Morgunblaðið - 15.04.2011, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 15.04.2011, Qupperneq 30
30 | MORGUNBLAÐIÐ P áskafjör í Fjarðabyggð er árviss dagskrá skíðasvæð- isins í Oddsskarði, í sam- vinnu við stofnanir, ferða- þjónustu, veitingahús og verslanir í Fjarðabyggð. Meðal ár- legra viðburða er sparifatadagur á páskadag en þá mæta allir í sínu fín- asta pússi á skíði, páskaeggjamót sem er opið öllum börnum, risasvig- mót, kjötsúpukveðjuhátíð, flug- eldasýning og tírólakvöld. Brettadagurinn verður enn stærri og flottari í ár. Lögð verður Border Cross-braut ásamt stökkbrettum og hólum sem ætti að kæta marga brettaunnendur. Á skírdag verður sérstakt snjóbrettamót. Mikill snjór í Oddsskarði Philippe Gilliot, frá Frakklandi, einn færasti troðaramaður heims, mætir austur í Oddstað og treður krefjandi palla og undirbýr svæðið fyrir páskana í samvinnu við Dag- finn Ómarsson, forstöðumann skíða- svæðisins. Skíðaleiðum verður fjölg- að og stefnt á að koma Svartabeltinu og Ævintýraleiðinni svonefndu í gagnið fyrir páska. „Núna er mikill snjór í Oddsskarði og við vonumst eftir góðu skíðafæri og bongóblíðu eins og svo oft er um páskana. Hér með er auglýst eftir fólki sem vill njóta lífsins í góðum fé- lagsskap í austfirsku ölpunum í Oddsskarði um páskana,“ segir Hildigunnur Jörundsdóttir, ferða- og menningarmálafulltrúi Fjarða- byggðar. „Fólk víða að af landinu sækir til okkar um páskana, til dæmis Norðlend- ingar og fólk af suðurfjörðunum hér fyrir austan. Þetta er gildur hópur sem stækkar með hverju árinu, enda er hér margt í boði og aðstaðan eins og best verður á kosið – gisting og annað enda hefur mikil vinna verið lögð í uppbyggingu ferðaþjónustunnar hér í sveitarfélaginu á undanförnum ár- um.“ Páskahellir og Veðurguðir Í byggð verður páskaeggjaleit fyrir alla fjölskylduna á Mjóeyri við Eskifjörð, Ferðafélag Fjarðamanna verður með sína árlegu göngu í Páskahelli á Norðfirði klukkan sex á páskadagsmorgun. Dansleikir, fjöl- skylduball og unglingaball verða í Valhöll á Eskifirði með Ingó og Veð- urguðunum auk þess sem fleiri lista- menn leggja lið. Á Rauða torginu í Neskaupstað verður ball með Mónó og barstemning önnur kvöld. sbs@mbl.is Skíði Brekkurnar í Oddskarði eru skemmtilegar og útsýnið þar yfir Firðina er alveg ævintýralegt. Norðfjörður Hefð er fyrir gönguferð Norðfirðinga í hellinn á páskadags- morgun. Margvíslegir möguleikar bjóðast í Fjarðabyggðinni fögru. Nægur snjór og allir austur Fjörlegt verður í Fjarðabyggð um páskana og skemmti- legt í Oddsskarði, einu besta skíðasvæði landsins. Gönguferð í Páskahelli. Hildigunnur Jörundsdóttir Hér með er auglýst eftir fólki sem vill njóta lífsins í góðum félagsskap í aust- firsku ölpunum í Odds- skarði um páskana, segir Hildigunnur Jörunds- dóttir, ferða- og menn- ingarmálafulltrúi Fjarða- byggðar. 