Morgunblaðið - 15.04.2011, Síða 26

Morgunblaðið - 15.04.2011, Síða 26
26 | MORGUNBLAÐIÐ Þ að myndast einstök stemn- ing á þessari hátíð og bæj- arbúar taka gestunum opnum örmum. Einn tón- listarmaðurinn orðaði það þannig við mig að sér þætti eins og hann gæti bankað upp á hvar sem er og komið í kaffi. Ég held að á fáum tónlistarviðburðum mæti bæði afinn, amman og barnabarnið á sama stað og allir skemmta sér vel. Þegar kannski Villi Valli harmonikkuleikari spilar með hljómsveit sinni er eldri kynslóðin í essinu sínu og unga fólkið smitast af fjörinu. Þegar síðan yngri og örari hljómsveit stígur á svið hlusta afinn og amman af áhuga með barnabörnunum. Hver hljómsveit fær ekki nema 20 mínútur á sviði svo jafnvel ef fólk fílar ekki alveg það sem er verið að spila þá þarf ekki að bíða lengi eftir einhverju nýju.“ Full skemma af gestum Þannig lýsir Jón Þór Þorleifsson sérkennum ísfirsku tónlistarhátíð- arinnar Aldrei fór ég suður sem nú er haldin 8. páskana í röð. Jón Þór, sem titlaður er rokkstjóri hátíð- arinnar, segir að tekist hafi að koma þessum viðburði rækilega á kortið. „Reyndar veit enginn hversu margir sækja Ísafjörð heim í tilefni hátíð- arinnar, því við seljum ekki inn á tón- leikana. Hins vegar er svo komið að búið er að fylla allt gistirými á Ísa- firði og margir sem gista á Bolung- arvík, Þingeyri og í öðrum nágranna- bæjum,“ segir Jón Þór sem áætlar að ekki færri en 1.500 til 2.000 manns séu á hverjum tíma í skemmunni Morgunblaðið/Eggert Mugistuð Að vanda verður Ísfirðingurinn Mugison á staðnum enda einn af upphafsmönnum og helsta aðaldriffjöður hátíðarinnar vinsælu. Morgunblaðið/Ernir Hljóðblöndun Hljóðmenn að störfum á Ísafjarðarhátíð síðasta árs sem dró að sér mikinn fjölda gesta. Tónn Klarinettuleikari Baunanna á í sveiflu hátíðinni í fyrra. Söngkona Tónlistarfólkið er af báðum kynjum og á öllum aldri. Smellur Halldór Gylfason leikari er góður söngvari og sviðsvanur. Hér myndast einstök stemning Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suð- ur haldin í áttunda sinn. Ókeypis á tónlistardagskrána og bæjarbúar taka gestum opnum örmum. Páskaglaðningur American Express® Skráðu þig á americanexpress.is og fáðu tvöfalda Vildarpunkta Icelandair af allri veltu frá 15. til og með 30. apríl!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.