Morgunblaðið - 15.04.2011, Síða 25

Morgunblaðið - 15.04.2011, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ | 25 KEAHÓTEL // Hafnarstræti 87-89 // 600 Akureyri // Sími: 460 2050 // Fax: 460 2070 // keahotels@keahotels.is // www.keahotels.is Upplýsingar og pantanir í síma 460 2000 og á www.keahotels.is NJÓTTU PÁSKANNA Á AKUREYRI Gæði, þjónusta og þægindi einkenna hótelin, sem staðsett eru í hjarta bæjarins þar sem veitinga- og skemmtistaðir, leikhús, kvikmyndahús og verslanir eru innan seilingar. Í Hlíðarfjalli við Akureyri er frábær aðstaða til skíða- og snjóbrettaiðkunar og þar er sannkölluð skíðaparadís rétt við bæjardyrnar. Starfsfólk Keahótela býður ykkur hjartanlega velkomin og vonar að dvölin verði ánægjuleg. KEAHÓTEL BJÓÐA FRÁBÆR GISTITILBOÐ Á AKUREYRI UM PÁSKANA. Hlíðarfjallið, skautahöllin, söfnin, Brynjuísinn, góða veðrið, frábæru veitingastaðirnir, leikhúsið, pöbbarnir, kaffihúsin, búðirnar, náttúrufegurðin, hjartabrosið... G eir Rúnar er öllum hnút- um kunnugur í kjötiðn- aði, enda hefur hann starfað við fagið í rúm tuttugu ár. Meðal annars starfaði hann lengi hjá verslunum Nóatúns, þaðan sem margir kann- ast við hann. Um áramótin tók hann við kjötbúðinni á Grensásvegi. Geir Rúnar veit nákvæmlega hvað það er sem fólk sækist eftir í páskamatinn. „Já, já, eftir að hafa staðið vaktina svona lengi þá lærist þetta,“ segir hann. „Páskalambið er alltaf mjög vinsælt. Það er minna um reykt kjöt en um jól. Svínapurusteik er einnig vinsæl og undanfarið hefur fólk ver- ið að sækjast í auknum mæli eftir fylltum lambalærum. Það eru marg- ar skemmtilegar nýjungar í fylling- unum, t.d. ýmsir ostar og fersk krydd. Flestir eru tilbúnir til að prófa nýjungar um páska en fólk er mjög íhaldssamt um jólin. Kalkún- abringur með fyllingum eru sömu- leiðis vinsælar. Góð nautasteik svík- ur heldur aldrei. Heilsteiktur vöðvi sem er hægeldaður á lágum hita í tvo til fjóra tíma er frábær matur sem er auðvelt að elda.“ Heitur matur alla daga Fyrir páskana lofar Geir Rúnar að vera með stútfullt kjötborð af ýmsum nýjungum á þessu sviði en jafnframt segist hann geta útbúið nær hvað sem er fyrir viðskiptivin- ina. „Það er mjög gott fyrir fólk að panta kjötið fyrirfram og við gefum góð ráð varðandi eldunina. Ég er með matreiðslumann með mér í búðinni og við getum séð um litlar sem stórar veislur. Við erum einnig með ýmsa tilbúna rétti sem ein- ungis þarf að hita. Slíkir réttir eru í boði alla daga vikunnar en þeir henta vel fólki sem hefur lítinn tíma. Sem dæmi get ég nefnt að margir koma hingað og kaupa súpu og færa öldruðum foreldrum sínum sem eiga kannski ekki heim- angengt.“ Margir leggja leið sína í sumar- bústað um páskana. „Fólk getur rennt við hér og við sérpökkum kjötinu fyrir alla dagana þannig að það geymist sem best. Við erum með allt meðlæti líka, kartöflusalat, waldorfsalat og allar tilbúnar sósur. Einnig erum við með grafið lamb og naut sem hægt er að hafa í forrétt og sósur með því. Ekki má heldur gleyma eftirréttunum, blaut súkku- laðikaka hefur slegið í gegn hjá okk- ur.