Morgunblaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ
Sími 570 2700 | sveit@sveit.is | www.sveit.is
Upplifðu páskana og vorið
upp í sveit með fjölskyldunni
Gisting, matur og afþreying um allt land
Kíktu á sveit.is
Vorgleði
Upp í sveit
Á
lftagerðisbróðirinn Óskar
Pétursson tekur á móti
góðum gestum á söng-
skemmtun í menningar-
húsinu Hofi á Akureyri
laugardagskvöldið fyrir páska.
Hann segir að óbeislaður húmor og
léttleiki verði í fyrirrúmi þótt eitt og
eitt vasaklútalag detti inn á milli.
Gestir Óskars verða Harpa Björk
Birgisdóttir, Lára Sóley Jóhanns-
dóttir, Hjalti Jónsson, Ragnar
Bjarnason og Sigrún Hjálmtýsdótt-
ir.
„Gunnar vinur minn Þórðarson
útsetur öll lögin og stjórnar úrvals-
hljómsveit sem leikur undir. Ég
treysti Gunnari auðvitað full-
komlega, við höfum verið í tölvu-
sambandi undanfarna daga og laga-
valið er að taka á sig skýra mynd.
Ég veit að Diddú
og Raggi eru búin
að ákveða hvaða
lög þau ætla að
syngja, en sjálfur
er ég enn að velta
hlutunum fyrir
mér. Það eru nokk-
ur lög sem hafa
fylgt mér í gegnum
tíðina og einhver
þeirra verða auð-
vitað fyrir valinu,
en þetta skýrist sem sagt allt saman
á næstu dögum. Dúettarnir eru þó
klárir og sömu sögu er að segja um
sprengiaríurnar.“
Óskar var meðal þeirra fyrstu
sem héldu tónleika í Hofi. Þá fékk
hann meðal annars til liðs við sig
bræður sína og Ragnar Bjarnason.
„Það er nú svo mikið að gera hjá
bræðrum mínum, þannig að ég var
ekkert að ónáða þá í þetta skiptið,“
segir Óskar. „Raggi sló í gegn í Hofi
síðast, þess vegna var ekki hægt
annað en að biðja hann að koma aft-
ur norður.“
Tilhlökkun og kvíði
„Einhver kynni að segja að ég
væri orðinn sæmilega sjóaður í þess-
um bransa. En þér að segja er ég
alltaf kvíðinn, óttast að enginn komi
á tónleikana. Þessar áhyggjur hafa
fylgt mér í gegnum tíðina. Ég fæ
stundum kvíðaköst og þori hreinlega
ekki að kanna stöðuna hjá miða-
sölufólkinu. Maður er alltaf að æfa
sig í huganum og hugsa um ýmislegt
sem þarf að vera klappað og klárt.
Auðvitað eru allar þessar áhyggjur
algjörlega óþarfar, tónlistarfólkið
sem er með mér kann sannarlega
sitt fag og sömu sögu er að segja um
starfsfólk Hofs. En svona er þetta
bara, ég einfaldlega ræð ekkert við
þetta.“
Og Óskar lofar áhorfendum ekki
aðeins góðri tónlist, heldur einnig
óbeisluðum húmor á milli laga.
„Já hvað heldurðu, markmiðið er
fyrst og fremst að allir eigi skemmti-
lega og notalega kvöldstund, bæði
tónlistarfólkið og áhorfendurnir.
Einhverra hluta vegna hefur þróun-
in verið sú að ég segi gjarnan sögur
á milli laga. Þegar ég syng í einka-
samkvæmum minna formenn
skemmtinefnda mig til dæmis stund-
um á að segja endilega eitthvað
skemmtilegt,
helst tvíræða
brandara. Svo
er Raggi fjandi
fyndinn, auk
þess sem hann
hefur lofað mér
að vera með
nýja brandara
á milli laga. En
tónlistin verður
að sjálfsögðu í
fyrirrúmi.“
Ef kjarkurinn leyfir
Fyrir nokkrum árum útsetti
Gunnar Þórðarson Nessun Dorma
eftir Puccini fyrir Óskar.
„En þegar á reyndi lagði ég ekki í
að syngja hana. Rann á rassinn með
allt saman, þrátt fyrir að æfingar
hefðu gengið vel. En núna stendur
til að gera aðra atlögu að þessari
mikilfenglegu aríu. Vonandi brestur
mig ekki kjarkinn að þessu sinni.
