Morgunblaðið - 16.04.2011, Síða 3

Morgunblaðið - 16.04.2011, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011 3 FJÁRVAKUR – FJÁRMÁLAÞJÓNUSTA EHF. REYKJAVÍKURFLUGVELLI I 101 REYKJAVÍK SÍMI 50 50 250 I FAX 50 50 259 FJARVAKUR@FJARVAKUR.IS WWW.FJARVAKUR.IS SÉRFRÆÐINGAR Í FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU VIÐSKIPTAFRÆÐINGAR TÖLVUNAR- OG/EÐA KERFISFRÆÐINGAR ÍS L E N S K A S IA .I S IC S 54 60 8 04 .2 01 1 ÞJÓNUSTUSTJÓRI / AÐALBÓKARI Í FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU STARFSSVIÐ II Yfirumsjón með bókhaldi ákveðinna viðskiptavina II Afstemmingar og lokafrágangur í mánaðar- og árshlutauppgjörum. II Skil á bókhaldi til endurskoðunar II Úrvinnsla tölulegra upplýsinga fyrir stjórnendur II Þátttaka í ýmsum umbótaverkefnum MENNTUNAR- OG HÆFNIKRÖFUR Viðskipafræðimenntun af endurskoðunar- eða fjármálasviði. Mikil reynsla á sviði bókhalds, af afstemmingum og uppgjörum skilyrði. Mjög góð Excel þekking. Mikil þjónustulund og skipulögð vinnubrögð. Reynsla af endurskoðunarskrifstofu er æskileg. Unnið er náið með stjórnendum viðskiptavina við þjónustu og upplýsingagjöf. VERKEFNASTJÓRI Í UPPLÝSINGATÆKNIDEILD STARFSSVIÐ II Dagleg notendaþjónusta og bilanavakt fjárhagsupplýsingakerfa félagsins II Uppsetningar og þróun fyrirliggjandi fjárhagskerfa II Þróun nýrra lausna II Verkefnastjórn í innleiðingu nýrra lausna II Önnur tilfallandi verkefni innan upplýsingatæknideildar MENNTUNAR- OG HÆFNIKRÖFUR Háskólapróf í tölvunar- og/eða kerfisfræði. Þekking á .NET, XML, SQL, Reporting Services, Axapta og vefstöðlum. Mikil þjónustulund og skipulögð vinnubrögð. Á upplýsingatæknideild félagsins starfa 3 starfsmenn en hýsingu fjárhags- kerfanna er úthýst. Notendur eru rúmlega 400 út um allan heim. Fjárvakur-fjármálaþjónusta ehf. er dótturfélag Icelandair Group. Félagið sérhæfir sig í umsjón verkferla sem tilheyra fjármálasviði fyrirtækja og býður fyrirtækjum allt frá heildarlausnum til afmarkaðra verkefna á því sviði. Helstu verkferlar eru umsjón bókhalds, fjárhagsuppgjör, innheimta, greiðsla reikninga, kostnaðareftirlit, fjármála- stjórn, launavinnsla og önnur starfsmanna- þjónusta. Hjá fyrirtækinu á Íslandi starfa um 60 manns sem búa yfir áralangri reynslu í rekstri fjárhagskerfa og framleiðslu fjárhagsupplýsinga sem uppfylla ströngustu kröfur stjórnenda. Mikil áhersla er lögð á að veita viðskiptavinum ávallt framúrskarandi þjónustu. Viðskiptavinir okkar eru stór alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir með samanlagða veltu vel yfir 100 milljarða króna og með rúmlega 4 þúsund starfs- menn. Aðsetur félagsins er í Icelandairhúsinu við Reykjavíkurflugvöll. Nánari upplýsingar er að finna á www.fjarvakur.is. Fjárvakur leitar eftir metnaðarfullum, áhugasömum og duglegum einstaklingum í spennandi og krefjandi störf. Boðið er upp á gott starfsumhverfi og þægilega starfs- aðstöðu, auk tækifæris til þróunar í starfi. Lögð er áhersla á að viðkomandi hafi mikla þjónustulund, metnað og geti unnið sjálfstætt. Umsóknir óskast fylltar út á vef félagsins, www.fjarvakur.is eigi síðar en 27. apríl. Nánari upplýsingar um störfin veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri