Morgunblaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011 Byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar Starf byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar er laust til umsóknar Hlutverk og ábyrgðarsvið: Byggingarfulltrúi starfar innan Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar. Sviðið skiptist í borgarskipulag og embætti byggingarfulltrúa. Hlutverk nýs byggingarfulltrúa verður að leiða stefnumótun og framtíðaruppbyggingu embættisins. Byggingarfulltrúi sér um að lögum um mannvirki nr. 160/2010, öðrum lögum og reglugerðum varðandi byggingarmál í borginni sé framfylgt. Hann ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, eftirliti með viðhaldi, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til borgarbúa. Alls heyra 19 starfsmenn undir byggingarfulltrúa. Menntunar- og hæfniskröfur: • Framhaldsmenntun á háskólastigi í arkitektúr eða verkfræði. • Löggilding sem hönnuður. • Þekking á byggingarreglugerð og reynsla af stjórnun. • Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, framsýni og skipu- lagshæfni. • Þekking á starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu er æskileg. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund. • Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, ensku og einu norrænu tungumáli. • Góð almenn tölvukunnátta. Skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar er næsti yfirmaður byggingarfulltrúa. Um laun og starfskjör fer samkvæmt reglum um réttindi og skyldur stjórnenda hjá Reykjavíkurborg og ákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Umsóknir skal færa inn á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf, fyrir 2. maí nk. Upplýsingar um starfið veitir Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar, í síma 411 3015, olof.orvarsdottir@reykjavik.is. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. ÍSAFJARÐARBÆR Leikskólar Ísafjarðarbæjar auglýsa eftir leikskólakennurum Ísafjarðarbær er bær í sókn sem hefur upp á margt að bjóða. Má þar nefna. öfluga grunnskóla og leikskóla, menntaskóla, fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf, öflugt tónlistar- og menningarlíf , eitt besta skíðasvæði landsins og endalausa möguleika í að njóta einstakrar náttúrfegurðar svæðisins. Í Ísafjarðarbæ eru fimm leikskólar, í fjórum byggðakjörnum, á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Leikskólarnir eru fjölbreyttir og hafa innleitt hinar ýmsu stefnur, s.s. Hjallastefnu, Reggio Emilio og Heilsustefnu. Stærð skólanna er frá einni og upp í fjórar deildir. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf milli skólanna en þó sjálf- stæði og fjölbreytni. • Okkur vantar leikskólakennara til starfa á þessum leik- skólum sveitarfélagsins. • Kröfur eru gerðar um leikskólakennaramenntun. • Allar nánari upplýsingar veita leikskólastjórar og/eða leikskólafulltrúi Ísafjarðarbæjar Leikskólinn Sólborg Ísafirði: auglýsir eftir tveimur deildar- stjórum í 100 % starf frá 02.08.2011. Önnur staðan er tíma- bundin ráðning í eitt ár v. launalaus leyfis. Leikskólastjóri er: Helga Björk Jóhannsdóttir, s: 450 8285, netfang: solborg@isafjordur.is Sólborg er fjögurra deilda leikskóli og eru einkunnarorð skólans eru: virðing - gleði - sköpun. Leikskólinn Eyrarskjól Ísafirði: óskar eftir leikskólakennur- um til starfa. Leikskólastjóri er: Nanný Arna Guðmundsdótt- ir, s: 450 8280, netfang: eyrarskjol@isafjordur.is Eyrarskjól er þriggja deilda leikskóli og vinnur eftir Hjallastefnunni. Leikskólinn Laufás Þingeyri: óskar eftir leikskólakennurum til starfa. Leikskólastjóri er: Elsa María Thompson, s: 450 8270, netfang: laufas@isafjordur.is Laufás er einnar deildar heilsuleikskóli. Leikskólinn Grænigarður Flateyri: óskar eftir leikskóla- kennurum til starfa. Leikskólastjóri er: Barbara Ferster, s: 450 8260, netfang: graenigardur1@isafjordur.is Leikskólinn er einnar deildar leikskóli og vinnur eftir Hjallastefnunni. Leikskólinn Tjarnarbær Suðureyri: óskar eftir leikskóla- kennurum til starfa. Leikskólastjóri er: Katrín Lilja Ævars- dóttir, s: 450 8290, netfang: tjarnarbaer@isafjordur.is Tjarn- arbær er tveggja deilda leikskóli og vinnur eftir kenningum John Dewey og einkunnarorð skólans eru virðing - gleði - sköpun. Leikskólafulltrúi Ísafjarðarbæjar er: Sigurlína Jónasdóttir, s: 450 8000, netfang: leikskolafulltrui@isafjordur.is Umsóknarfrestur er til 6. maí 2011.      8 . H% 8 .    3    I2'     * ,+JJ   ! .! .   !  " #! # !  $  %  &&&  !        ! $   ' !  (          % )  #  * +,        !            / ! I2'      2    2'       !  4!  .3 $ !.           .3  2     .3      !    .13 -  ! # !     3      2# 2 0'      <   '  % 2' B# % !   # 4      !     .#      G    !     / !#        < 2'   !   ! 2' !'  .  ' 3   3 <# 3 ! /'   !   0   '   '     !  ! H$   2'      1!!  !    !  Stykkishólmur Laus störf Næsta skólaár vantar okkur kennara til starfa við Grunnskólann í Stykkishólmi. Meðal kennslugreina eru textílmennt, íþróttir og almenn kennsla á mið- og unglingastigi. Einnig er laus staða umsjónarmanns með lengdri viðveru fyrir nemendur 1.–4. bekkjar. Frekari upplýsingar um störfin gefur Gunnar Svanlaugsson, skólastjóri, í síma 864 8864, netfang: gunnar@stykk.is Grunnskólinn í Stykkishólmi. óskar eftir að ráða nema í bakaraiðn og/eða aðstoðarmann bakara. Svar berist á netfangið: bjornsbakari@bjornsbakari.is eða í síma 699 8076 – Sigurður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.