Svo hefur Raggi talað um að gaman
væri að rappa svolítið í lokin. Ég er
ekki viss um að ég leggi í svoleiðis
lagað, en við verðum bara að sjá til
og vona það besta. En svona í alvöru,
þá væri óskandi að arían Nessun
Dorma hljómaði í Hofi á laugardags-
kvöldið. Ég hreinlega verð að brjóta
ísinn, hljómsveitin er tilbúin og með
því að gera þetta opinbert verður
varla aftur snúið.“
Óskar býst við að sjálfur tónleika-
dagurinn verði með hefðbundnu
sniði.
„Það verður æfing strax um
morguninn og svo taka við hljóð-
prufur. Ég reyni að mæta vel hvíld-
ur og sömuleiðis finnst mér nauð-
synlegt að taka kríublund skömmu
fyrir sjálfa tónleikana. Svo telur
Gunni Þórðar í taktinn á réttum
tíma og þá verður ekki aftur snúið.
Heitasta óskin er auðvitað sú að
áhorfendur haldi til síns heima að
loknum tónleikum glaðir í bragði. Þá
er tilganginum náð. Ánægður gestur
er mitt páskaegg,“ segir Óskar Pét-
ursson frá Álftagerði.
karlesp@simnet.is
Vonandi syng ég Nessun Dorma
Óskar Pétursson undirbýr
tónleika í Hofi á Akureyri.
Fær sér kríublund skömmu
fyrir tónleika. Raggi Bjarna
vill rappa með í lokin.
Skapti Hallgrímsson
Álftagerði „Markmiðið er fyrst og fremst að allir eigi skemmtilega kvöldstund,“ segir Óskar Pétursson.
Heitasta óskin er auðvit-
að sú að áhorfendur
haldi til síns heima að
loknum tónleikum glaðir
í bragði. Þá er tilgang-
inum náð. Ánægður
gestur er mitt páskaegg.
Á
skírdag kl. 17 verður í kirkjunni svonefnd
Söngvahátíð barnanna. Þar munu stór
barnakór, karlaraddir, hljómsveit skipuð
framúrskarandi djasstónlistarmönnum ásamt
söngvaranum Agli Ólafssyni og fleirum flytja
sálma og lofsöngva frá ýmsum heimshornum. Stjórn-
andi er Tómas Guðni Eggertsson en kórarnir eru úr
Seljakirkju, Langholtskirkju, Hafnarfjarðarkirkju og
Holtaskóla í Keflavík.
Á skírdagskvöld kl. 23 verða í kirkjunni miðnæt-
urtónleikar þar sem Passíusálmar Hallgríms Péturs-
sonar verða fluttir á nýstárlegan hátt af Kirstínu Ernu
Blöndal sópransöngkonu, Gunnari Gunnarssyni org-
elleikara og Matthíasi Hemstock slagverksleikara.
Á föstudaginn langa verða Passíusálmarnir lesnir í
kirkjunni frá kl. 13-18. Flytjendur eru hópur íslensku-
kennara, ungra og gamalla, frá grunnskóla að háskóla:
þau Vilborg Dagbjartsdóttir, Margrét Ólöf Ívarsdóttir,
Dagný Marinósdóttir, Baldur Sigurðsson, Þórður
Helgason, Svanhildur Kaaber, Þorleifur Hauksson,
Ingibjörg Einarsdóttir, Sesselja Sigurðardóttir, Björk
Einisdóttir, Sigurður Konráðsson, Ragnar Ingi Að-
alsteinsson, Kristján Jóhann Jónsson og Hrönn Berg-
þórsdóttir.
Um kvöldið kl. 20 verða svo tónleikar Schola cantor-
um, sem flytur sex radda mótettur um pínu og dauða
Jesú, eftir ítalska endurreisnartónskáldið Carlo Gesu-
aldo de Venosa. Stjórnandi er Hörður Áskelsson og
upplesari Halldór Hauksson.
Tónskáldið túlkaði krossfestinguna á afar áhrifamik-
inn hátt og eru mótettur hans hátt skrifaðar meðal
unnenda kórtónlistar.
Söngvar og sálmar í kirkjunni
Gleði Blikið skín úr augum barna sem syngja lofsöngva frá ýmsum heimshornum í Hallgrímskirkju á skírdag.
Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir
fjórum viðburðum á skírdag og föstudag-
inn langa. Fjöldi sækir Hallgrímskirkju um
páska, ekki síst fólk sem hefur áhuga á
boðskap sálmaskáldsins Hallgríms Pét-
urssonar.