem syngur á Siglufirði um páskana. 26 Mugison fer aldrei suður en fær fólkið þess í stað vestur. 12 Páskaliljur og túlípanar í Átján rauðum rósum í Kópavogi. 28 Margir eiga sér sæludaga í sveitinni um páska og fara í sumarhúsið sitt. 4 Páskarnir flytja þjóðinni mikilvægan boðskap, segir sr. Guðrún Karlsdóttir Grafarvogsprestur. Páskarnir eru besti tími árs og eru landanum kærkomið frí. Eftir langan vetur er dagana loks farið að lengja og nú er orðið bjart vel fram á kvöld. Á gönguferðum úti í náttúrunni má skynja að vorið liggur í loftinu og sumstaðar eru grænar gróðurnálar farnar að skjóta sér upp úr sverði sinugróðurs. Raunar er þetta meira en vorboði; keimur af sumri er réttorðari lýsing. Margir nota páskana til þess að bregða sér eitthvað út úr bænum; fara í sumarbústað, heimsækja vini og ættingja, upp til fjalla og svo mætti áfram telja. Þá hafa nokkrir staðir úti á landi skorað mjög hátt sem vinsælir viðkomu- staðir fólks sem bregður undir sig betri fæt- inum um páskana. Má þar til dæmis nefna skíðasvæðin á Akureyri og Oddsskarðið fyrir austan sem þar í sveit er farið að kalla aust- firsku alpana. Lífið sigrar alltaf Fyrst og síðast eru páskarnir þó trúarleg há- tíð. Á föstudaginn langa var Jesús Kristur krossfestur á Golgata. Á Hausaskeljastað, eins og Davíð Stefánsson orti. Var lagður í gröf sína, reis svo upp og sannaði með því að lífið sigrar alltaf dauðann og að hið góða hefur alltaf und- irtökin. „Atburðir páskahátíðarinnar segja okkur margt um fyrirgefningu og sátt og það er boð- skapur sem alltaf er mikilvægur og okkur veitir ekki af að minna okkur reglulega á. Atburðirnir segja okkur að Guð er fyrirgefandi Guð sem vill sátt við mannfólkið og hvetur okkur til lífs í sátt og samlyndi,“ segir sr. Guðrún Karlsdóttir, prestur í Grafarvogskirkju í Reykjavík, í samtali við Páskablað Morgunblaðsins. Skip við sjóndeildarhring Og nú víkur veturinn og hvarvetna sjáum við hin ytri tákn um betri tíð. Meira að segja hátíð- leiki páskanna og gleðin yfir birtu daganna leið- ir til þess að svartagallsfréttirnar, sem eru svo áberandi í blöðum og ljósvaka, víkja fyrir öðru um stundarsakir. Satt að segja er þetta sem við sjáum skip út við sjóndeildarhring hlaðið vistum til fólksins sem hefur þraukað langan vetur á köldu landi. Gulur litur páskanna, sem táknar vonina, er áberandi og hefur vísast aldr- ei haft meira gildi – og þýðingu – en einmitt nú. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Páskabörn Páskagleðin er áberandi og vonin er ríkjandi - nú þegar veturinn víkur og hvarvetna sjást hin ytri tákn um betri tíð. Veturinn víkur og vonin sigrar allt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.