Morgunblaðið - 15.04.2011, Síða 12

Morgunblaðið - 15.04.2011, Síða 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ É g stofnaði þessa blóma- búð fyrir fjórum árum og hef nýverið stækkað hana, það gerðist þegar pósthúsið hér við hliðina flutti,“ segir blómasalinn, Sigríður Gunnarsdóttir, gjarnan kölluð Didda. Hún ráðslagar meðfram samtalinu við blaðamann með Hreini Kristóferssyni blómarækt- anda í Hveragerði um hversu mik- ið af páskaliljum, gulum túlípönum og krísum hún þurfi að fá fyrir hátíðina. Rósir alltaf vinsælar „Ég kaupi blóm af Hreini og svo af blómaheildsölunum,“ segir Didda. „Einu sinni í viku panta ég svo innfluttar jurtir, svo sem „meðlæti“ sem ég nota með af- skornum blómum, greinar og þess háttar og svo blóm sem ekki eru ræktuð hér, flamingóblóm og orkí- deur til dæmis,“ bætir hún við. Hún kveður orkídeur í afhaldi bæði sem pottablóm og einnig af- skornar. En hvað með rósir? „Rósir er alltaf jafn vinsælar. Ég kaupi eingöngu íslenskar rós- ir,“ segir Didda. En hvernig á að fá rósir til þess að springa almennilega út? „Fyrst og fremst að hafa vasana hreina. Best er að skola þá með klórvatni eftir að hafa þvegið þá og skola þá svo úr hreinu vatni. Svo er nauðsynlegt að skera reglulega neðan af rósunum. Nú seljum við tæki sem fólk getur notað heima til að skera af rósa- leggjunum, það framlengir blómgvunartíma þeirra,“ segir hún og bætir við að gott sé að skipta um vatn. „Við setjum þær út í sjóðandi vatn þegar við skerum rósirnar fyrst og svo kalt vatn út í með næringu. Eldri kona hér í bæ sagði okkur hér um daginn að ef rós hengir haus sé gott að skera hana ofar á leggnum og setja hana svo á bólakaf ofan í kalt vatn yfir nótt – þá stendur rósin í viku á eftir.“ Kalt vatn og lítið á páskaliljum og túlípönum En hvað með túlípana og páska- liljur?„Gott er að hafa lítið og kalt vatn á þeim blómum. Sumir setja meira að segja klakavatn á þau blóm. Ef túlípanar fá of mikið vatn þá vaxa þeir fljótt úr sér, þeir taka inn vatn með blöðunum einnig,“ segir Didda. Seljið þið mikið af greinum? „Já, þær eru hafðar með af- skornu blómunum. Hingað kom eldri maður fyrir skömmu og gaf okkur talsvert af afklipptum greinum. Einnig fengum við grein- ar hjá garðyrkjumanni sem hefur verið að klippa í görðum.“ Kaupir fólk fremur afskorin blóm en pottablóm? „Miklu meira er keypt af af- skornum blómum en samt er að aukast að fólki kaupi pottablóm, einkum tískublóm einsog orkídeur. Hortensíur eru líka vinsælar, þeirra tími er núna.“ Hitinn er ekki góður Er mikilvægt að geyma af- skorin blóm og skreytingar í kulda? „Já, við gerum það alltaf og ég ráðlegg fólk að gera það, þess vegna inni í ísskáp ef það hefur pláss þar. Ef veðrið er þannig má líka geyma blómin úti á svölum. Afskorin blóm endast lengur í kulda, sól og hiti er ekki gott um- hverfi fyrir þau.“ Hefur mikil blómasala verið í kringum fermingarnar núna? „Já, það er alltaf selt mikið þá en heldur hefur þó dregið úr blómakaupum, það eru ekki allir sem eiga peninga núna. Meira er þá keypt af ódýrari blómum – túl- ípanar eru t.d. ekki dýrir. Það er alltaf vinsælt að koma með blóm t.d. í matarboð. Nú fer fólk ekki eins mikið til útlanda og áður. Í staðinn heldur það boð, afmælis- og matarboð. Gestir kaupa þá gjarnan blóm til að koma með – jafnvel eina og eina rós. – Rósin er nú einu sinni nefnd drottning blómanna.“ gudrunsg@gmail.com Páskaliljur, túlípanar og rósir Blóm eru eitt vinsælasta skrautið um páskahátíð- ina. Í blómabúðinni Átján rauðum rósum við Hamra- borg í Kópavogi eru þau í öllum regnbogans litum – en nú eru að koma páskar og þá er guli liturinn eft- irsóttur. Morgunblaðið/Guðrún S.G. Endingargóð Krísur eru gullfalleg blóm og dugleg. Falleg páskaskreyting. Fallegt Undurfögur eggjaskreyting sem sómir sér vel á hátíðarborði. Blómakona Sigríður Gunnarsdóttir, Didda, með hina ástsælu gulu túlípana. Túlípanar Þessi fallega skreyting tekur sig vel út og vekur eftirtekt. Landsliðsflokkur Íslandsmótsins í skák fer fram um páskana á Eiðum á Fljótsdalshéraði. Mótið hefst nú í dag, föstudaginn 15. apríl, þegar Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdals- héraðs, leikur fyrsta leikinn. Tíu af sterkustu skákmönnum landsins taka þátt í mótinu. Íslandsmótið nú er það sterkasta í mörg herrans ár en þrír stórmeistarar eru með. Mótið er það fyrsta sem haldið er á Austurlandi í 21 ár en síðast var það haldið á Höfn í Hornafirði árið 1990. Það mót var sögulegt en þá sigraði Héðinn Steingrímsson, yngstur allra, 15 ára. Það met stendur enn. Auk Héðins tekur einn fyrrverandi Íslandsmeistari þátt í mótinu, Henrik Danielsen, en hann sigraði á Íslands- mótinu í skák sem fram fór 2009 á Bolungarvík. Í aðdraganda mótsins fóru kennarar á Skákskóla Íslands í heimsókn í rúman tug skóla á Austur- landi og boðuðu fagnaðarerindið. Meðal annarra keppenda má nefna Þröst Þórhallsson, Stefán Krist- jánsson, Braga Þorfinnsson og Guð- mund Kjartansson. Teflt er alla daga á Eiðum og hefst taflmennska kl. 14 að síðustu umferðinni undanskilinni sem hefst kl. 9 laugardaginn 23. apríl. sbs@mbl.is Þungavigtarmót í skák haldið á Eiðum um páskahelgina Morgunblaðið/Ómar Skák Héðinn Steingrímsson læt- ur til sín taka á Eiðamótinu í skák sem haldið verður um páskana. Vor og Páskavörur Eigum e innig páskaeg gjamót - 5 stær ðir Klappastíg 44 – Sími 562 3614

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.