Morgunblaðið - 15.04.2011, Page 29

Morgunblaðið - 15.04.2011, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ | 29 stað heldur skrapp fólk út til að at- hafna sig. En þessa umræddu páskahátíð var varla nema fyrir hraustmenni að fara út til að gera þarfir sínar. Sumir ferðafélaganna notuðust við kopp,“ segir Einar og hlær. „Gaslaust var og kalt innan- dyra og langt að ganga með allt dótið upp í bústaðinn í ófærðinni.“ Páskahret og 20 stiga hiti Ekki segja þau neinar sérstakar „serimóníur“ samfara páskahaldinu í sumarbústaðnum, nema hvað gjarnan er gripið í spil. „Krakk- arnir spila mikið,“ segir Auður. Hún segir oft hafa komið páskahret meðan á dvölinni í sumarbústaðn- um hafi staðið. „Við höfum þá kannski farið af stað í besta veðri en áður en hefur varað hefur verið komið kul og jafnvel snjór. Svo hafa líka komið hlýindatímabil, ég man að einu sinni kom 20 stiga hiti. En það er svo sem sama hvernig viðr- ar, allt er þetta skemmtilegt,“ segir hún. Þau segjast stundum taka sér páskagöngur í nágrenni bústað- arins, meira er þó um gönguferðir yfir sumartímann. Talsvert er um bústaði í kringum þau og góðir ná- grannar sem þau koma stundum til eða fá heimsókn í sinn bústað. En hvaða mat skyldu þau hafa á páskunum? „Lambakjöt,“ svarar Auður að bragði. Helst reyna þau að grilla kjötið. „Stundum höfum við hangikjöt,“ bætir hún við. Eftir matinn leggjum við okkur gjarnan og lítum í bók. Sjónvarp hafa þau líka en Auður segist lítið horfa á það. „Mér finnst meira gaman að lesa, hlusta og prjóna,“ segir hún og grípur aftur til prjónadótsins eftir að hafa tekið saman eftir kaffi- drykkjuna og sett óhrein matarílát í uppþvottavélina. „Það er mikill munur að hafa góða eldavél, að maður tali nú ekki um upp- þvottavélina,“ segir hún glaðlega. Og svo er kominn tími til heim- ferðar. Kominn strekkingsvindur svo fáninn berst um í hviðunum. En það skaðar ekki, inni í sum- arbústaðnum þeirra Auðar og Ein- ars er hlýtt og gott og gaman að vera. gudrunsg@gmail.com Afslöppun Gott er að fá sér kaffisopa í notalegheitum sveitasælunnar. Einar Líður alltaf vel í sveitinni. Gestir Það er alltaf gott að fá börn og barnabörn í heimsókn í bústaðinn. F A B R IK A N OSTAVEISLA FRÁ MS Gullostur Hvítmygluostur.Hvítmyglanereinnig inni í ostinum. Áhugaverður ostur með mildu bragði sem gott er að njóta í lok góðrar máltíðar. Þessi ostur er einn af flaggskipunum í ostafjölskylduni frá MS. Heilbakaður Gullostur með timjan og hvítlauk Vefjið smjörpappír utan um ostinn, pikkið átta göt ofan í ostinn og stingið ögn af timjan ásamt þunnum sneiðum af hvítlauk ofan í götin. Dreypið örlítilli ólífuolíu yfir. Pakkið ostinum aftur inn í bréfið sem var utan um hann og bakið hann í 30 mínútur við 160°C. Berið ostinn fram með grilluðu hvítlauksbrauði. Osta er hægt að bera fram með ýmsum hætti, það má t.d. borða Gullostinn með góðu ávaxtamauki, eða með hnetum og hella síðan góðu hunangi yfir eða setja í hann fyllingu úr þurrkuðum ávöxtum s.s. apríkósum og fíkjum og skreyta hann að ofan með þurrkuðum trönuberjum og hlynsírópi. Búa til litlar og fallegar ostasamlokur eða ostasnittur. Kynntu þér fleiri góðar hugmyndir og uppskriftir á heimasíðunni: www.ostur.is Ostabakki - antipasti Grillaðar paprikur, sól- eða ofn- þurrkaðir tómatar, grillað eggaldin, hráskinka og þurrkaðar pylsur. Gullostur, gráðaostur með ferskri peru, blár Kastali. Steyptur villisveppaostur skorinn út í litla hringi. Maribóostur með kúmeni. Kryddað apríkósumauk. Baguette-brauð. Uppskriftina að kryddaða apríkósu- maukinu má finna á vefnum www.ostur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.