Morgunblaðið - 15.04.2011, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ | 23
Á
laugardaginn fyrir páska,
23. apríl kl. 14, mun tón-
listarmaðurinn Sig-
tryggur Baldursson í
gervi Bogomil Font flytja
í Bláa lóninu nokkrar suðrænar ka-
lypso-vísur með íslenskum textum
ásamt Davíð Þór Jónssyni sem leik-
ur á harmonikku og bongótrommur!
Menningar- og sögutengd göngu-
ferð verður í boði annan í páskum og
hefst gangan kl. 13.00. Gangan er í
boði Bláa lónsins og Grindavík-
urbæjar. Gangan hefst kl. 13 við
bílastæði Bláa lónsins og er áætlað
að hún taki um þrjár klukkustundir.
Möguleiki er að fara rúmlega hálfan
hring og fá akstur til baka. Þátttaka
er án endurgjalds.
Gengið verður meðal annars um
mosagróið Illahraun, framhjá Rauð-
hól, farið með Skipstíg, fornri þjóð-
leið, haldið austur með norð-
urhlíðum Þorbjarnarfells og inn á
Baðsvelli. Þar er ætlunin m.a. að
kíkja á þjófaslóðir og hin gömlu sel
Grindvíkinga. Þá verður gengið um
jarðauðlindagarðinn í Svartsengi yf-
ir að svæði Hitaveitu Suðurnesja og
um hið litskrúðuga lónssvæði að
Lækningalind og endað í Bláa lón-
inu.
Göngugarpar fá tvo fyrir einn í
Bláa lónið þar sem tilvalið er að end-
urnýja kraftana eftir góða göngu.
Ferðin og fræðslan er sniðin þannig
að börn jafnt sem fullorðnir hafi
gagn og gaman af. Góður skófatn-
aður er æskilegur og gott að taka
með sér smá nesti. Allir þátttak-
endur eru á eigin ábyrgð.
Vatnsleikfimi verður einnig í boði
annan í páskum fyrir baðgesti Bláa
lónsins. Hún hefst kl. 15 og 16.30 og
er í boði Hreyfingar.
Fjölbreytt dagskrá
í Bláa lóninu
Morgunblaðið/Eggert
Baðgestir Margir munu sjálfsagt bregða sér í Bláa lónið um páskana þar sem verður sitthvað um að vera.
Bogomil Font, vatnsleikfimi og menningar- og sögutengd
gönguferð er meðal þess sem bíður gesta Bláa lónsins
um páskana.
Um þessar mundir stendur yfir í
Minjasafninu á Akureyri sýning á ljós-
myndum Vigfúsar Sigurgeirssonar frá
1928-1958. Er sýningin áhugaverð fyr-
ir til dæmis fólk sem er á ferðinni
nyrðra um páskana.
Á sýningunni á Akureyri eru lands-
lagsmyndir, myndir unnar fyrir heims-
sýninguna í New York 1939, myndir af
fólkinu í landinu við störf auk mynda
frá ferðum Vigfúsar innanlands með
fyrstu forsetum lýðveldisins.
Vigfús Sigurgeirsson nam ljós-
myndun á Akureyri hjá Hallgrími Ein-
arssyni 1920 til 1923 og rak ljós-
myndastofu þar í bæ frá 1923 til 1936.
Líklega er hann þekktastur fyrir störf
sín sem opinber ljósmyndari forseta-
embættisins til margra ára. Hann var
einn fremsti ljósmyndari Íslendinga
um miðbik 20. aldar og frumkvöðull í
íslenskri kvikmyndagerð.
Ljósmyndir Vigfúsar voru sýndar í
Hamborg, New York, Kaupmannahöfn
og Reykjavík. Bók hans, Ísland í mynd-
um, var fyrsta ljósmyndabók Íslend-
ings og hann varð einnig fyrstur Ís-
lendinga til að gefa út bók með
myndum í lit.
Sýningin í Minjasafninu á Akureyri
stendur fram yfir páska eða til 26.
apríl.
Vigfús Sigurgeirsson
Forseti Sveinn Björnsson forseti
meðal fólksins á Akureyri.
Myndir Vigfúsar á
sýningu á Akureyri
um páskana
Ómissandi
ms.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
6
2
3
8
Hrein íslensk náttúruafurð