Morgunblaðið - 15.04.2011, Síða 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
„Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn.
Drottinn heyr þú raust mína,
Lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína.“
Þ
að er eitthvað heillandi við
fegurðina. Ofangreindur
texti er tekinn úr bókinni;
Út í birtuna. Hún hefur yf-
ir sér látlausan yndisþokka
og hún fer vel í hendi. Við sitjum
þrjár saman, horfum á þessa bók og
flettum henni. Um árabil sá dr. Arn-
fríður Guðmundsdóttir öðru hvoru
um Morgunbænir í Ríkisútvarpinu,
hugvekjur um efni sem hún valdi úr
Biblíunni.
Bókin Út í birtuna er unnin úr því
efni og kom út nýlega hjá bóka-
forlaginu Sölku. Listakonan Æja,
Þórey Magnúsdóttir, hefur skapað
myndverk sem birtast þarna með
fyrrnefndu lesefni. Sýning stendur
yfir fram yfir páska á myndunum í
Langholtskirkju.
Ég átti mína barnatrú
En hvað varð til þess að Arnfríði
datt í hug að gefa hugvekjurnar út?
„Ég hafði séð fallegar bækur er-
lendis sem eru að vissu leyti fyr-
irmyndir að þessari bók. Þegar ég
var komin með dágott safn af efni og
hafði kynnst Æju, sem hafði áhuga á
að vinna með trúarlegt þema, lagði
ég þessa hugmynd fram. Mér finnst
mikilvægt að í svona bók séu það
ekki bara orðin sem tala til fólks
heldur líka myndefnið,“ segir Arn-
fríður
En út frá hverju vann Æja sína
myndsköpun?
„Ég sem leikmaður hef áður unnið
með trúarlega list, gerði til dæmis
altaristöflu í kirkjuna á Fitjum í
Skorradal og hef unnið að mynd-
sköpun fyrir Þorlákskirkju og Bú-
staðakirkju. Þessi hugmynd Arn-
fríðar höfðaði því til mín,“ svarar
Æja. „Þarna fékk ég tækifæri til að
vinna út frá mínum trúarhug-
myndum. Ég gerði þetta þannig að
ég meðtók anda efnisins og hugsaði
svo út frá því um liti og form. Í
myndsköpun minni í þessari bók er
ýmislegt úr mínum hugarheimi sem
ég bý að frá því ég var lítil. Ég átti
mína barnatrú en hún vex upp með
manni og þroskast eins og maður
sjálfur. Þetta var skemmtilegt en
krefjandi verkefni sem ég kom að
aftur og aftur með hléum. Í myndlist
þarf mikið að hugsa og ég fékk tæki-
færi til þess því nokkur ár liðu frá því
þetta kom fyrst til tals og þangað til
bókin kom út. Myndirnar eru unnar
úr olíu, vaxi og marmarasalla.“
Hugmynd að veruleika
Dr. Arnfríður hefur gefið út fræði-
bókina Meeting God on the Cross
hjá Oxford University Press og einn-
ig ritstýrt greinasafni ásamt Krist-
ínu Ástgeirsdóttur um kvennabar-
áttu og kristna trú. Bókina Út í
birtuna vann hún samhliða því starfi.
„Ég kom til Æju í desember 2004.
Ég var þá í barneignarleyfi og datt í
hug að gera hugmynd mína að þess-
ari bók að veruleika. Ég hafði fengið
mynd eftir Æju að gjöf þegar ég lauk
doktorsprófi 1996 og hrifist af henni.
Þess vegna leitaði ég til hennar. Það
hefur verið skemmtilegt að fylgjast
með hve myndirnar hennar hafa tek-
ið margvíslegum breytingum frá því
þetta kom til tals og þangað til bókin
varð að veruleika.“
Hvers vegna tók þetta svona
langan tíma?
„Góðir hlutir taka langan tíma,“
segir þær Arnfríður og Æja. Textinn
og myndirnar þróuðust samhliða og
þeim stöllum var vel tekið hjá bóka-
forlaginu Sölku þegar bókarhug-
myndin var lögð þar fyrir 2005.
„Ólöf Jóna Guðmundsdóttir hann-
aði útlit bókarinnar – sem búin er til
og gefin út af konum. En hún er
ætluð fólki af báðum kynjum og öll-
um aldri. Strax vildu þær hjá Sölku
hafa þetta fallega og tímalausa
gjafabók sem hentar vel til að hafa
uppi við og fletta í. Efni hennar á
erindi við fólk, manneskjan er söm
og áður fyrr. Þetta er bók sem ekki
þarf að lesa frá upphafi til enda
heldur er hver opna hennar sjálf-
stæð,“ segir Arnfríður.
Erindi og tilgangur
„Ég fékk um daginn bréf frá
konu sem misst hafði son sinn í
mjög sorglegu slysi fyrir skömmu.
Hún sagði: „Mig langar til að þakka
þér fyrir bókina, ég veit ekki hvern-
ig ég hefði komist í gegnum þennan
erfiða tíma nema af því ég hafði
hana.“ Þessi orð snertu mig mikið.
Þetta eina atvik hefur fullvissað
mig um að bókin á erindi og til-
gang.“
gudrunsg@gmail.com
Orðin og myndefnið tala til fólksins
Morgunblaðið/Golli
Í Háskólakapellunni Þórey Magnúsdóttir, Æja, og Arnfríður Guðmundsdóttir. „Tækifæri til að vinna út frá trúarhugmyndum,“ segir sú síðarnefnda.
Dr. Arnfríður Guðmunds-
dóttir guðfræðingur og
listakonan Æja hafa gefið
út bókina Út í birtuna. Efni-
viðurinn er sóttur í Biblí-
una. Efnið á erindi við fólk
og manneskjan er söm og
áður fyrr.
Opnaður verður sveitamarkaður að
bænum Hraunsnefi í Norðurárdal í
Borgarfirði nú um páskana. Þar
verður á boðstólum ýmislegt úr
matarkistu héraðsins sem og ýmiss
konar handverk kvenna í héraðinu.
„Þetta hefur lengi verið í bígerð en
við væntum þess að markaðurinn
verði aðdráttarafl fyrir fólk sem fer
hér um sveitina,“ segir Brynja
Brynjarsdóttir, ferðaþjónustubóndi
á Hraunsnefi, í samtali við Morg-
unblaðið.
Á Hraunsnefi, sem er skammt
fyrir ofan Bifröst, er tíu herbergja
sveitahótel og nokkur snotur smá-
hýsi. Þá er á svæðinu leiksvæði fyrir
börn.
„Við verðum með margt mjög
skemmtilegt úr sveitinni hér á
markaðnum. Þar nefni ég til dæmis
brodd úr kúnum á Glitstöðum,
gúrkur frá garðyrkjubændunum á
Varmalandi og egg orpin hér á bæn-
um,“ segir Brynja en þau Jóhann
Harðarson eiginmaður hennar búa
með hænur, svín, hesta og hunda –
sem alltaf er ævintýri fyrir borg-
arbörn að heilsa upp á.
Sveitamarkaðurinn á Hraunsnefi
verður nú um páskana opinn frá há-
degi og fram til klukkan 21 á kvöld-
in. Eftir páska verður opið síðdegis,
en svo alla daga frá hádegi og langt
fram á kvöld þegar kemur fram á
sumarið.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarfjörður Hlið og heimreið að Hraunsnefi vekja eftirtekt.
Opna sveitamarkað
í Borgarfirði
Broddur, gúrkur og egg.
Íslenskar ullarvörur frá
konum í sveitinni.
Grísir Öllum krökkum finnst
gaman að sjá dýrin í sveitinni.