Morgunblaðið - 15.04.2011, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 15.04.2011, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ | 31 Tríó þeirra Laufeyjar, Einars og Önnu kenna þau við sameig- inlegan forföður sinn, sr. Jón úr Reykjahlíð, og öll þrjú þau geta því kallað sig Mývetninga. Laufey segir eina ástæðu þess að farið var af stað með þessa tónlistar- dagskrá um páska hafa verið áhuga tónlistarmanna af svæðinu á að efla menningarlífið og um leið laða að fleiri gesti áður en háannatími sumarsins gengur í garð. „Það er gaman að fá að spila fyrir nýja áheyrendur og við aðrar aðstæður en við eigum að venjast í Reykjavík. Það myndast hrein- lega allt önnur stemning þegar hópur tónlistarmanna heldur svona út á land og samvinnan allt öðruvísi.“ www.reynihlid.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hljómar Helgi og hátíðleiki verður yfir tónleikunum í Reykjahlíðar- kirkju í Mývatnssveitinni fögru á föstudaginn langa. Allt önnur stemning H vað er betra í páskafríinu en að fara í gott ferðalag, njóta íslenskrar náttúru og eiga gefandi menning- arupplifun? Einmitt þetta er í boði á tónlistarviðburð- inum Músík í Mývatnssveit. „Þetta er í þrettánda sinn sem við höldum þessa litlu tónlistarhátíð, og flytjum fallega klassíska tónlist í anda páskanna,“ segir Laufey Sigurð- ardóttir fiðluleikari sem var einn af upphafsmönnum þessarar uppá- komu og er umsjónarmaður enn þann dag í dag. Flinkir listamenn Laufey hefur ár hvert fengið til liðs við sig einvalalið íslenskra tón- listarmanna til að láta ljós sitt skína á tónlistarhátíðinni og eru páskarnir í ár engin undantekning. „Fyrri tónleikarnir eru á skírdag kl. 20 í félagsheimilinu Skjólbrekku. Þar verður leikin kammertónlist og skipa hópinn, auk mín, Einar Jó- hannesson klarinettuleikari og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleikari, en saman myndum við tríóið Sírajón. Með okkur syngur svo Þóra Ein- arsdóttir sópransöngkona,“ segir Laufey. Á tónleikum fimmtudagsins verða flutt verk eins og Saga dátans eftir Stravinsky, Der Hirt auf dem Felsen eftir Schubert, íslensk og rússnesk sönglög og aríur eftir Händel og Mozart. „Mývetningar mega vera stoltir af aðstöðunni í Skjólbrekku, og maður finnur það strax og þangað er komið inn að margt skemmtilegt hefur gerst í húsinu. Hljómurinn er góður og flygillinn glæsilegur gamall Petr- off-flygill,“ bætir Laufey við. Seinni tónleikarnir eru á föstudag- inn langa í Reykjahlíðarkirkju. „Eins og vera ber veljum við til flutnings verk sem taka mið af deginum. Þetta eru verk sem skapa alvarlega stemn- ingu en um leið hátíðlega eins og ís- lensk hefð kallar á,“ segir Laufey en tónleikar föstudagsins hefjast kl. 21. Á efnisskrá eru m.a. tónlist eftir Mozart og aríur úr smiðju J.S. Bach. Margir koma ár eftir ár Að sögn Laufeyjar hefur þessi tónlistarviðburður náð að skapa sér vissan sess og margir, bæði heima- menn og fólk úr öðrum landshlutum, sem líta á það sem ómissandi hluta af páskum að bregða sér norður að Mý- vatni og blanda saman menningu og útivist með þessum hætti. „Í Mývatnssveit býðst margskon- ar afþreying, og menningarleg kvöldstund þar sem hlustað er á fal- lega tónlist er sérlega góður endir á degi þar sem farið hefur verið í góð- an göngutúr um náttúruna eða látið líða úr sér í hlýjum jarðböðum,“ seg- ir hún. „Margir gestir velja að verja ein- mitt föstudeginum langa í gönguferð kringum vatnið, með heimsókn í jarðböðin á eftir. Þá má fá sér góðan kvöldverð á Hótel Reynihlíð áður en haldið er af stað á tónleikana.