21. apríl Skírdagur Kl. 17 Söngvahátíð barnanna Stór barnakór, karlaraddir, hljómsveit skipuð framúrskarandi djasstónlistarmönnum ásamt söngvaranum Agli Ólafssyni o.fl. flytja sálma og lofsöngva frá ýmsum heimshornum. Stjórnandi Tómas Guðni Eggertsson. Aðgangur ókeypis. Kl. 23 Hallgrímur Pétursson Miðnæturtónleikar Sálmar Hallgríms fluttir á nýstárlegan hátt. Kirstín Erna Blöndal sópran, Gunnar Gunnarsson orgel og Matthías Hemstock slagverk. Aðgangseyrir 2.000 kr. 22. apríl Föstudagurinn langi Kl 13-18 Passíusálmar Hallgríms Péturssonar Flytjendur eru hópur íslenskukennara, ungra og gamalla, frá grunnskóla að háskóla. Umsjón: Baldur Sigurðsson lektor. Flytjendur tónlistar: Söngkonurnar Magnea Tómasdóttir og Kristín Sigurðar- dóttir syngja upphafsvers hvers sálms við íslensk þjóðlög úr safni Smára Ólasonar. Orgelleikarar: Björn Steinar Sólbergsson, Guðmundur Sigurðsson, Hörður Áskelsson og Smári Ólason. Aðgangur ókeypis. Kl 20 Gesualdo og Schola cantorum Schola cantorum flytur 10 Responsoriae, sex radda mótettur um pínu og dauða Jesú, eftir ítalska endurreisnartónskáldið Carlo Gesualdo de Venosa. Stjórnandi Hörður Áskelsson. Aðgangseyrir 2.500 kr. Miðasala í Hallgrímskirkju s. 510 1000, opið 9-17 www.listvinafelag.is L I S T V I N A F É L A G HALLGRÍMSKIRKJU DYMBILVIKA 2011 S infóníuhljómsveit Norðurlands heldur tón- leika í menningarhúsinu Hofi á Akureyri á skírdag kl. 16. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir rússnesk tónskáld og má þar nefna Myndir á sýningu eftir Modest Mussorgsky, Hátíðarforleik eftir Dmitri Shostakovich og eftir Pjotr Tchaikovsky verða flutt verkin Capriccio Italien og 1812-forleikurinn. Stef úr þekktum lögum Til liðs við hljómsveitina á þessum tónleikum koma félagar úr Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem er einskonar unglingalandslið í hljómsveitarleik. Stjórn- andi á tónleikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson. Á tónleikunum verður fluttur Forleikurinn 1812 eftir P.I. Tchaikovsky. Verkið, sem er skrifað fyrir sinfón- íuhljómsveit, kirkjuklukkur og 16 fallbyssur, samdi Tchaikovsky til að minnast árásar Napóleons á Moskvu árið 1812 og sigurs Rússa á her Napóleons. Forleik- urinn var frumfluttur árið 1880 og inniheldur hann stef úr mörgum þekktum lögum sem tengjast franskri og rússneskri sögu. 82 hljóðfæraleikarar Þennan forleik ætlar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að flytja með tilheyrandi fallbyssuskotum á sviðinu í Hofi. Sérlegur sprengjusérfræðingur frá björg- unarsveitinni Súlum og slagverksleikari með stáltaugar sjá um þann þátt tónlistarflutningsins. Auk þess sem að framan er nefnt verða flutt nokkur önnur verk sem öll eiga sér sögu úr Garðaríki. Hljómsveitina skipa á þessum tónleikum 82 hljóð- færaleikarar en það er stærsta sinfóníuhljómsveit sem til þessa hefur komið fram í Hofi sem tekið var í notkun síðla sumars í fyrra. Verða þessir tónleikar því sann- arlega til að auka enn á fjölbreytileikann í verkefnavali Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands – sem víða hefur get- ið sér gott orð. Ómar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á sviðinu í Hofi, nýja menningarhúsinu á Akureyri. Forleikur með fallbyssuskotum Rússnesk verk eru á efnisskrá Sinfón- íuhljómsveitar Norðurlands. Skírdagstón- leikarnir verða haldnir í menningarhúsinu Hofi á Akureyri sem nýlega var tekið í notkun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.