Morgunblaðið - 15.04.2011, Page 24

Morgunblaðið - 15.04.2011, Page 24
É g myndi segja að tvær minningar varðandi páskana standi upp úr. Sú fyrri er tengd páskadags- morgni. Ég er af kirkjusæknu fólki komin og við fórum alltaf til messu klukkan átta að morgni páskadags. Mér fannst alltaf svo mikil stemning að fara svona saman og tengi við sólbjarta morgna og tandurhreint loftið. Kirkjuklukkurnar hringja og vorið að koma og við göngum öll saman niður í bæinn og inn í þesa helgi sem fylgir páskunum,“ segir Kristín Gunnlaugs- dóttir myndlistarmaður. „Svo var haldið heim í morgunkaffi, boðið upp á páskaegg og morgunverð. Þetta var óvenjulegt fyrir mig, að við værum öll sam- an svona snemma að morgni. Hitt er svo að ég fæddist á annan í pásk- um, 15. apríl, og hefur oft gerst að afmæl- isdaginn ber upp á páskadag. Mér fannst eins og ég væri að ná saman í eina stóra uppskeruhátíð að hafa allt í senn; páskaegg- in, afmælið, hátíðleikann og svo frí í skól- anum.“ Fjölskyldan bjó á Akureyri og segir Kristín að páskunum hafi iðulega fylgt að reynt var að draga hana upp í Hlíðarfjall með skíði á fótum. „Mér fannst það hálf- hallærislegt og hef átt erfitt með að skilja hvað fólk þarf að plompast þetta fram og til baka, upp og niður einhverjar brekkur. Mér hefur alltaf leiðst, og jafnvel þótt grátleið- inlegt að fara á skíði,“ segir Kristín. „For- eldrar mínir voru mikið skíðafólk og drógu mig nöldrandi upp hverja brekku.“ Þótt skíðin hafi ekki átt við Kristínu kveðst hún alltaf hafa haft yndi af fallegu landslagi og fjöllin hafi heillað. Kannski var það nöldrið í skíðabrekkunum sem varð til þess að skíðaferðirnar urðu að gönguferð- um. „Ég gekk með pabba og mömmu upp á flest fjöllin í nágrenninu. Í minningunni er himinninn skír og páskablár, sólskin og skjannabjartur snjór sem sker mann í aug- un. Maður gekk með dökk sólgleraugu upp á fjallið og kom alltaf sólbrenndur til baka. Pabbi fór stundum úr að ofan og gekk þannig upp á hæstu tinda, og það blakti ekki hár á höfði,“ segir Kristín. „Svo renndi ég mér á plastpoka, á rass- inum aftur til byggða.“ Engar strangar hefðir gilda um páska- matinn á heimili Kristínar. „Hins vegar reyni ég að nota páskana til að kenna börn- unum mínum um hvað þessi hátíð snýst og um leið kynna þau fyrir fallegri páska- tónlist. Jóhannesarpassían og Matteus- arpassían eftir Bach hljóma á heimilinu alla páskavikuna,“ segir Kristín sem heldur í fleiri hefðir: „Mamma var sænsk og tók alltaf fínar greinar úr garðinum og lét þær blómstra inni. Ég erfði þennan sið frá henni. Reyni að finna birkigreinar og skreyti með fjöðrum. Þetta er fallegur siður svo framarlega sem lúsin leggst ekki á heimilið.“ Ein stór uppskeruhátíð Passíur Bachs hljóma á heimilinu um páskana en skíðabrekkurnar hafa aldrei heillað. Páskana ber oft upp á sjálfan afmælisdag Kristínar. Hátíð „Í minningunni er himinninn skír og páskablár, sólskin og skjannabjartur snjór sem sker mann í augun,“ segir Kristín. 