Morgunblaðið - 15.04.2011, Page 20

Morgunblaðið - 15.04.2011, Page 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ Sushi gerir matarboðið svo miklu skemmtilegra Samkvæmt viðmiðum frá Lýðheilsustöð er mælt með því að borða fisk að lámarki 2-3 sinnum í viku, því ekki að breyta til og hafa sushi sem einn af frábæru hollustu kostum vikunnar. Sushi er japönsk matarhefð sem hefur átt miklum vinsældum að fagna hér á landi að undanförnu. Sushi er hollur matur og fitusnauður og ekki verra að sushi er einnig litríkt og gælir því jafn vel við augað sem og bragðlaukana. Við sem störfum í Sushi- búðinni í Glæsibæ leggjum okkar kapp á það að vera með gæða hráefni og mikið af fallegum munum til sushigerðar og framsetningar á sushi. Sjón er sögu ríkari Sushibúðin Glæsibæ • 571 2277 J afnvel fyrir þrautþjálfaðan leikara er það þrekvirki að lesa Passíusálma Hallgríms Péturssonar upp í heild sinni. Sigurður Skúlason komst að því sjálfur þegar hann gerði fyrst atlögu að sálmunum fyrir tveimur árum. „Ég hafði fót- brotnað þá um veturinn og af þeim sökum dottið út úr ýmsum verk- efnum svo röddin var ekki á sínum eðlilega stað. Þegar leið á lesturinn fór ég að finna fyrir æfing- arleysinu,“ segir hann, en lestur sálmanna tekur allt að fimm tíma. Lesturinn síðustu páska gekk bet- ur fyrir sig enda Sigurður þá í betra formi. „Eftir sem áður tekur lesturinn á, bæði andlega og lík- amlega.“ Á föstudaginn langa mun Sig- urður í þriðja sinn halda til Hall- grímskirkju í Saurbæ í Hvalfjarð- arsveit og lesa Passíusálmana. Á stað með góðum anda En hvernig kom það til að Sig- urður ákvað að takast á hendur þetta mikla verkefni? „Ég hafði nokkrum sinnum áður verið beðinn að lesa sálmana ásamt öðrum flytjendum. Það kveikti síð- an áhugann á að sækja námskeið um Passíusálmana hjá Endur- menntunarstofnun Háskólans. Þar fann ég eitthvað sem höfðaði sterkt til mín og löngunin kviknaði að fást við þessa stóru áskorun – að flytja þá í heild sinni.“ Sigurður hóf leitina að góðum stað fyrir lesturinn og eftir nokkr- ar vangaveltur fór hugmyndin að flytja þá í Saurbæ að verða æ áleitnari. „Eftir á að hyggja hefði mér átt að detta strax í hug að lesa sálmana í Saurbæ. Það liggur auð- vitað beint við að flytja þá á þeim stað þar sem Hallgrímur bjó og starfaði um árabil, þar sem hann samdi sálmana, og þar sem andi hans er sínálægur.“ Kirkjan í Saurbæ er hæfilega Hreifst af einlægum trúarhita Hallgríms Sigurður Skúlason segir vandaverk að lesa Pass- íusálmana upp í heild sinni. Efni í ævistarf að ná góðu valdi á flutningi sálmanna. Einlægni „Tvímælalaust var Hallgrímur frábært skáld og í Passíusálmunum nær hann ótrúlegum hæðum. Út- koman er nánast óviðjafnanleg tegund af skáldskap,“ segir Sigurður. Boðið verður upp á veglega dag- skrá í Saurbæ á Hvalfjarð- arströnd í Dymbilviku. Auk flutn- ings Sigurðar á Passíusálmunum verða haldnir þrennir tónleikar á skírdag þar sem fram koma Marta Guðrún Halldórsdóttir söngkona, Örn Magnússon organisti, Kór Saur- bæjarprestakalls, Ísak Harð- arson ljóðskáld, Gunnar Kvaran sellóleikari og Haukur Guð- laugsson organisti. Lestur Sigurðar hefst kl. 13.30 á föstudaginn langa. Tekin verða stutt hlé eftir 9., 17., 24., 33. og 44. sálm og mun Örn Magn- ússon þá flytja orgelspuna. Ráð- gert er að lestrinum ljúki um kl. 19. Hátíðarmessa hefst kl. 11 á páskadag og verður þar frum- flutt tónverkið Hjartað fagnar eftir Báru Grímsdóttur. Vönduð dagskrá Páskaferð Ferðafélags Íslands er að þessu sinni vestur á Snæfellsnes. Þátttakendur koma á eigin vegum að Lýsuhóli í Staðarsveit þar sem gist verður í ferðinni. Allur kostnaður við ferðina, gisting, sameiginlegur mat- ur, rútuferðir á svæðinu er gerður upp á staðnum og deilt niður á þátt- takendur. Miðað er við að fólk verði komið um hádegi á skírdag á Lýsuhól en þann dag verður gengið um svo- nefnda Klettagötu. Farið verður um allar helstu nærliggjandi slóðir í skemmtilegum gönguferðum sem eru á færi allra sem eru í sæmilegri þjálfun. Þá verður að hætti menning- ar Ferðafélags Íslands farið yfir menningu svæðisins, svo sem sögu Björns Breiðvíkings, Fróðárundra og Máhlíðingamála. „Utanvert Snæfellsnes er magnað göngusvæði og sagan er við hvert fótmál á þessum slóðum,“ segir Eygló Egilsdóttir fararstjóri. „Við munum í þessari ferð ganga um fjöll- in fyrir ofan Fróðárhreppinn gamla þar sem sést vel yfir Breiðafjörðinn og út á Faxaflóann. Göngum þar á Korra og Stafnafell. Þá verður geng- ið á Böðvarskúlu við Helgrindur en af henni sést inn um allar eyjar og allt til Drangajökuls í góðu skyggni. Þetta eru slóðir sem ég þekki vel enda uppalin á svæðinu og það verð- ur gaman að ganga með fólki þarna um.“ sbs@mbl.is Magnað göngusvæði og sagan við hvert fótmál Breiðavík Horft af Jökulhálsi um þær slóðir þar sem Ferðafélags- fólk fer um páskana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.