félagsins. Á Kirkjubæjarklaustri er gott mannlíf, þar búa um 150 manns en íbúar Skaftárhrepps eru um 450 talsins. Á Kirkjubæjarklaustri er að finna alla nauðsynlega þjónustu s.s. verslun, banka, heilsugæslustöð, leikskóla, sundlaug, íþrótta- hús, hárgreiðslustofu og kaffihús. Þar er glæsi- legt íþróttahús og tækjasalur. Stutt er á 9 holu golfvöll á Efri-Vík. Veðurfar og náttúrufegurð Skaftárhrepps er rómað. Lausar stöður á Kirkjubæjarklaustri Staða grunnskólakennara Við leitum að hugmyndaríkum og áhuga- sömum kennara í almenna bekkjarkennslu næsta skólaár. Ýmsar kennslugreinar koma til greina. Skólastjóri er Kjartan H. Kjartansson, sími 865-7440. Kirkjubæjarskóli á Síðu er grunnskóli með um 40 nemendur. Við skólann er gott og samhent 10 manna starfslið. Aðbúnaður nemenda og starfsfólks er góður. Við skólann er m.a. vel búið tölvuver, sérlega vel búið bókasafn, gott mötuneyti og þar er starfræktur tónlistarskóli og heilsdagsskóli. Staða íþrótta- og tómstundafulltrúa Skaftárhreppur er að leita að metnaðarfullum og dugmiklum einstaklingi með íþróttakenn- arapróf, sem getur tekið til starfa hjá okkur 1. ágúst 2011. Starfið felst í umsjón með rekstri félagsmiðstöðvar, forvarnarmál og uppbygg- ingu á íþrótta- og tómstundastarfi. Bókasafnsfræðingur Staða forstöðumanns Héraðsbókasafnsins er laus til umsóknar. Um er að ræða hlutastarf. Starfið felur í sér umsjá og frekari uppbygg- ingu á bókasafninu. Safnið er samsteypusafn og er einnig rekið sem skólasafn. Sumarstarfsmenn Íþróttamiðstöð Við leitum að hugmyndaríkum og atorkumikl- um starfsmönnum með ríka þjónustulund til starfa í íþróttamiðstöðinni í sumar. Starfið felst í sundlaugarvörslu, afgreiðslu, þrifum og fleira. Unnið er á dag-, kvöld- og helgarvöktum. Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf sundstaða sbr. öryggisreglugerð fyrir sund- staði. Æskilegt er að umsækjendur séu eldri en 20 ára. Upplýsingamiðstöð Við leitum að hugmyndaríkum og atorkumikl- um starfsmönnum með ríka þjónustulund til starfa í upplýsingamiðstöðinni í sumar. Starfið felst í upplýsingagjöf til ferðamanna, af- greiðslu, þrifum og fleira. Unnið er á dag-, kvöld- og helgarvöktum. Hæfniskröfur eru tungumálakunnátta, landafræðiþekking, tölvu- kunnátta og almennir samskiptahæfileikar. Áhugavert starf í lifandi umhverfi. Starfsmaður í ýmis viðhalds- og hreinsunarverkefni Við leitum að dugmiklum og hugmyndaríkum starfsmanni til að sinna ýmsum aukaverkefn- um hjá okkur í sumar. Um er að ræða að mestu garðslátt, hreinsun á opnum svæðum og al- menna tiltekt en einnig tilfallandi viðhald svo sem fúavörn skjólveggja og þess háttar. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launa- nefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttar- félag. Upplýsingar veita Eygló Kristjánsdóttir, sveitarstjóri, í síma 487-4840 og Kjartan H. Kjartansson, skólastjóri, í síma 865-7440. Upplýsingar um Skaftárhrepp og Kirkjubæjar- skóla eru á www.klaustur.is og http://www.kbs.is. Umsóknarfrestur er til 30. apríl. Umsóknir skulu berast á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 15, 880 Kirkjubæjarklaustri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.