24 | MORGUNBLAÐIÐ Minningar um páska Páskarnir eru hátíð þar sem fjölskyldan kemur saman og gerir sér glaðan dag. Súkkulaðinu er torgað í miklu magni og öllu tjaldað til í mat og drykk. Haldið er upp á fjöll með skíði um öxl og lífsins notið þessa fáu góðu frí- daga sem fást. Nokkrir þjóðþekktir einstaklingar deila hér með lesendum sínum kærustu páskaminningum. Ó afur Páll Gunnarsson útvarps- maður, eða Óli Palli eins og hann er oftast kallaður, á góðar minn- ingar af páskum á Akranesi. „Þar á ég mína stórfjölskyldu og við iðk- uðum okkar hefðir sem ég hef saknað svolítið í seinni tíð. Amma mín bjó í stærsta húsi bæj- arins, við Vesturgötu 32, átti mörg börn og enn fleiri barnabörn. Fyrir vikið var alltaf hálfgild- ings fermingarveisla þegar hópurinn mætti til ömmu á páskadagsmorgni,“ segir hann. „Amma átti líka páskaskraut úr gleri, litla litskrúðuga fugla af ýmsu tagi, rosalega flott og keypt í útlöndum. Ég hef ekki séð svona hjá neinum öðrum.“ Ólafur fékk auðvitað sitt páskaegg. „En eggin voru miklu dýrari í gamla daga en þau eru núna,“ man hann. „Það voru hreinlega stórútgjöld að kaupa þokkalegt páskaegg.“ Akranesbær spilar enn stórt hlutverk á pásk- um. Ólafur á fjögur systkini og stefna þau öll, með mökum og börnum, til Akraness á pásk- um. „Við höfum það fyrir venju að sameinast hjá foreldrum okkar á páskadag eða annan dag páska. Þá er dönsk purusteik iðulega á borðum.“ Páskarnir eru annars ekki mikill frítími fyr- ir útvarpsmanninn. „Ég hef undanfarin ár ver- ið að vinna mikið í kringum páska og aðra há- tíðisdaga,“ segir Ólafur og bætir við að reynt sé að bjóða upp á sérstaklega vandaða út- varpsdagskrá á páskum, t.d. tónleikaupptökur. Þegar kemur að páskaeggjunum er Ólafur strangtrúaður Nóa-maður. „Ég er sjúkur í súkkulaði yfir höfuð en páskaeggið verður að vera frá Nóa-Síríus. Hitt eru ódýrari týpur og minna áhugaverðar,“ segir hann. Purusteik á páskadag Fjölskyldan kemur saman á Akra- nesi hverja páska. Útvarpsmenn fá ekki mikið frí á hátíðisdögum. Morgunblaðið/Frikki Sælkeri Óli Palli segist vera sjúkur í páska- egg frá Nóa-Síríus. P áskaminningar Arnars Grants lík- amsræktarmanns snúast meðal ann- ars um hesta. „Ég er fæddur og upp- alinn á Akureyri og foreldrar mínir mikið hestafólk. Páskarnir snerust því oft um hestamót og bæði ég og systir mín byrjuðum þar snemma að keppa,“ segir Arnar sem tengir páskana líka við að hann vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í hreysti á páskum árið 2001. „Svo var auðvitað alltaf eldaður góður mat- ur og hefðin að hafa Royal-búðing í eftirrétt. Búðingurinn var ekki oft á boðstólum og þess vegna páskaréttur í mínum huga í dag.“ Arnar man eftir því að páskaeggjainnkaupin voru mun hóflegri þá en nú. „Hjá okkur var þetta þannig að það var bara keypt eitt egg fyrir heimilið, kannski stærð fimm. Við gædd- um okkur á egginu að kvöldi páskadags og það var þá brotið og sett í skál fyrir alla fjölskyld- una. Ég man það var alltaf mikil stemning í kringum það að lesa málsháttinn.“ Arnar stundar það enn að sækja sér skál til að borða eggið upp úr. „Ég reyni samt að nota hníf til að opna skelina, og reyni að hafa eggið sem heilast í skálinni,“ segir hann og bætir við að botninn sé besta stykkið. Þó svo Arnar þurfi að gæta vel að mataræð- inu dags daglega er harkan ekki svo mikil að hann þurfi að neita sér um súkkulaðiegg á páskum. Hann lætur sér heldur ekki duga að narta bara í eitt lítið egg af stærð eitt. „Ég tek mér frí frá íþróttamataræðinu á hátíðisdögum og sleppi mér aðeins í sælgætinu og góða matnum. Maður er alveg búinn að vinna fyrir því að gera vel við sig nokkra daga á ári.“ Botninn er besti hlutinn af egginu Páskarnir snerust um hestamót á yngri árum. Sleppir sér aðeins í góða matnum á hátíðisdögum. Morgunblaðið/Ernir Súkkulaði Gera vel við sig, segir Arnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.