“ Mörgum hefur fundist vanta per- sónulega þjónustu kjötkaupmanns sem vinnur kjötið eftir beiðni við- skiptavinarins. Geir Rúnar segir að minna svigrúm sé til að anna slíku í stórverslunum. „Við leggjum áherslu á fagþjónustu, að fólk geti leitað til okkar og fengið leiðbein- ingar.“ Geir Rúnar segist sjálfur ætla að grilla páskalamb í matinn um páskana, fyllt með camembertosti og sveppum. „Ég grilla það við væg- an hita í tvo tíma. Páskalambið er mjög gott vegna þess að það er ný- slátrað og hefur ekki verið fryst. Með því ber ég fram bakaðar kart- öflur og rjómaostasósu.“ Kjötbúðin er á Facebook og þar birtast daglega tilboð. elal@simnet.is Morgunblaðið/Golli Lyst Góður matur um páska og kjötborðið hjá Geir er úrvalsmikið. Grillað páskalamb með camembert og sveppum Geir Rúnar Birgisson kjöt- iðnaðarmaður rekur Kjöt- búðina að Grensásvegi 48 sem áður hét Kjötkomp- aníið og Gallerí Kjöt þar á undan. Geir Rúnar ætlar að þjónusta viðskiptavini hvort sem þeir þurfa smá- vægilegar ráðleggingar eða ætla að halda stór- veislu. E in af sterkustu páska- minningum Einars Kárasonar rithöfundar er löng og erfið skips- ferð. „Ég var beðinn að leysa af einn túr á strand- ferðaskipinu Esju, og við fórum af stað út í leiðinlegt veður og muggu norðan frá Reykjavík. Svo þræddum við alla Vestfirði, hvern kaupstað og kauptún og áttum svo að fara inn á Norður- fjörð á Ströndum,“ segir hann af þessum páskum úti á sjó. „Nema það var mikil norðanátt og dimmviðri svo við þurftum að bíða lengi úti í miðjum Húnafló- anum og létum reka á þessu tvö þúsund tonna skipi með tuttugu manna áhöfn. Á endanum lægði þó nægilega til að við gætum siglt inn á fjörðinn og þá sáum við lítinn bát koma á móti okkur, enda ekki hægt að leggjast að bryggju. Þar komu einhverjir karlar og tóku við því sem við vorum að flytja, sem mig minnir að hafi aðallega verið tveir-þrír kassar af kóki, póstpoki og svo kassi af páskaeggjum.“ Einar stundar það enn að vera á ferðinni á páskum. „Síðustu árin höfum við hjónin farið í ferðalög til útlanda um páska. Þetta er líka upplagður tími til að skreppa aðeins úr landi enda komið vor og þægilegur hiti víðast hvar. Maður tímir hins vegar ekki að fara frá Íslandi þegar sumarið gengur í garð,“ segir hann. Páskunum 2009 var varið í Nýja-Englandi í góðu yfirlæti og síðustu páska lá leiðin til Andalúsíu. „Við komumst reyndar að því þegar við lent- um á flugvellinum á Spáni að fólk þarf helst að panta sér hótelherbergi með ársfyrirvara til að eiga þar vísa gistingu á páskum. Þeir eru svo kaþ- ólskir þarna og miklar seremóníur, göngur á stöðum eins og Sevilla og Gra- nada. Fólk drífur víða að til að fylgjast með. En auðvitað tókst okkur að redda gistingunni á endanum,“ segir Einar en í ár er ferðinni heitið til Bæjaralands. „Það verða örugglega notalegheit og grillaðir svínaskankar.“ Upplagður tími fyrir ferðalög Varði páskum um borð í strandferðaskipi á yngri árum og kom páskaeggjum og pósti til skila. Skáldið Napurt í Norðurfirði á pásk- um um árið, segir Einar Kárason. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.