“ ai@mbl.is Ljúfir páskatónar við Mývatn Sígild tónlist flutt á árlegum páskaviðburði í Mývatns- sveit. Hægt að blanda saman útivist og menningar- upplifun í skemmtilegri ferð. Morgunblaðið/Sigurgeir S Upplifun Menningarleg kvöldstund, segir Laufey Sigurðardóttir. Á föstudaginn langa verður föstu- ganga annað árið í röð frá þremur stöðum í Laufásprestakalli við Eyja- fjörð. Frá Grenivíkurkirkju verður lagt upp kl. 12.30, Svalbarðskirkju kl. 11 og kapellunni á Végeirsstöðum í Fnjóska- dal kl. 11 og haldið í Laufás. Í þjónustu- húsinu þar verður síðan boðið upp á fiskisúpu og þá verða jafnframt tón- leikar kl. 14.30 í Laufáskirkju með söngvaskáldinu Svavari Knúti. „Við erum í fallegri sveit sem er fyr- ir augað og andann. Svo finnst mér líka magnað að tengja saman útivist, hreyfingu og helgihald,“ segir sr. Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur í Lauf- ási, í samtali við Morgunblaðið. „Við fórum af stað með þetta verkefni í fyrra og þá voru um 100 þátttakendur – allt fólk sem gekk með Kristi á föstudeginum langa. Ég starta hverj- um hópi um sig með lestri úr Píslasög- unni og þegar komið er í áfangastað tekur við lestur Passíusálmanna hér í Laufáskirkju og síðan tónleikar söngvaskáldsins góða.“ sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Höfuðból Gömlu fallegu bæj- arhúsin í Laufási við Eyjafjörð. Sameinast í föstu- göngu í Laufás Farfuglar  Borgartúni 6  105 Reykjavík  Sími 552 8300  thorsmork@thorsmork.is  www.thorsmork.is Þórsmörk Fyrirtæki - skólar - vinahópar Er hópurinn að huga að vorferð? Komið í Húsadal og upplifið þessa náttúruperlu í aðeins 150 km fjarlægð frá Reykjavík. Þórsmörk er sannkallað ævintýraland náttúruunnenda með endalausum möguleikum á gönguleiðum og útiveru þar sem jöklar, ár, fjöll og gróður kallast á í þessu magnaða landslagi. Fjölbreytt gisting Í Húsadal er fjölbreytt aðstaða fyrir einstaklinga og hópa til styttri eða lengri dvalar. Boðið er upp á gistingu í tveggja manna herbergjum, smáhýsum og skálum. Frábær aðstaða Í glæsilegum funda- og veitingasal eru sæti fyrir um 100 manns, hvort sem um er að ræða fundi, ráðstefnur eða veisluhöld. Við getum boðið upp á fulla þjónustu í mat og drykk fyrir hópa. Auk þess eru gufubað og sturtur á staðnum og hvað er betra eftir hressandi gönguferð en að skella sér í gufu? Fróðleikur um gosin. Við bjóðum upp á fyrirlestur og myndasýningu um gosin í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi og afleiðingar þeirra. Einnig skipuleggjum við gönguferðir, kvöldvökur, leiki, grillveislur og gerum tilboð í akstur. Hafið samband eða farið á vefsíðu okkar www.thorsmork.is til að fá frekari upplýsingar. Þjóðskjalasafn Íslands varðveitir fjöl- breytt safn skjala sem tengjast lífi og starfi Jóns Sigurðssonar. Sýnishorn af þessum skjölum má sjá á sýningu í Bókasal Þjóðmenningarhússins frá og með næstkomandi laugardegi, 16. apríl. Elst þeirra er gjafabréf föður hans á hluta í jörðinni Gljúfurá í Arnarfirði sem veitti Jóni bæði kosningarétt og kjör- gengi til Alþingis. Þá gefur að líta skjöl sem tengjast daglegu lífi Jóns og af- skiptum hans af stjórnmálum. Yngstu skjölin varða dánarbú Jóns. Þar á meðal er erfðaskrá Ingibjargar Einarsdóttur, ekkju Jóns, 12. desember 1879 með nafni hennar undir. Með erfðaskránni var stofnaður sjóðurinn Gjöf Jóns Sig- urðssonar. Sýningin er sett upp í samvinnu Þjóðskjalasafns Íslands og Þjóðmenn- ingarhússins í tilefni af því að í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðs- sonar. Fyrir er í Þjóðmenningarhúsinu sýningin Óskabarn – æskan og Jón Sigurðsson, þar sem fjallað er um ævi og störf Jóns út frá sjónarhóli barna. Sýningar í Þjóðmenningarhúsinu eru opnar daglega frá kl. 11 til 17. Rétt er að vekja athygli á því að sýningar verða opnar á sama tíma alla páskahelgina, frá og með skírdegi til og með annars páskadags. Skjöl Jóns í Þjóðmenningarhúsi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.